Netglæpir eru skipulögð brotastarfsemi Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar 21. apríl 2026 07:31 Flest okkar þekkja það að fá skilaboð, símtal eða tölvupóst sem reynist vera tilraun til fjársvika. Það sem virðist saklaust er hluti af stærri mynd. Netglæpir hafa vaxið hratt á undanförnum árum. Þessir glæpir valda ekki aðeins fjárhagslegu tjóni heldur grafa einnig undan trausti – sem er ein af grunnstoðum samfélagsins. Þessir glæpir eru ekki lengur einangruð. Þau eru hluti af skipulagðri brotastarfsemi sem teygir anga sína þvert á landamæri og nýtir sér tæknina til að fremja fjársvik, blekkingar og árásir á einstaklinga, fyrirtæki og innviði. Við sjáumað sömu aðilar standa að baki fjölþættum brotum þar sem netsvik, peningaþvætti og önnur alvarleg brot fléttast saman. Þetta eru ógnir sem snerta bæði öryggi einstaklinga og efnahagslegt öryggi samfélagsins í heild. Viðbrögðin þurfa þess vegna að taka mið af þessari þróun. Mikilvægt skref til að efla viðbragðsgetu Nýlega var opnuð ný stafræn tilkynningagátt á vef lögreglu sem gerir fólki kleift að tilkynna netglæpi á einfaldan og öruggan hátt.Tilkynningar eru nú skráðar beint inn í kerfi lögreglu.Þetta er mikilvægt skref sem einfaldar ferlið verulega. En þetta snýst ekki aðeins um að einfalda ferlið. Með því að safna upplýsingum á einn stað eflum við lögreglu svo hægt sé að greina mynstur og bregðast hraðar við. Við byggjum upp yfirsýn sem gerir okkur kleift að sjá heildarmyndina – og getu til að bregðast við henni af festu. Sérstök áhersla er lögð á fjársvik á netinu, sem eru meðal algengustu brota sem almenningur verður fyrir. Á síðasta ári nam tjón af völdum þeirra tæplega 600 milljónum króna. Þetta er því ekki aðeins spurning um tap á fjármunum, heldur hafa brot af þessu tagi raunveruleg áhrif á líf fólks. Sameiginlegt verkefni okkar allra Öryggi almennings er ekki sjálfgefið. Það þarf að verja það. Líka í stafrænum heimi. Tæknin ein og sér dugar ekki. Við þurfum á almenningi að halda. Með því að tilkynna netsvik og netglæpi, jafnvel þegar tjón hefur ekki orðið, leggjum við okkar af mörkum til að stöðva brotamenn og rjúfa keðjur skipulagðrar brotastarfsemi. Ef við tilkynnum ekki sjáum við ekki heildarmyndina. Og ef við sjáum hana ekki náum við ekki utan um vandann. Það er sameiginlegt verkefni okkar að tryggja öryggi í stafrænum heimi.Með samstilltu átaki getum við byggt upp öruggara samfélag, líka á netinu. Höfundur er dómsmálaráðherra. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir Netglæpir Netöryggi Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Gætum við haft það betra? Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Já við fleiri verkfærum fyrir byggðir landsins Arna Lára Jónsdóttir Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir Skoðun Að gera illt verra - Verðbólgan og ábyrgð stjórnvalda Jón Ferdínand Estherarson Skoðun Skoðun Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Hver ætlar að hafa augun á boltanum? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Brexit rútan mætt til Íslands! Andrés Pétursson skrifar Skoðun Að gera illt verra - Verðbólgan og ábyrgð stjórnvalda Jón Ferdínand Estherarson skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar