Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Tómas Arnar Þorláksson skrifar 22. apríl 2026 12:13 Valgerður Árnadóttir, formaður Hvalavina. vísir/arnar/vilhelm Hvalur hf. hyggst halda úti veiði á langreyði í sumar. Veiðiráðgjöf frá Hafrannsóknarstofnun barst núna rétt fyrir hádegi þar sem er gert ráð fyrir að kvótinn dragist verulega saman. Samtökin Hvalavinir hafa sent atvinnuvegaráðherra bréf þar sem þess er krafist að stjórnvöld stöðvi hvalveiðar.
Kristján Loftsson, framkvæmdastjóri Hvals hf, tilkynsnti í samtali við Morgunblaðið í gær að fyrirtækið stefni á að veiða langreyði í sumar. Hafrannsóknarstofnun gaf út veiðiráðgjöf rétt fyrir hádegi en stofnunin ráðlseggur að veiðar á langreyði á þessu ári takmarkist við 150 dýr, þar af 116 dýr á veiðisvæðinu Austur-Grænland/Vestur-Ísland en það er 45 hvölum færra en á tímabilinu 2018 til 2025 á sama svæði. Hvalur hf. bíður nú þess að Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra, gefi út kvóta fyrir veiðarnar til hefja skipulag og ráðningu starfsmanna. Kristján Loftsson hefur ekki svarað viðtalsbeiðnum fréttastofu. Bjarni Benediktsson, þáverandi forsætis- og matvælaráðherra, gaf út hvalveiðileyfi til fimm ára skömmu eftir alþingiskosningar 2024. Ekki fóru fram hvalveiðar síðasta sumar vegna óhagstæðrar verðþróunar og markaðsaðstæðna, sér í lagi vegna verðbólgu í Japan. Segir áformin ekki standast skuldbindingar og lög Valgerður Árnadóttir, formaður Hvalavina, segir í samtali við fréttastofu að breiðfylking dýraverndunarsamtaka hafi sent atvinnuvegaráðherra bréf þar sem skorað er á stjórnvöld að stöðva hvalveiðar. „Hún er með nokkrar ályktanir um að þetta brjóti gegn alþjóðaskuldbindingum sem við erum aðilar að. Fyrirvari Íslands gegn alþjóðahvalveiðisamningnum stenst ekki lög. Það mikilvægasta í þessu er að það er ekki hægt að veiða hval á mannúðlegan máta. Það dauðastríð og þjáningar sem þeir þurfa að þola það brýtur gegn lögum um velferð dýra á Íslandi. Þetta verður að stöðva.“ Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra.Vísir/Vilhelm Hún bindir vonir við að atvinnuvegaráðuneytið stígi inn í. Hún tekur fram að utanríkisráðuneytið þurfi einnig að skoða alþjóðasamninga sem Ísland sé hluti af. „Ég hef að sjálfsögðu miklar áhyggjur vegna þess að við höfum haft þrjá atvinnuvegaráðherra áður sem tókst ekki að stöðva þetta þrátt fyrir að vera á móti hvalveiðum. Það er alveg ljóst að Hanna Katrín Friðriksson er ekki fylgjandi hvalveiðum. Hún hefur gefið út að hún ætli að leggja fram frumvarp til að banna hvalveiðar í haust. Það er ekki nógu gott. Það má ekki einn hvalur deyja í sumar fyrir eitthvað sem mun gerast í haust. Það þarf að grípa inn í núna.“ Brá verulega við fréttirnar Ekki voru stundaðar hvalveiðar á Íslandi síðustu tvö sumur. Valgerður segist ekkert botna í áformum Hvals hf. „Mér brá mjög mikið að sjá þessi áform Kristjáns Loftssonar, við vorum alveg búin að afskrifa það að hann myndi veiða í sumar. Við vitum það að hann er ekki með kaupendur fyrir hvalkjötið. Bara upp á það að hann er viðskiptamaður, mér finnst þetta eiginlega alveg galið fyrir utan allar aðrar ástæður fyrir því að við ættum ekki að veiða hval.“ Græna gangan sem Landvernd stendur fyrir til að vekja athygli á náttúruvernd fer fram á morgun. Valgerður reiknar með að ákall um stöðvun hvalveiða muni setja mark sitt á gönguna. „Hvalavinir munu mæta þangað til að ganga fyrir hvalina og vernd hafsins. Við munum mæta með okkar skilti rétt eins og önnur náttúruverndarsamtök mæta með sín skilti. Þetta er breiðfylking náttúruverndarsamtaka sem stendur fyrir þessu. Þetta er fjölskylduviðburður. Við hvetjum alla til að leggja leið sína í gönguna.“
Hvalveiðar Sjávarútvegur Dýr Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent „Galin vinnubrögð“ Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Fleiri fréttir Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Féll úr stiga í vinnunni og hlaut höfuðhögg „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka „Galin vinnubrögð“ Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi „Hrikalegt högg“ Engin ástæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur „Fyrst og fremst erfitt“ Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Húðflúr á hálsi kom upp um síbrotamann „Íbúar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu“ Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp ráðherra um herta innflytjendalöggjöf Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Sorg hjá borgarstarfsmönnum og leitaraðgerð í Grindavík Gefur meirihlutanum falleinkunn Hætta skapaðist eftir að límt var fyrir linsu hraðamyndavélar „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Sjá meira