Foreldrahús lokar 1. maí! Viljum við það? Dagbjört Ósk Steindórsdóttir skrifar 23. apríl 2026 10:44 Foreldrar með börn í vímuefnavanda eiga að geta leitað strax eftir aðstoð. Það er ekki valkvætt verkefni stjórnvalda, heldur er það skylda þeirra að tryggja að slík úrræði séu til staðar og aðgengileg þegar mest á reynir. Sú staða er nú uppi að Foreldrahús, eitt mikilvægasta úrræði landsins fyrir þessar fjölskyldur, stendur frammi fyrir lokun 1. maí vegna fjárskorts. Í áratugi hefur Foreldrahús gegnt lykilhlutverki. Frá árinu 1986 hefur starfsemin byggst á einu markmiði: að styðja og efla foreldra barna í vímuefnavanda og áhættuhegðun. Umfangið talar sínu máli. Á síðasta ári leituðu 586 ólögráða einstaklingar og 1.213 foreldrar til Foreldrahúss. Veitt voru 3.891 viðtöl, þar af 3.190 án endurgjalds, auk 326 símtala við foreldra eftir kl. 16 — einnig án kostnaðar. Þetta er raunveruleg hjálp, ekki bara loforð. Rekstarkostnaður er um 74 milljónir króna á ári og framlag ríkisins sem var um 30 milljónir hefur verið fellt niður. Ef ekkert verður að gert mun Foreldrahús loka. Afleiðingarnar verða alvarlegar. Það þarf að segja þetta skýrt:Það er í raun ekkert hægt að benda foreldrum á annað úrræði sem er jafnt sértækt og aðgengilegt og Foreldrahús. Ef þessi starfsemi hverfur myndast tómarúm sem enginn annað úrræði fyllir of eftir standa foreldrar og börn án stuðnings sem eru stödd á þeim tímapunkti þegar mest er þörfin. En jafnvel á meðan starfsemin er til staðar er annað vandamál sem ekki má líta fram hjá. Hluti þjónustunnar er greiddur af foreldrum. Það þýðir að ekki öll börn hafa jafnan aðgang að þeirri aðstoð sem þau þurfa, einfaldlega vegna efnahags foreldra þeirra. Slíkt samræmist illa meginreglum Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, þar sem kveðið er á um jafnan rétt barna til verndar og aðstoðar, óháð aðstæðum þeirra. Aðgengi að nauðsynlegri aðstoð má ekki ráðast af greiðslugetu. Þess vegna þarf að tryggja stöðugt opinbert fjármagn svo þjónustan sé aðgengileg öllum. Sveitarfélög bera einnig ábyrgð. Þau eiga að tryggja þjónustu fyrir börn og fjölskyldur á fyrstu stigum vanda — einmitt þar sem Foreldrahús hefur sannað gildi sitt. Það þarf þjónustusamninga við öll sveitarfélög á landinu ekki bara þau á höfuðborgarsvæðinu. Talið er að um 7% barna í 10. bekk séu í vímuefnaneyslu. Sú tala nær aðeins til eins árgangs og gefur ekki heildarmynd. Þörfin er ekki að minnka — hún er að aukast. Þetta er spurning um forgangsröðun. Hvort samfélagið ætlar að standa með fjölskyldum eða bara snúa sér undan. Eða taka ábyrgð og geta litið stolt til baka og sagt við gerðum það sem rétt var. Foreldrahúsið byggir á áratuga reynslu sem má ekki glatast með sérhæfðu starfsfólki sem sinnir fjölskyldum með börn í vímuefnavanda. Foreldrahúsið hefur gildi fyrir þjóðfélagið, það hefur staðið vaktina í gegnum árin, það opnaði á þeim forsendum að vilja hjálpa fjölskyldum til betra lífs og það hefur aldrei misst sjónar á þeim markmiðum Foreldrahúsið hefur unnið farsælt starf og það er margbúið að sanna virði sitt og það er lífsnauðsynlegt að halda því opnu fyrir börnin okkar svo þau komist í hjálpina. Stjórnvöld og sveitarfélög verða að bregðast við áður en það er of seint.Setja þarf Foreldrahús á föst fjárframlög og tryggja áframhaldandi starfsemi. Það á enginn foreldri að standa bjargarlaust frammi fyrir vímuefnavanda barns síns. Tíminn er að renna út. Höfundur er varaformaður Samtaka aðstandana og fíknisjúkra. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson Skoðun Einelti og samskiptahættir kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir Skoðun Ástkæra, ylhýra, orðljóta málið… mitt Íris Erlingsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Gervigreind, gagnaver og tækifæri Íslands Eymundur Sigurðsson skrifar Skoðun Sveitirnar þagna Walter Fannar Kristjánsson skrifar Skoðun Áður en lengra er haldið Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Erum við of fljót að kenna samfélagsmiðlum um? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Börn læra ekki fyrir framtíð sem þau skynja ekki Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Danir, ESB og staða Íslands Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“ ? Guðríður Lára Þrastardóttir skrifar Skoðun Frá öllum til allra með nútímalegum sjúkratryggingum Sigurður H. Helgason skrifar Skoðun Tækifærið er núna Agnar H. Johnson skrifar Skoðun Einelti og samskiptahættir kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Hlaupið er búið - en láttu það ekki stoppa þig Sigrún Elva Einarsdóttir skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir skrifar Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson skrifar Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Samkeppniseftirlitið eitt og sér Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson skrifar Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar Skoðun Skipulag sem má ekki borga sig! Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson skrifar Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson skrifar Skoðun Ástkæra, ylhýra, orðljóta málið… mitt Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson skrifar Skoðun Lágir vextir og lágt vöruverð? Reynir Zoëga skrifar Skoðun Óviss um ESB? Segðu nei Jón Ívar Einarsson skrifar Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson skrifar Sjá meira
Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar