Frí tómstund fyrir þitt barn? Sara Björg Sigurðardóttir skrifar 27. apríl 2026 08:53 Við vitum að skipulagt íþrótta- og tómstundastarf er eitt af því sem verndar börn gegn áhættuhegðun, hefur mikið forvarnargildi og er ein besta leið til að tilheyra í nærsamfélaginu - því lengri ástundun því betra. Það er dýrmætt að fá hæfni til að eignast félaga fyrir lífstíð í heilbrigðu umhverfi, læra að tilheyra hópi en á sama tíma að uppskera meira sjálfstraust og bætta líðan í því sem maður er góður í - allt einstakt veganesti út í lífið. Þess vegna höfum við frístundakortið, til að hvetja börn og ungmenni til félagslegrar þátttöku, efla lífsgæði og ýta undir heilbrigði og bætta líðan samhliða að jafna aðgengi barna að þessu heilbrigða umhverfi og opna heim að fjölbreyttu íþrótta-, lista- og tómstundastarfi út um alla borg. Hækkun frístundastyrksins hefur fjölgað iðkendum í Reykjavík Við að efna kosningaloforð Samfylkingarinnar á þessu kjörtímabili, hækka frístundastyrkinn úr 50 þúsund krónum í 75 þúsund krónur, hefur nýtingin aukist - fleiri börn eru að skila sér inn skipulagt íþrótta- og tómstundastarfi - sem er stórkostlegt. Það er mikilvægt að gleðjast yfir góðum árangri en það sem hefur setið í mér er að þau börn sem sitja eftir búa og lifa í veruleika sem fæst börn í Reykjavík lifa við. Þau búa við fátækt, við fötlun eða eru af erlendum uppruna - og fyrir vikið sitja eftir. Finnum börnin og styðjum þau áfram Undir forystu Samfylkingarinnar á þessu kjörtímabili hefur verið lagt út net farsældar til að finna þessi börn. Við viljum ná til þessara 18% barna í borginni sem ekki nýta frístundakortið, koma þeim í þátttöku og virkni. Á kjörtímabilinu höfum við stofnað teymi frístundatengla sem vinnur þvert á borgarhverfin en farteymið vinnur út frá faglegu mati og hefur að markmiði að skima fyrir börnum í viðkvæmri stöðu og styðja þau í að finna sér frístund eftir áhugasviði. Frístundatenglarnir þjónusta barnið og foreldra þess í nærumhverfinu, svo sem með viðveru í skóla þegar það eru foreldraviðtöl. Þannig fá foreldrar fræðslu og aðstoð við að skrá börn í íþróttir og tómstundir innan hverfisins. Til að styðja við verkefnið var stofnaður styrktarsjóður en hann er hugsaður til að koma til móts við umfram kostnað sem fellur til við skipulagt tómstundastarf - fata- og búnaðarkaup, ferðakostnað og fleira. Það er þáttur sem er hamlandi fyrir þær fjölskyldur sem búa við fátækt. Samfylkingin vill gjaldfrjálsa tómstund fyrir börn sem búa við fátækt Það er verkefni jafnaðarmanna að jafna tækifæri barna. Núna er kominn tími á styðja við þau börn sem hafa setið eftir. Það er því engin tilviljun að eitt mikilvægasta kosningaloforð Samfylkingarinnar er að tryggja eina fría tómstund fyrir barn sem býr við efnislegan skort, barn sem elst upp við fátækt og hefur setið eftir. Að stunda skipulagt tómstundastarf á Íslandi er dýrt. Það vita barnafjölskyldur. Enginn vill vera barnið sem situr eftir. Öll börn vilja finna sinn stað, ná að tilheyra hópi innan sinna félaga sem aftur eflir sjálfstæði og styrkleika til framtíðar í heilbrigðu og öruggu umhverfi. Það er stóra verkefnið, Grunnurinn hefur verið lagður, við erum með styrktarsjóð, við erum með öflugt teymi frístundatengla og núna viljum við tryggja að þau börn sem hafa setið eftir vegna fjárhagslegra aðstæðna geti hoppað um borð í skipulagt íþrótta- og tómstundastarf án þess að fjárhagslegar aðstæður fjölskyldu hamli það. Öll börn með - ekkert barn á sitja eftir. Höfundur er borgarfulltrúi Samfylkingarinnar, fulltrúi í menningar- og íþróttaráði og skipar 10. sæti á lista flokksins í kosningunum 16. maí. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sara Björg Sigurðardóttir Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Frístund barna Mest lesið Halldór 29.08.26 Halldór Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun The EU Referendum Dorrit Moussaieff Skoðun Skoðun Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Hvers virði er velvild Trump? Paal Frisvold skrifar Skoðun Lýðræðisveislan 2026 Birgir Björn Sigurjónsson skrifar Skoðun Ungum Íslendingum er betur borgið utan ESB Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Veistu hvaða sírenur syngja til þín? Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Það er sitthvað bogið við banana Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun Já fyrir íslenskuna! Logi Einarsson skrifar Skoðun Segðu ekki nei, segðu kannski, kannski, kannski Hólmar Örn Finnsson skrifar Skoðun Hverjum treystir þú? María Rut Kristinsdóttir skrifar Skoðun Spænskir strandveiðisjómenn til Íslands Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ryksugan hans Halldórs Svanhvít Aðalsteinsdóttir skrifar Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Barist fyrir veröld sem var Elías Þórsson skrifar Skoðun Við höfum tekið margar góðar ákvarðanir Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Kjósum með opnum huga Kristín A. Árnadóttir skrifar Skoðun Um Kanada og Ísland Eliza Reid skrifar Skoðun Frístundamiðstöðvar lagðar niður, á hverjum bitnar það? Sigrún Ósk Arnardóttir skrifar Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Skoðun The EU Referendum Dorrit Moussaieff skrifar Skoðun Lokum ekki augunum fyrir tækifærum – segjum já og sjáum samninginn Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Fullveldi er ekki stofustáss María Kristín Gylfadóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar
Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar
Skoðun Lokum ekki augunum fyrir tækifærum – segjum já og sjáum samninginn Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar