Frístund barna

Fréttamynd

Upp­sagnirnar hafi komið eins og reiðar­slag

Aðstoðarforstöðukona frístundaheimilisins Regnbogans í Breiðholti harmar breytingar á skipuriti Reykjavíkurborgar sem leiddu til tæplega níutíu uppsagna. Hún spyr hvort það sé í lagi að betra Excel-skjal sé á kostnað barnanna.

Innlent
Fréttamynd

Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“

„Þetta rétt gekk,“ skrifar móðir í aðsendri grein á Vísi er hún lýsir þreytu eftir sumarfrí skólanna, þar sem foreldrar hafi átt í ströngu við að finna börnum sínum eitthvað að gera á daginn og keppst um pláss á sumarnámskeiðum. Eftir „skítamixsumarið mikla“ segir hún að skólabjallan hafi sjaldan hljómað eins undursamlega að hausti. Hún spyr hvort sumarfrí frá skólum þurfi virkilega að vera tíu og hálf vika enda sé það styttra í nágrannalöndum.

Innlent
Fréttamynd

For­eldrar velta fyrir sér „innivistartíma barna“

Börn mega ekki vera úti lengur en til miðnættis á sumrin en nýlega hefur skapast umræða á samfélagsmiðlum og spurningin sem virðist brenna á allra vörum er: klukkan hvað börn mega fara aftur út?  Lögreglumaður segist sjálfur hafa velt málinu fyrir sér en það fari mjög eftir aðstæðum hvort sett sé athugasemd við einsömul börn á flakki snemma á morgnana.

Innlent
Fréttamynd

Aftur­kalla breytinguna gegn gjaldi

Borgarráð samþykkti tillögu borgarstjóra um að afturkalla styttingu á opnunartíma frístundaheimila og sértækra félagsmiðstöðva sem taka átti gildi í lok ágúst. Þrátt fyrir yfirlýsingu um að velta kostnaðinum ekki yfir á foreldra eru einnig lagðar til breytingar á gjaldskrá.

Innlent
Fréttamynd

Skerðing á opnun í frí­stund verði aftur­kölluð

Bjarni Fritzson, formaður skóla- og frístundaráðs, segir opnunartíma frístundamiðstöðva verða til 17 en ekki 16.30 næsta vetur. Það sé auðvelt lausn í hagræðingu að velta kostnaði yfir á foreldra en nýr meirihluti ætli ekki að gera það.

Innlent
Fréttamynd

Falið fagstarf frístundaheimila

Frístundaheimili eru einn stærsti félagslegi vettvangur barna á Íslandi en faglegt mikilvægi þeirra fer oft fram hjá samfélaginu. Fyrir ykkur sem ekki þekkja þá eru frístundaheimili vettvangur þar sem börn í 1. – 4. bekk sækja eftir að skóla lýkur á daginn. 

Skoðun
Fréttamynd

Gjöld fyrir frí­stund rokið upp

Samanburður á gjöldum hjá fjórtán sveitarfélögum sýnir að hækkanir á gjaldskrám frístundaheimila fyrir grunnskólabörn frá árinu 2023 til 2026 eru á bilinu fjögur prósent upp í 37 prósent.

Innlent
Fréttamynd

Frí tóm­stund fyrir þitt barn?

Við vitum að skipulagt íþrótta- og tómstundastarf er eitt af því sem verndar börn gegn áhættuhegðun, hefur mikið forvarnargildi og er ein besta leið til að tilheyra í nærsamfélaginu - því lengri ástundun því betra.

Skoðun
Fréttamynd

Kapp­hlaupið um sumarnámskeiðin

Á hverju vori endurtekur sama sagan sig hjá fjölmörgum fjölskyldum í Reykjavík. Foreldrar sitja klárir við tölvuna eða símann á skráningardegi í sumarnámskeið borgarinnar, oft á miðjum vinnudegi, í þeirri von um að ná plássi fyrir börnin sín.

Skoðun
Fréttamynd

Jafnara að­gengi að Frí­stunda­styrk í Reykja­vík

Á borgarstjórnarfundi þann 16. febrúar var samþykkt tillaga samstarfsflokkanna um að unnið verði að breytingum á reglum um frístundastyrk og aðheimilt verði að nýta styrkinn til að greiða fyrir sumarnámskeið eða styttri námskeið. Í dag er skilyrði að námskeið verða að vara í átta vikur til að hægt sé að nýta styrkinn.

Skoðun
Fréttamynd

Breið­holt Got Talent

Breiðholt Got Talent er hæfileikakeppni barna og unglinga í Breiðholti og sameiginlegt verkefni frístundaheimilanna og félgasmiðstöðvanna í hverfinu. Keppnin fór fram síðasta föstudag og þar fengum við að sjá allt frá söng, dansi, sirkusatriðum yfir í trommuslátt og uppistand.

Skoðun
Fréttamynd

Hvað getur frí­stunda­heimili gert fyrir barnið þitt?

Yfir 90% barna í fyrsta og öðrum bekk í Reykjavík fara í frístundaheimili eftir að skóla lýkur og sambærilega sögu má segja um mörg önnur sveitarfélög. Stór hluti barna í þriðja og fjórða bekk sækir einnig starfið Frístundaheimili eins og við þekkjum þau í dag eiga ekki langa sögu en hafa tekið stórum framfaraskrefum á síðustu árum.

Skoðun
Fréttamynd

Frístundastarf mikil­væg stoð í mennta­kerfi Reykja­víkur­borgar

Frístundaheimili og félagsmiðstöðvar skipa stóran sess í lífi barna og unglinga í Reykjavík. Borgin hefur um árabil verið í forystu í þróun frístundastarfs og byggt upp faglegt starf sem nær til stórs hluta barna og unglinga. Árangurinn byggir á markvissri stefnu og öflugum mannauði sem hefur velferð barna að leiðarljósi.

Skoðun
Fréttamynd

Fyrirsjáanleiki í frístundastarfi

Öruggt og stöðugt starfsumhverfi í frístundastarfi í Reykjavík er forsenda þess að hægt sé að veita faglega þjónustu og byggja upp starfsferil. Þess vegna er óásættanlegt að óvissa um mönnun frístundaheimila skapist ár eftir ár.

Skoðun
Fréttamynd

Skrifin séu ekki til komin vegna fram­boðs í borginni

Nýleg skrif leikarans Þorvaldar Davíðs Kristjánssonar um skólamál og þjónustu við börn og barnafjölskyldur í Reykjavík hafa vakið spurningar um hvort leikarinn góðkunni sé á leið í framboð. Samkvæmt heimildum fréttastofu hefur Þorvaldur verið nefndur sem mögulega efnilegur framboðskostur fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Reykjavík en sjálfur segist leikarinn ekki vera að stefna á framboð.

Innlent
Fréttamynd

Þriðjungur telur sumar­frí grunnskóla­barna of langt

Rúmlega helmingi landsmanna finnst sumarfrí grunnskólanema vera hæfilega langt á meðan þriðjungur telur það vera of langt og 16 prósent of stutt. Marktækt fleiri körlum en konum finnst sumarfríið vera of stutt en 35 prósentum þeirra finnst það of stutt og 31 prósent kvenna. Tuttugu prósent karla vilja lengja það en aðeins tólf prósent kvenna.

Innlent
Fréttamynd

Manneklan er víða

Mikið hefur verið rætt um manneklu á leikskólum en minna fer fyrir umræðu um manneklu í frístundastarfi.

Skoðun
Fréttamynd

Á­fram Breið­holt og Kjalar­nes!

Þátttaka barna og ungmenna í íþróttum og öðru skipulögðu frístundastarfi hefur aukist eftir að við hækkuðum frístundastyrkinn í Reykjavík um helming, úr 50 þúsund í 75 þúsund fyrir hvert barn í upphafi þessa kjörtímabils.

Skoðun
Fréttamynd

„Þau sakna vina sinna og finnst erfitt að keppa á móti þeim“

Eldsumbrotin og náttúruhamfarirnar í nágrenni Grindavíkur hafa gjörbreytt öllu íþróttastarfi hjá Ungmennafélagi Grindavíkur. Stelpur sem spiluðu saman á Símamótinu í fyrra eru nú í þeirri stöðu að þurfa að spila á móti vinkonum sínum og fyrrum liðsfélögum. Faðir einnar stelpunnar segir það mjög erfitt fyrir þær.

Fótbolti
Fréttamynd

Er handa­hlaup valdeflandi?

Hvað byggir upp trú á eigin getu? Það liggur í augum uppi að með því að geta gert hluti þá eykur nemandi trú á eigin getu. En til þess að geta hlutina þarftu að læra hvernig á að leysa þá af hendi og æfa þig.

Skoðun
Fréttamynd

Versta og besta nýtingin á frístundakortinu á Kjalar­nesi

Mesta nýtingin á frístundakorti Reykjavíkur er meðal drengja á Kjalarnesi, 92 prósent, og sú versta meðal stúlkna á Kjalarnesi en aðeins rúmur helmingur stúlkna þar nýtir styrkinn. Þar á eftir er nýtingin verst í Efra-Breiðholti þar sem 67 prósent drengja nýta það og 63 prósent stúlkna. Nýtingin hefur aukist frá því að styrkurinn var fyrst gerður aðgengilegur 2012 úr um 75 prósent að meðaltali í um 80 prósent að meðaltali.

Innlent
Fréttamynd

Rödd barna og ung­menna hunsuð í barnvænu sveitar­fé­lagi?

Ungmennaráð Akureyrar lýsir yfir miklum áhyggjum og vonbrigðum vegna nýlegra skipulagsbreytinga á félagsmiðstöðvastarfi í bænum. Breytingarnar fela í sér að öll starfsemi Félagsmiðstöðva Akureyrar (FÉLAK), þar á meðal Ungmennahúsið og Virkið, verður færð alfarið undir stjórn grunnskólanna í bænum.

Skoðun
Fréttamynd

Gleymdu að vanda sig

Þau sem stjórna hjá Akureyrarbæ tóku óskiljanlega ákvörðun ekki alls fyrir löngu, þau ráku allt starfsfólk félagsmiðstöðvanna og hafa, einhliða að því virðist, ákveðið að gera breytingar á starfinu af þeirri stærðargráðu að ekki er hægt að sitja þegjandi undir.

Skoðun
  • «
  • 1
  • 2