Hugleiðing á 1. maí. Steinar Harðarson skrifar 1. maí 2026 08:01 Í sjónvarpsþáttaseríunni Næturvaktin, sem sýnd var í sjónvarpi fyrir nokkrum árum, ber það við einn dag að félagarnir Ólafur Ragnar og Daníel standa einir vaktina. Stöðvarstjórinn, Georg Bjarnfreðarson, er í fríi og tekur þá þátt í kröfugöngunni 1. maí. Þegar hann kemur til baka á vinnustaðinn spyr Ólafur Ragnar hvort „ekki hafi verið gaman í skrúðgöngunni”? Georg bregst ókvæða við svo heimskulegri spurningu um skrúðgöngu. „Kröfuganga er allt annað. Það er þegar öreigar og vinnandi fólk sameinar krafta sína og krefst bættra kjara. Hvaðan heldur þú að þú hafir allt þetta fínerí sem þú hefur hér í vinnunni eins og heitt kaffi, mjúka stóla, slysatryggingar og vinnuvernd? Hvaðan heldurðu að það komi? Hélstu að vinnuveitandi þinn hefði af hjartagæsku sinni ákveðið að veita þér öll lífsins gæði? Hélstu að fyrirtækið væri svo snortið af nærveru þinni og persónutöfrum að þeir hefðu séð sig knúna til að gera allt sem í sínu valdi væri til að veita þér allar lífsins unaðssemdir? Nei, löngu fyrir þinn tíma fór vinnandi fólk í kröfugöngur og krafðist og barðist fyrir þeim þægindum sem þú í dag kallar sjálfsögð.” Ekki veit ég hvort höfundur Næturvaktarinnar hefur með ræðu Georgs ætlað að gera lítið úr hugmyndum þeirra sem styðja verklýðsbaráttu dagsins eða sögu baráttunnar á síðustu öld. En ræða Georgs er algjörlega sannleikanum samkvæmt. Barátta verkalýðshreyfingarinnar Flestar félagslegar umbætur síðustu aldar eru skilgetið afkvæmi verkalýðsbaráttunnar. Sú barátta var í byrjun og fram eftir 20. öldinni háð með blóði, svita og tárum. Örsauðir menn lögðu líf sitt að veði við að reyna að halda lífi í fjölskyldum sínum og tryggja framtíð barna sinna. Og það er rétt hjá Georg Bjarnfreðarsyni: Gangan á 1. maí hefur aldrei verið skrúðganga. Í göngunni 1. maí sameinast vinnandi fólk um kröfur sínar, um sanngjörn laun fyrir vinnuframlag, um félagslegt öryggi og réttlæti, um sanngjarnan skerf af þeim verðmætum sem samfélagið skapar. Í upphafi áttu þeir sem gengu kröfugöngu á hættu að verða fyrir árásum andsnúinna hópa, ofbeldi lögreglu eða jafnvel aðgerðum hersins. Mýmörg dæmi eru um blóðsúthellingar úr þeirri baráttu og fjölmargir verkamenn hafa fallið í átökum við fjandsamlegt ríkisvald og óbilgjarna atvinnurekendur. Eitt dæmið er frá Svíþjóð, landinu sem löngum var fyrirheitna land þeirra sem þrá félagslegt réttlæti og jöfnuð. Í Ådalen 14. maí 1931 mótmælti vinnandi fólk verkfallsbrotum sem atvinnurekendur stóðu fyrir. Herinn var kallaður til. Fjórir í mótmælagöngunni og einn áhorfandi féllu þegar herinn hóf skothríð. Blóð, sviti og tár. Þeir sem í dag eru að hefja þátttöku sína á vinnumarkaðnum þekkja mögulega ekki þessa sögu, eða fleiri sögur um hatramma baráttu fyrir eðlilegum og sjálfsögðum réttindum vinnandi fólks um allan heim, sögu um þrautseigju og fórnir þeirra sem lögðu allt undir í þessari baráttu fyrir réttlátara samfélagi, betri heimi. Úr sögu íslenskrar verkalýðshreyfingar eru mörg dæmi: Nóvudeilan, Borðeyrardeilan, Gúttóslagurinn. Sótt að réttindum Síðustu áratugi hefur nýfrjálshyggjan og markaðshyggjan sótt að réttindum vinnandi fólks, reynt markvisst að draga úr samtakamætti og samstöðu þeirra sem lifa á því að selja vinnu sína. Verkalýðsbaráttan hefur því að miklu leiti snúist um að standa vörð um áunnin réttindi. Slík barátta er ekki nærri því eins gefandi og ánægjulega eins og baráttan fyrir félagslegum framförum, betra lífi, betra samfélagi. Á síðustu árum hefur verið skipt um forystu í stórum, öflugum samtökum vinnandi fólks. Í málflutningi þessara nýju foringja hefur kveðið við annan, nýjan tón. Þar er ekki aðeins að finna kröfu um hærri laun til þeirra sem lægst hafa launin heldur líka um aukið félagslegt réttlæti, um húsnæði sem allir geti ráðið við hvort sem er til leigu eða eignar. Einnig kröfu um réttlátari skiptingu þjóðarkökunnar, um jöfnuð með réttlátara skattkerfi. Kröfu um að þeir sem bera mest úr býtum leggi sanngjarnan skerf til samneyslunnar. Þetta er ánægjuleg breyting á stefnu og áherslum og kveikir von um réttlátara samfélag, samfélag sem hæfir siðuðu fólki. Nýjar áskoranir fylgja sérstakri tegund af atvinnurekendum, þeim sem tilbúnir eru að níðast á starfsmönnum með félagslegum undirboðum. Félagsleg undirboð og launaþjófnaður, sem helst bitna á erlendum starfsmönnum, eru smánarblettur á Íslensku atvinnulífi. Þann blett verður verkalýðshreyfingin og stjórnvöld í sameiningu að hjálpast að við að þvo af samfélagi okkar. Það verður best gert með hertri vinnulöggjöf sem Alþingi verður að hafa forgöngu um. Það þarf líka að bregðast við af hörku vegna nýlegra hugmynda núverandi ríkisstjórnar um að stytta tímabil atvinnuleysisbóta og lengja starftímann sem skapar rétt til bóta. Nokkrir þingmenn, sem nú sitja á þingi, hafa gengt forystuhlutverki í verkalýðshreyfingunni. Þeir verða nú að sýna úr hverju þeir eru gerðir. Höfundur er í 10. sæti Vinstrisins í Reykjavík Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Verkalýðsdagurinn Kjaramál Mest lesið Halldór 03.10.2026 Agnar Már Másson Halldór Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt skrifar Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir skrifar Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir skrifar Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar