Wembanyama varði skot yfir spjaldið og sendi Portland í sumarfrí Ágúst Orri Arnarson skrifar 29. apríl 2026 14:00 Menn komast ekki svo auðveldlega að körfunni þegar Victor Wembanyama stendur í teignum. Ronald Cortes/Getty Images Victor Wembanyama var allt í öllu er San Antonio Spurs unnu einvígi í NBA úrslitakeppninni í fyrsta sinn í níu ár.
Spurs unnu sannfærandi 114-95 sigur gegn Portland Trail Blazers í nótt eftir að hafa leitt mest með 28 stigum í leiknum. 4-1 sigur í einvíginu skaut Spurs áfram í undanúrslit vesturdeildarinnar en þangað hefur liðið ekki komist síðan árið 2017. Wembanyama skilaði 17 stigum og 14 stoðsendingum á tölfræðiskýrsluna en varið skot hans undir lok fjórða leikhlutans vakti mesta athygli. Deni Avdija reyndi að minnka muninn fyrir Portland Trail Blazers sem voru 15 stigum undir en Wembanyama varði skotið svo grimmilega að boltinn flaug yfir spjaldið og upp í stúku. Meira að segja Félix Wembanyama, faðir Victors sem lætur sér vanalega fátt um finnast, gat ekki annað en rekið upp stór augu. Geimveran er greinilega búin að jafna sig vel af höfuðhögginu sem hann fékk í leik tvö. WEMBY SENDS IT TO SPACE 👽Even his dad couldn't believe the block. pic.twitter.com/y8utrhoxuF— ESPN (@espn) April 29, 2026 Í austurdeildinni var annar miðherji sem stal fyrirsögnum. Joel Embiid sneri aftur eftir botnlangatöku og skoraði 33 stig í 113-97 sigri Philadelphia 76ers gegn Boston Celtics. 76ers héldu sér á lífi með þessum sigri en eru 3-2 undir í seríunni. Celtics geta klárað einvígið á heimavelli í næsta leik en gera það væntanlega ekki ef þeir klikka á síðustu fjórtán skotum leiksins, eins og þeir gerðu í nótt. Joel Embiid in Game 5 win vs. Celtics:33 PTS8 AST4 REB1 BLK12-23 FGin 39 MIN18 PTS on 7-10 FG in 2nd half.Sixers force series back to Philly for Game 6.pic.twitter.com/TbjCQaf0kZ— Underdog NBA (@UnderdogNBA) April 29, 2026
NBA Mest lesið Gunnlaugur Árni fyrstur karla til að tryggja sig inn á U.S. Open Golf Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Körfubolti Markvörður í slagsmálum rétt fyrir vítaspyrnukeppni Fótbolti Fyrrum Liverpool-stjarna hættur aðeins 31 árs gamall Enski boltinn Af hverju vildu Messi og félagar fá Ísland? Fótbolti Gunnlaugur Árni í bráðabana um laust sæti á U.S. Open Golf Rice verður varafyrirliði enska landsliðsins á HM Fótbolti Skotar svara fyrir sig eftir norskar ásakanir um svikin loforð Fótbolti Wiegman sendi kveðju til Íslands: „Gangi ykkur vel“ Fótbolti Ögmundur í Víking og Ingvar hlaut lengri samning Íslenski boltinn Fleiri fréttir Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Sjá meira