Hvers vegna eru vextirnir lágir, Dagur? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar 1. maí 2026 07:16 Vægast sagt mjög sérstakt er að lesa greinar eftir Dag B. Eggertsson, þingmann Samfylkingarinnar og fyrrverandi borgarstjóra Reykjavíkur, þar sem hann kallar eftir því að Ísland gangi í Evrópusambandið til þess að fá minni verðbólgu og lægri vexti þegar fyrir liggur að stærsta ástæðan fyrir verðbólgunni og vöxtunum hér á landi á undaförnum árum hefur verið mikill skortur á byggingalóðum og þá einkum og sér í lagi í höfuðborginni sem hann stýrði árum saman. Meirihlutinn í Reykjavík undir forystu Dags, þar til hann fór í landsmálin fyrir um einu og hálfu ári síðan, fylgdi þeirri stefnu sem kunnugt er að eingöngu mætti þétta byggð, sem aldrei gat staðið undir nema litlum hluta af eftirspurninni eftir húsnæði, í stað þess að skipuleggja ný hverfi. Vegna stærðar sinnar hefur Reykjavík vegið þar langþyngst. En Dagur neitar að horfa í eigin barm heldur kýs að kenna krónunni, sem úthlutar ekki byggingalóðum, um þetta allt saman. Fullyrðingar um að krónan beri ábyrgð á vöxtum og verðbólgu hér á landi standast einfaldlega ekki skoðun. Þetta hafa ófáir hagfræðingar bent á. Þar skipti fyrst og fremst máli sú efnahagslega umgjörð sem sköpuð hafi verið í kringum gjaldmiðilinn en ekki hann sjálfur. Meira að segja Gylfi Magnússon viðskiptafræðiprófessor, sem lengi hefur verið mikill Evrópusambandssinni, hefur viðurkennt þetta eins og til að mynda í samtali við DV í desember síðastliðnum. Varðandi gjaldmiðlamálið sagði Gylfi þannig að því fylgdu vissulega kostir að vera með stóran og stöðugan gjaldmiðil en á sama tíma fylgdu því einnig kostir að hafa lítinn og sveigjanlegan gjaldmiðil. „Og ástæða þess að vextir eru eitthvað hærri hér og hafa sögulega verið heldur en í nágrannalöndunum eða Bandaríkjunum er kannski ekki það endilega að við erum með sjálfstæðan gjaldmiðil heldur það að við höfum ekki haldið neitt sérstaklega vel á spilunum.“ Til þess að taka upp evruna, eftir inngöngu í Evrópusambandið með öllu sem henni fylgdi, þyrfti fyrst að uppfylla meðal annars þau skilyrði að koma bæði verðbólgunni og vöxtunum á betri stað. Með öðrum orðum yrði sjúklingurinn fyrst að læknast áður en hann gæti tekið hið meinta meðal sem fullyrt er að lækni hann. Hver er þá tilgangurinn með meðalinu eins og Guðmundur Ragnarsson, fyrrverandi varaþingmaður Viðreisnar, benti á í grein á Vísi á síðasta ári? Dagur hefur annars vitanlega ekkert minnzt á helztu ástæðuna fyrir lágum stýrivöxtum seðlabanka Evrópusambandsins sem er viðvarandi efnahagsleg stöðnun víðast hvar á evrusvæðinu með tilheyrandi skorti á hagvexti og framleiðni og miklu atvinnuleysi. Einkum á meðal ungs fólks. Þetta er hinn meinti stöðugleiki sem hann og fleiri Evrópusambandssinnar tala gjarnan um. Stöðnun felur jú í sér ákveðinn stöðugleika en ekki sérlega eftirsóknarverðan. Höfundur er sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur (MA í alþjóðasamskiptum) og heldur úti vefsíðunni Stjornmalin.is. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson Skoðun Ástkæra, ylhýra, orðljóta málið… mitt Íris Erlingsdóttir Skoðun Óviss um ESB? Segðu nei Jón Ívar Einarsson Skoðun Segðu bara nei við sölumanninn Egill Gautason Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson Skoðun Sagan endurtekur sig Daði Már Kristófersson Skoðun Lágir vextir og lágt vöruverð? Reynir Zoëga Skoðun Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson Skoðun Hvaða ákvæði læknasamningsins voru mistök? Steinunn Þórðardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Ástkæra, ylhýra, orðljóta málið… mitt Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson skrifar Skoðun Lágir vextir og lágt vöruverð? Reynir Zoëga skrifar Skoðun Óviss um ESB? Segðu nei Jón Ívar Einarsson skrifar Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Segðu bara nei við sölumanninn Egill Gautason skrifar Skoðun Sagan endurtekur sig Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Viltu hætta á samsekt í þjóðarmorði eða stríðsrekstri fyrir hagnað annarra? Bergljót T. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Í krónuklóm Jón Bragi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Landsvirkjun, „Ísland allt“ og óvissan um ESB-aðild Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Breytt heimsmynd Sigurgeir Jónasson skrifar Skoðun Komin með nóg af umræðu um ESB? Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Við höfum engu að tapa – þess vegna segi ég já Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Nýr samfélagssáttmáli: Lífeyrissjóðir, bankakerfi og afnám verðtryggingar — raunhæf leið til stöðugleika í kjarasamningum og styrkingar lánshæfismats Íslands Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Ísland og evran Höskuldur Einarsson skrifar Skoðun Gosi og gylliboðin Kristín Thoroddsen skrifar Skoðun Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson skrifar Skoðun Spánverjar vilja íslenskan sjávarútveg Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Fólkið eða peningarnir? Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Stöndum vörð um...hvað? Ingibjörg Rósa Björnsdóttir skrifar Skoðun Hvaða ákvæði læknasamningsins voru mistök? Steinunn Þórðardóttir skrifar Skoðun Fullveldi hvað Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Nei er ókei Ágúst Valves Jóhannesson skrifar Skoðun Hvað ef? Pétur B. Sveinsson skrifar Skoðun Húsnæðisvextir lækka ekki sjálfkrafa með evru Magnús B. Jóhannesson skrifar Skoðun Mun ESB hjálpa við vegagerð á Íslandi? Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Við erum í partíinu en megum ekki velja lag Árni Páll Jónsson skrifar Skoðun Með öllum mjalla? Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Fyrsti steinninn úr múrnum – af hverju ég segi já Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Viltu hætta á samsekt í þjóðarmorði eða stríðsrekstri fyrir hagnað annarra? Bergljót T. Gunnlaugsdóttir skrifar
Skoðun Nýr samfélagssáttmáli: Lífeyrissjóðir, bankakerfi og afnám verðtryggingar — raunhæf leið til stöðugleika í kjarasamningum og styrkingar lánshæfismats Íslands Eggert Guðmundsson skrifar
Skoðun Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson skrifar