Virðum vinnu listafólks Jóna Hlíf Halldórsdóttir skrifar 1. maí 2026 07:47 Á alþjóðlegum baráttudegi verkalýðsins, 1. maí, er lögð áhersla á grundvallarrétt fólks til sanngjarnra kjara og virðingar fyrir störfum sínum. Nú í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga lagði Bandalag íslenskra listamanna fyrir stjórnmálaflokka um allt land spurningarlista. Ein af lykilspurningunum laut að kjörum listafólks og var svohljóðandi: Mun þinn flokkur tryggja að listafólk og hönnuðir fái sanngjarna greiðslu fyrir vinnu sína í verkefnum á vegum sveitarfélagsins? Í ljósi þess að kosningar eru framundan og dagurinn í dag er helgaður réttindum vinnandi fólks er við hæfi að rifja upp herferðina „Við borgum myndlistarmönnum“, sem Samband íslenskra myndlistarmanna setti af stað árið 2015 með það að markmiði að tryggja að myndlistarfólk fengju greitt fyrir vinnu sína. Þungamiðja herferðarinnar var að kynna og innleiða samning um þátttöku og framlag myndlistarfólks til sýningarhalds í opinberum listasöfnum og öðrum sýningarrýmum sem fjármögnuð eru af opinberu fé. Átakið spratt upp úr skýru ákalli um að íslenskt myndlistarfólk nyti sambærilegra kjara og kollegar þeirra á Norðurlöndum. Þar hefur myndlistarfólk um árabil fengið annars vegar þóknun fyrir afnot verka á grundvelli höfundarréttar og hins vegar greiðslu fyrir vinnuframlag. Hér á landi hafði myndlistarfólk hins vegar lengi unnið að sýningum án slíkrar sýningarþóknunar og án formlegra samninga, þrátt fyrir að verk þeirra væru kjarninn í starfsemi listasafna. Herferðin markaði tímamót. Hún breytti orðræðu, jók meðvitund og lagði grunn að því að greiðslur til myndlistarfólks yrðu viðurkenndur hluti af rekstri safna. En hver er staðan í dag Samband íslenskra myndlistarmanna, í samstarfi við Bandalag íslenskra listamanna og félagsnet myndlistarmanna innan vébanda Visku, stóð nýlega fyrir gagnaöflun til að kanna þróun greiðslna til myndlistarfólks. Safnað var upplýsingum frá listasöfnum landsins um launaþróun síðastliðin þrjú ár og hvort greiðslur væru í samræmi við sett viðmið. Niðurstöðurnar sýna skýrt misræmi milli samþykktra viðmiða og raunverulegra greiðslna. Flest listasöfn starfa samkvæmt verklagsreglum sem hafa verið samþykktar af borgar- eða bæjarráði og kveða á um að greiðslur skuli vera í samræmi við taxta SÍM. Gagnasöfnunin bendir þó til þess að þessum reglum sé ekki fylgt í öllum tilvikum. Þá hafa taxtar víða staðið í stað; í sumum tilvikum er enn greitt sama tímakaup og árið 2016, eða 6.500 krónur á tímann, þrátt fyrir að tímakaup samkvæmt taxta SÍM sé í dag 13.016 krónur. Hér er um verktakagreiðslur að ræða og myndlistarfólk þarf því sjálft að greiða launtengd gjöld, sem geta numið allt að 48%. Þetta er áhyggjuefni og kallar á að komið verði á keðjuábyrgð sem tryggir að reglunum sé fylgt eftir. Keðjuábyrgð fyrir listafólk Ábyrgðin liggur hjá eigendum listasafna að tryggja sanngjörn kjör, en safnstjórar bera jafnframt ábyrgð á að fylgja samþykktum verklagsreglum og sækja um viðbótarfjárveitingar þegar þess er þörf. Þegar fjárheimildir duga ekki er óásættanlegt að greiðslur til myndlistarfólks standi í stað árum saman á meðan önnur laun innan listasafna og í samfélaginu hækka. Mikilvægt er að benda á að mörg listasöfn setja tímamörk á uppsetningarvinnu myndlistarfólks og greiða einungis fyrir átta vinnustundir, óháð umfangi verka. Þetta leiðir til þess að myndlistarfólk sem vinnur að umfangsmiklum sýningum fær ekki greitt í samræmi við raunverulegt vinnuframlag. Þá eru einnig dæmi um að listasöfn kveði á um í samningum að myndlistarfólk komi ekki að uppsetningu verka sinna, sem er sérstaklega gagnrýnisvert í tilvikum innsetninga og nýrra verka þar sem aðkoma myndlistarfólks er nauðsynleg. Í ljósi þess að listasöfn fara ekki í öllum tilvikum eftir eigin verklagsreglum er brýnt að innleiða keðjuábyrgð, þar sem opinberir styrkir og samningar eru bundnir því skilyrði að greiðslur séu í samræmi við viðurkennd viðmið. Með slíkum skilyrðum má draga úr aðstöðumun, styrkja samningsstöðu listafólks og tryggja að opinber fjárstuðningur stuðli að réttlátu og sjálfbæru starfsumhverfi. Með þessari útfærslu yrði opinberu fé markvisst beitt til að tryggja eftirfylgni. Til þess að listasöfn geti sótt um styrki úr safnasjóði eða öðrum opinberum sjóðum og komið til greina við veitingu safnaverðlauna þarf að gera það að skilyrði að þau greiði myndlistarfólki samkvæmt viðmiðum SÍM. Þannig yrði ábyrgðin innbyggð í kerfið sjálft, ekki valkvæð heldur skilyrði. Virðum vinnu listafólks Herferðin „Við borgum myndlistarmönnum“ lagði mikilvægan grunn og breytti umræðunni. En til að raunveruleg breyting eigi sér stað þarf að tryggja að reglur séu virtar í framkvæmd. Listir eru órjúfanlegur hluti af samfélaginu. Þær eru vettvangur tjáningarfrelsis, móta sjálfsmynd okkar sem þjóðar og skapa rými fyrir samtal, gagnrýni og nýjar hugmyndir. Í gegnum listir speglum við samtímann og víkkum sjóndeildarhringinn. Ef við viljum að listir séu sjálfbær atvinnugrein verðum við að tryggja að listafólk fái greitt fyrir vinnu sína, að það hafi raunverulegt aðgengi að eigin verkferli og að opinbert fé styðji við sanngjörn kjör. Til að íslenskt samfélag geti áfram notið lifandi og öflugrar myndlistar þarf að taka starfsumhverfi listafólks alvarlega. Það krefst raunverulegrar fjárfestingar, ekki aðeins í orði heldur á borði, og viðurkenningar á því að listir séu ekki aukaatriði, heldur nauðsynlegur hluti af sjálfbæru samfélagi. Borgum listafólki fyrir vinnu sína og verum samfélag sem virðir störf allra. Gleðilegan 1. maí. Höfundur er forseti Bandalags íslenskra listamanna. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Verkalýðsdagurinn Stéttarfélög Mest lesið Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir Skoðun Gætum við haft það betra? Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Að gera illt verra - Verðbólgan og ábyrgð stjórnvalda Jón Ferdínand Estherarson Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson Skoðun Íslenski hesturinn og ESB: Hræðsluáróður eða raunveruleg hætta? Begga Rist Skoðun Skoðun Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Hver ætlar að hafa augun á boltanum? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Brexit rútan mætt til Íslands! Andrés Pétursson skrifar Skoðun Að gera illt verra - Verðbólgan og ábyrgð stjórnvalda Jón Ferdínand Estherarson skrifar Skoðun Íslenski hesturinn og ESB: Hræðsluáróður eða raunveruleg hætta? Begga Rist skrifar Skoðun Landbúnaður og matvælaverð – Framtíðar þróun Guðjón Sigurbjartsson skrifar Skoðun Þegar stjórnvöld og stórfyrirtæki standa ekki við orð sín Jóhann Helgi Stefánsson,Jón Helgi Björnsson skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar
Skoðun Þegar stjórnvöld og stórfyrirtæki standa ekki við orð sín Jóhann Helgi Stefánsson,Jón Helgi Björnsson skrifar