Styrkur okkar er velferð allra Finnbjörn A. Hermannsson skrifar 1. maí 2026 11:31 Á 1. maí, baráttudegi launafólks, fögnum við því að íslenskt samfélag stendur á sterkum grunni. Sá grunnur er ekki tilviljun. Hann byggir á baráttu kynslóðanna; á dugnaði, fórnfýsi og hugsjónum þeirra sem á undan okkur fóru. Velferðarsamfélag nútímans er afrakstur þessa fólks, bein afleiðing einbeitts vilja til breytinga og framfara í nafni lífsgæða sem einkennt hefur alla sögu íslenskrar verkalýðshreyfingar. Við, almenningur í landinu, berum ábyrgð á að verja það sem áunnist hefur og til þessarar skuldbindingar okkar vísar yfirskrift dagsins: Styrkur okkar er velferð allra. Þetta er ekki slagorð. Þessi orð lýsa grundvelli samfélags sem skilað hefur almenningi á Íslandi lífskjörum sem standast samanburð við þau sem best þekkjast í heiminum. Orðin lýsa í senn þeirri hugsjón og sannfæringu að velferð allra sé forsenda jöfnuðar, stöðugleika og raunverulegra framfara. Um leið birta þau þá sögulegu staðreynd að styrkur og samstaða launafólks er eitt frumskilyrði velferðar þjóðarinnar og þess árangurs sem náðst hefur. Regluleg aðför að launafólki Það er gömul saga og ný að jafnan eru á ferð stjórnmálamenn og aðrir fulltrúar sérhagsmuna sem leitast við að grafa undan því sem áunnist hefur, oftar en ekki í því skyni að færa auðinn í hendur fárra og útvaldra. Ein kunnugleg birtingarmynd þessa hefur verið afar skýr á undangengnum árum. Þegar efnahagslegir erfiðleikar ríða yfir er þess gætt að byrðunum sé ekki dreift af sanngirni. Þvert á móti er farið eftir þeirri rótgrónu kennisetningu íslenskra stjórnmála að launafólk skuli jafnan bera kostnaðinn, líka þegar ákvarðanir valdhafa ganga augljóslega gegn hagsmunum almennings. Þessu hefur verið lýst sem „reglulegri aðför“ að íslensku launafólki þegar því er gert að standa undir kostnaði vegna óstjórnar og lélegra ákvarðana. Afleiðingin er sú að traustið rofnar. Margir, og þeim fer fjölgandi, telja litlu skipta hverjir fari með völdin hverju sinni. Kjarni stefnunnar sé jafnan sá sami; undirgefni við sérhagsmuni og fjármagnsöfl og almenningur sitji uppi með reikninginn. Slík framganga er ekki aðeins óréttlát. Hún er beinlínis hættuleg þar sem hún grefur undan lýðræðinu, raskar stöðugleika og getur af sér félagslega spennu. Versnandi hagur almennings, þrálát verðbólga, okurvextir og húsnæðiskreppa eru enn ein staðfesting þessa leiðarstefs íslenskra stjórnmála. Og þá er enn og aftur gripið til þess ráðs að kenna verkalýðshreyfingunni um ófremdarástandið því kaupkröfur hennar séu líkt og venjulega úr öllu hófi. Þessi málflutningur stenst einfaldlega enga skoðun. Lausnin er ekki síður kunnugleg; það þarf að þrengja að almenningi, hækka vexti, þyngja álögur, bæta enn í gjöldin. Engu skiptir þótt hávaxtastefna seðlabankans hafi augljóslega ekki skilað því sem að var stefnt. Ráðamenn sem lýst hafa því yfir að verðbólgan verði barin niður með handverkfærum eða vinnuvélum æsa bálið með fráleitum skatta- og gjaldahækkunum á almenning í landinu. Síðan lýsa þessir fulltrúar þjóðarinnar yfir furðu sinni og vonbrigðum þegar verðbólgan tekur enn eitt og algjörlega fyrirséð hástökk beinlínis vegna ákvarðana þeirra. Svo herðir seðlabankinn enn á vaxtaskrúfunni. Núverandi ríkisstjórn hefur nú tækifæri að fara ótroðnar slóðir og hafa almenning í landinu í fyrsta sæti við úrlausn efnahagsmála. Hernaður ógnar afkomu og stöðugleika Nú eru blikur á lofti í íslenskum efnahagsmálum. Áhrifa hernaðar, óvissu og óstöðugleika á alþjóðavettvangi gætir þegar hér á landi. Líkur eru á að samdráttarskeið sé hafið sem mun koma sérlega illa við hið útflutningsdrifna hagkerfi Íslendinga. Leiði hernaður Trump Bandaríkjaforseta við Persaflóa til heimskreppu munu allar forsendur ríkisfjármála fjúka út í buskann, hér sem annars staðar. Ærin ástæða var fyrir að verkalýðshreyfing, atvinnurekendur og fulltrúar ríkisvaldsins settust á rökstóla í því augnamiði að bregðast við verðbólgu, ofsavöxtum og linnulausum verðhækkunum sem m.a. ógna forsendum kjarasamninga. Nú hefur bandaríska heimsveldið efnt til ófriðar sem að líkindum gerir þetta verkefni enn brýnna og erfiðara. Þá munu dyggir þjónar íslensku nýfrjálshyggjunnar hefja upp raust sína á ný og heimta niðurskurð og markaðsvæðingu í velferðarkerfinu. Launafólk þarf að búa sig undir tvíþætta baráttu; að verja það sem fyrir er og takast á við það sem er í vændum sökum ytri aðstæðna. Miklu skiptir að fólkið í landinu hafni með öllu þeirri nálgun fjármagnsaflanna að velferðin sé vandi sem aðkallandi sé að leysa. Sú sýn til samfélags og meðborgara er sannarlega nöturleg enda liggur fyrir að velferðin er kjarni hins norræna samfélagslíkans sem víðtæk sátt er um að hafi reynst vel og mjög margar þjóðir horfa til sem fyrirmyndar. Velferðin er forsenda jöfnuðar, öryggis og samheldni. Án velferðar mygla undirstöður samfélagsins hratt. Varðstaða um velferð Við vitum hvert verkefnið er. Við munum verja af hörku þau gildi sem liggja íslenskri velferð til grundvallar. Við munum einnig halda uppi vörnum fyrir þau réttindi sem standa eiga öllum til boða. Heilbrigðisþjónusta, menntun og sameiginlegir innviðir eru ekki vörur á markaði. Það er rafmagnið ekki heldur frekar en vatnið, loftið, hitinn, landið og aðrar auðlindir þjóðarinnar. Á samdráttartímum eykst enn ásókn braskara í auðlindir og innviði þjóðarinnar. Miklu skiptir að almenningur haldi vöku sinni. Verkalýðshreyfingin mun ekki bila á þeirri vakt. Hún mun sem fyrr treysta á afl sitt og samstöðu sem reynst hefur þjóðinni svo vel. Því styrkur okkar er velferð allra. Missum ekki sjónar á því. Gleðilegan baráttudag! Höfundur er forseti Alþýðusambands Íslands (ASÍ). Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Finnbjörn A. Hermannsson Verkalýðsdagurinn Kjaramál Mest lesið Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Gætum við haft það betra? Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Já við fleiri verkfærum fyrir byggðir landsins Arna Lára Jónsdóttir Skoðun Að gera illt verra - Verðbólgan og ábyrgð stjórnvalda Jón Ferdínand Estherarson Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Skoðun Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Hver ætlar að hafa augun á boltanum? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Brexit rútan mætt til Íslands! Andrés Pétursson skrifar Skoðun Að gera illt verra - Verðbólgan og ábyrgð stjórnvalda Jón Ferdínand Estherarson skrifar Skoðun Íslenski hesturinn og ESB: Hræðsluáróður eða raunveruleg hætta? Begga Rist skrifar Skoðun Landbúnaður og matvælaverð – Framtíðar þróun Guðjón Sigurbjartsson skrifar Skoðun Þegar stjórnvöld og stórfyrirtæki standa ekki við orð sín Jóhann Helgi Stefánsson,Jón Helgi Björnsson skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar
Skoðun Þegar stjórnvöld og stórfyrirtæki standa ekki við orð sín Jóhann Helgi Stefánsson,Jón Helgi Björnsson skrifar