Eru heimgreiðslur verkfæri djöfulsins? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar 4. maí 2026 08:03 Hvað á foreldri að gera þegar fæðingarorlofi lýkur en ekkert dagvistunarpláss er í boði? Og hvað ætlar borgin að gera til að mæta fjölskyldum sem lenda í þeirri stöðu? Því miður hefur verið fátt um svör frá borginni og þeim flokkum sem hafa ítrekað keppt um að lofa kjósendum leikskólaplássi fyrir 12 mánaða börn, án þess að standa við það. Stundum virðast slík loforð jafnvel gleymast um leið og kosningum lýkur. Við í Framsókn viljum bjóða foreldrum upp á heimgreiðslur til að brúa bilið frá því að fæðingarorlof líkur og dagvistun hefst. Tillaga þess efnis var felld af Samfylkingu, Vinstri grænum (núverandi Vinstrið), Sósíalistum, Flokki fólksins, Pírötum og Viðreisn sem virðast ætla að skila auðu þegar að kemur að því að brúa þetta erfiða tímabil frá því að fæðingarorlofi lýkur þar til að dagvistun hefst. Horfum á staðreyndirnar Nú bíða nokkur hundruð börn í Reykjavík eftir dagvistun. Á bakvið þessi börn eru fjölskyldur sem standa frammi fyrir raunverulegum vanda þegar fæðingarorlofi lýkur og enga dagvistun er að fá. Bilið frá lokum fæðingarorlofs fram að dagvistun hefur veruleg áhrif á fjárhagsstöðu heimila og möguleika foreldra til að mæta aftur vinnu með tilheyrandi áhyggjum af því að ná endum saman. Reikningar vegna húsnæðislána og húsaleigu halda nefnilega áfram að berast þótt dagvistun fáist ekki. Ég horfi á þessa stöðu með alvarlegum augum og vil leggja mín lóð á vogarskálarnar til þess að styðja við foreldra sem hafa lokið fæðingarorlofi og komast ekki út á vinnumarkaðinn vegna skorts á dagvistun. Hvað erum við að tala um? Heimgreiðslur eru greiðslur til foreldra til að létta róður heimilanna á meðan borgin fjölgar leikskólaplássum. Þrátt fyrir tilboð stjórnmálaflokkanna um leysa leikskólavandann strax þá vitum við að leikskólaplássum mun ekki fjölga um mörg hundrað á einu ári og á meðan bíða foreldrar í fjárhagslegri spennitreyju. Hvort er betra að foreldrar séu heima án tekna eða fái greiðslur sem að hjálpa til við að halda heimilisbókhaldinu réttu megin við núllið? Eru heimgreiðslur kvennagildra? Spennitreyjan sem vöntun á plássum skapar bitnar einna helst á konum sem eru líklegri til að taka lengra leyfi frá vinnu. Þannig birtast kynbundin áhrif dagvistunarvandans. Að tala um heimgreiðslur sem kvennagildru byggir á þeirri forsendu að foreldrar hafi raunverulegt val um að senda barn í leikskóla en kjósi þess í stað að vera heima gegn greiðslu. En hér er staðan önnur. Foreldrar eru þegar heima vegna þess að þau fá ekki dagvistun. Það er hin raunverulega kvennagildra. Heimgreiðslur myndu milda tekjutapið sem myndast á meðan beðið er eftir dagvistun. Með því að skilyrða greiðslurnar við virka umsókn um dagvistun er jafnframt dregið úr hættu á því að þær verði varanlegt úrræði í stað leikskóladvalar. Markmiðið er því að styðja við foreldra á meðan borgin getur ekki veitt þá þjónustu sem hún hefur lofað. En við eigum vera með fókusinn á leikskólum Leikskólinn skiptir gríðarlegu máli fyrir menntun, þroska og félagslega stöðu barna. Hann er líka ein mikilvægasta forsenda jafnrar atvinnuþátttöku foreldra. Auðvitað er okkar helsta forgangsmál að byggja upp leikskólakerfið en við getum ekki endalaust selt foreldrum barna þá hugmynd að þau verði að bíða eftir framtíðinni þegar börnin þeirra eru komin í grunnskóla og borgin loksins búin að tryggja 12 mánaða börnum leikskólavist. Raunveruleiki dagsins í dag er sá að börnin þeirra eru án dagvistunar. Fyrir kosningarnar árið 2022 lofaði Samfylkingin öllum 12 mánaða börnum leikskólavist við lok árs. Erum við ósammála því markmiði, nei. Hefur það gengið eftir, nei. Vegna þess að það tekur tíma að brúa bilið. Við verðum að horfast í augu við raunveruleikann. Það er óraunhæft að ætla að 12 mánaða börn komist öll í dagvistun í bráð, jafnvel þótt byggingar rísi og rekstrarfé sé tryggt. Það þarf líka starfsfólk og leikskólakennara og sú mikilvæga stétt er ekki mönnuð á einni nóttu. Drögum samtalið niður í raunveruleika dagsins í dag en verðum á sama tíma með skýra framtíðarsýn um enga biðlista eftir leikskólavist. Við eigum að horfa til fjölbreyttra lausna til að mæta foreldrum ungra barna. Framsókn vill byggja upp leikskólakerfið, semja við vinnustaði og félagasamtök sem vilja opna leikskóla og efla dagforeldrakerfið. En á meðan foreldrar bíða eftir dagvistun eigum við að bjóða upp á heimgreiðslur til að létta róður heimilina sem eru á biðlista dagsins í dag. Heimgreiðslur eru ekki verkfæri djöfulsins. Þær eru tímabundinn stuðningur við foreldra sem bíða eftir dagvistun. Þetta snýst um borgarbúa. Leysum vandann saman. Setjum X við B. Höfundur er í 2. sæti á lista Framsóknar í Reykjavík Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Framsóknarflokkurinn Leikskólar Skóla- og menntamál Börn og uppeldi Magnea Gná Jóhannsdóttir Mest lesið Að velja evruna fyrir sig en krónuna fyrir okkur hin Þórður Snær Júlíusson Skoðun Evrópusambandið og heilbrigðismál - saman værum við sterkari Alma D. Möller Skoðun „Þið þurfið stærri bát“ Erlingur Erlingsson Skoðun Bæjarráð Hveragerðis krefst svara frá ríkinu um strætó Lárus Jónsson Skoðun Hvar eru eigendur Icelandair? Kjartan Björgvinsson Skoðun Ert þú þessi hálfviti? Guðrún Tinna Ólafsdóttir Skoðun Kosturinn sem er ekki á kjörseðlinum Egill Gauti Þorkelsson Skoðun Þegar Ólafur Ragnar Grímsson vísar veginn Einar Páll Svavarsson Skoðun Hvar liggur ábyrgðin? Guðrún Ebba Ólafsdóttir Skoðun Það sem raunverulega skiptir máli fyrir fólkið í landinu Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Skoðun Skoðun Já, fyrir vísindi, nýsköpun og menningu Logi Einarsson skrifar Skoðun Viltu minni verðbólgu og lægri vexti? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sirkussleggja forsætisráðherra sló í bjölluna Sveinn Óskar Sigurðsson skrifar Skoðun Evruna fyrir sig? Nei, Þórður Snær. Reikningsskil virka ekki þannig. Páll Steingrímsson skrifar Skoðun Hvernig bætum við lífsgæði síðustu 20-30 æviárin? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar Ólafur Ragnar Grímsson vísar veginn Einar Páll Svavarsson skrifar Skoðun Greining SFS. Hver er óttinn? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Þú þarft ekki að vera ESB-sinni til að segja já Baldur Johnson skrifar Skoðun Sama framtíðarsýn í Reykjavík og Brussel Ingvar Sverrisson skrifar Skoðun Réttindi barna til framtíðar Guðrún Pétursdóttir,Brynjar Bragi Einarsson skrifar Skoðun Bæjarráð Hveragerðis krefst svara frá ríkinu um strætó Lárus Jónsson skrifar Skoðun Evrópusambandið og heilbrigðismál - saman værum við sterkari Alma D. Möller skrifar Skoðun Það sem raunverulega skiptir máli fyrir fólkið í landinu Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Við eigum rétt á að kjósa, sama hvað þið segið Atli Már Haraldsson Zebitz,Sunna Dögg Ágústsdóttir,Sveinbjörn Benedikt Eggertsson skrifar Skoðun Hvar eru eigendur Icelandair? Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Hálfgert vandræðabarn Sigmar Guðmundsson skrifar Skoðun Að velja evruna fyrir sig en krónuna fyrir okkur hin Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Hvar liggur ábyrgðin? Guðrún Ebba Ólafsdóttir skrifar Skoðun Kosturinn sem er ekki á kjörseðlinum Egill Gauti Þorkelsson skrifar Skoðun „Þið þurfið stærri bát“ Erlingur Erlingsson skrifar Skoðun Verð gæti stórlækkað á Íslandi Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun ESB: Hvað kostar að vera utangarðs? Innviðir, tæknilegt samstarf og varnarmál Sigurður Emil Pálsson skrifar Skoðun Gigtin sést ekki alltaf – en hún getur breytt öllu Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hversu miklar umferðartafir má bjóða þér með skólaárinu? Valur Elli Valsson skrifar Skoðun Atvinnuviðtal hjá ESB? Brynjar Níelsson skrifar Skoðun Kvalajárn Rósa Líf Darradóttir skrifar Skoðun Að kaupa atkvæði þjóðar Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Framtíðin, björt eða svört? Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Ert þú þessi hálfviti? Guðrún Tinna Ólafsdóttir skrifar Skoðun Þegar reikniformúla verður að ráðningarþaki sjúkraliða Sandra B. Franks skrifar Sjá meira
Skoðun Evruna fyrir sig? Nei, Þórður Snær. Reikningsskil virka ekki þannig. Páll Steingrímsson skrifar
Skoðun Við eigum rétt á að kjósa, sama hvað þið segið Atli Már Haraldsson Zebitz,Sunna Dögg Ágústsdóttir,Sveinbjörn Benedikt Eggertsson skrifar
Skoðun ESB: Hvað kostar að vera utangarðs? Innviðir, tæknilegt samstarf og varnarmál Sigurður Emil Pálsson skrifar