„Mun persónulega færa þeim pylsu og kók“ Valur Páll Eiríksson skrifar 8. maí 2026 11:32 Infantino hefur komið FIFA til varnar vegna miðaverðs á HM. Luiza Moraes - FIFA/FIFA via Getty Images Gianni Infantino hefur enn á ný komið FIFA til varnar vegna gremju sökum hás miðaverðs á komandi heimsmeistaramóti í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó í sumar. Miðar á úrslitaleik mótsins eru til sölu á 2,3 milljónir bandaríkjadala.
Mikil gagnrýni hefur beinst að FIFA og mótshöldurum sökum hás miðaverðs og gefur dræm sala hótelgistinga til kynna að endursöluaðilar hafi sópað upp stórum hluta miða. Aðeins er hægt að endurselja miða í gegnum kerfi FIFA og þeir miðar fara ekki ódýrt. Ódýrustu miðarnir á hverja leiki, í flokkum 3 og 4, hefur þá fækkað mjög frá fyrri mótum og því færri miðar á viðráðanlegu verði fyrir almenning í boði. „Við verðum að skoða markaðinn,“ sagði Infantino. „Við erum á markaði þar sem skemmtanaiðnaðurinn er hvað þróaðastur í heiminum, svo við verðum að beita markaðsverði,“ sagði Infantino aðspurður um miðamálin. „Í Bandaríkjunum er einnig leyfilegt að endurselja miða, svo ef þú myndir selja miða á of lágu verði, þá verða þessir miðar seldir á mun hærra verði. Og reyndar, jafnvel þótt sumir segi að miðaverðið sem við höfum sett sé hátt, þá enda þeir miðar samt á endursölumarkaði á enn hærra verði, meira en tvöfalt verð okkar,“ segir Infantino sem firrir sig því ábyrgð. FIFA hefur ekki stjórn á uppsettum verði miða sem fara í endursölu, en þeir seljast í gegnum kerfi sambandsins. FIFA tekur hins vegar 15 prósent kaupgjald frá kaupanda hvers miða og 15 prósent endursölugjald frá seljanda. Miðar á úrslitaleik mótsins voru til sölu á 2,3 milljónir bandaríkjadala í gegnum kerfi FIFA á dögunum. Það nemur um 282 milljónum króna fyrir hvern miða. „Ef einhver setur miða á endursölumarkað á 2 milljónir dala, númer 1: þýðir það ekki að miðarnir kosti 2 milljónir dala, og númer 2: þýðir það ekki að einhver muni kaupa þessa miða,“ sagði Infantino. „Og ef einhver kaupir miða á úrslitaleikinn fyrir 2 milljónir dala, þá mun ég persónulega færa viðkomandi pylsu og kók til að tryggja að hann fái frábæra upplifun.“
HM 2026 í fótbolta FIFA Mest lesið Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Íslenski boltinn Fleiri fréttir Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Sjá meira