„Arsenal væri aldrei á toppnum ef þetta er brot“ Valur Páll Eiríksson skrifar 11. maí 2026 11:46 Peter Schmeichel varð fimm sinnum Englandsmeistari, þrívegis enskur bikarmeistari og einu sinni Evrópumeistari með Man Utd. Vísir/Getty Images Daninn Peter Schmeichel, fyrrverandi markvörður Manchester United, er ekki hrifinn af því að jöfnunarmark West Ham undir lok leiks við Arsenal í ensku úrvalsdeildinni í gær, hafi verið dæmt af.
West Ham jafnaði leikinn undir lok leiks með marki Callum Wilson eftir fast leikatriði en eftir langvinna myndbandsskoðun Chris Kavanagh, dómara, var það dæmt af sökum þess að Pablo, leikmaður West Ham, var metinn brotlegur gagnvart David Raya, markverði Arsenal. Arsenal hefur undanfarin misseri skorað mest allra liða eftir föst leikatriði og Schmeichel kveðst þeirrar skoðunar að mörg þeirra marka yrðu dæmd af, væri farið eftir sömu línu og Kavanagh dró í sandinn í gær. „Það sem gerir mig sérlega reiðan er að Arsenal væri aldrei á toppnum ef þetta er brot,“ sagði Schmeichel í útsendingu Viaplay frá leiknum í gær. „Það er svona sem þeir hafa skorað svona mörg mörk, með því að stíga fyrir fólk, halda fólki og gera allskonar. Og svo kemur að þessu og það tekur VAR fimm mínútur. Hann byrjar aftur, og aftur, og er þá búinn að skapa svo mikinn vafa að það getur ekki verið aukaspyrna,“ „Mér þykir þetta svo rangt. Ég bara skil ekki hvernig þetta er allt í einu brot, vegna þess að það hefur ekki verið það fyrir neitt lið alla leiktíðina. Þetta er rangt á svo mörgum stigum,“ segir Schmeichel sem var mikið niðri fyrir. Wayne Rooney, sem vinnur sem sérfræðingur á BBC, lét hafa eftir sér að dómurinn væri réttur og er því ósammála Schmeichel. Alan Shearer sagðist skilja bæði að dæmt yrði brot og að þessu yrði sleppt. En bergmálaði þá skoðun Schmeichels að þörf væri á festu og samræmi hvað slíkt varðar. Atvikið má sjá í spilaranum.
Arsenal FC Enski boltinn Mest lesið Á spítala eftir hræðilegt brot: „Þetta er morðtilraun“ Fótbolti Rekinn fimm dögum eftir að hafa lánað Albert Fótbolti Versti stjóri Bretlandseyja? Enski boltinn Koeman yngri fyrsti markvörðurinn til að skora tvennu Fótbolti „Sýndum karakter og vilja“ Íslenski boltinn „Létum þetta eina mark ekkert á okkur fá“ Íslenski boltinn Júlíus öflugur í frábærum sigri Fótbolti Svona er leikjaniðurröðunin í Bestu deildinni Íslenski boltinn Juventus bjargaði stigi í lokin Fótbolti Geggjað mark Ödegaard skipti sköpum Enski boltinn Fleiri fréttir Versti stjóri Bretlandseyja? Geggjað mark Ödegaard skipti sköpum Ótrúlegt jöfnunarmark Everton undir blálokin Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Haaland sló met Agüero Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Sjá meira