Umsóknum um vernd fækkað um 60% Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar 12. maí 2026 07:40 Þegar ég tók við embætti dómsmálaráðherra blasti við stefnuleysi í útlendingamálum. Skilaboð voru óskýr, aðgerðir sundurlausar og almenningur upplifði stjórnleysi. Tiltrú á kerfinu fór minnkandi og það var augljóst að breyta þurfti um stefnu. Frá árinu 2022 hefur umsóknum um alþjóðlega vernd fækkað um rúmlega 61%. Árið 2022 bárust 4.521 umsókn en árið 2025 voru þær 1.747. Langstærsti hluti umsækjenda hefur á sama tíma verið fólk frá Úkraínu sem flýr árásarstríð Rússa. Fyrstu fjóra mánuði ársins 2026 voru 73% umsækjenda frá Úkraínu. Umræða verður að byggja á staðreyndum. Það er engum til góða að byggja umræðu á öðru en staðreyndum. Aðgerðir til að ná stjórn Stjórnvöld verða að tryggja stjórn á þessum málaflokki sem öðrum. Það er best með skynsömum og skýrum reglum. Þess vegna höfum við nú þegar ráðist í breytingar. Við höfum afnumið hina séríslensku 18 mánaða reglu sem veitti fólki sjálfkrafa dvalarleyfi eingöngu vegna tafa á málsmeðferð. Ísland var eina Norðurlandaþjóðin með slíkt regluverk. Við höfum styrkt Schengen-eftirlit til muna og nú lögfest skyldu flugfélaga til að afhenda farþegalista svo stjórnvöld hafi nauðsynlega yfirsýn yfir komu fólks til landsins. Frumvarp mitt um afturköllun verndar hefur verið samþykkt á Alþingi. Með því tryggjum við að afbrot hafi afleiðingar. Það á að vera sjálfsögð krafa að þeir sem fá vernd hér á landi virði lög og ógni ekki öryggi samfélagsins. Ríkisstjórnin hefur sömuleiðis lagt fram frumvarp um brottfararstöð með sambærilegu fyrirkomulagi og þekkist annars staðar á Norðurlöndum. Ísland er raunar eina Schengen ríkið sem rekur ekki slíkt úrræði og hefur sætt gagnrýni fyrir það. Þetta eru ekki táknrænar aðgerðir eða pólitísk slagorð. Þetta eru breytingar sem styrkja regluverk okkar, auka öryggi og færa íslensk lög nær því sem þekkist hjá nágrannaþjóðum okkar. Opnustu reglurnar endurspegla ekki mestu mannúðina Ísland á að standa vörð um mannréttindi og alþjóðlegar skuldbindingar. Ísland verður sömuleiðis að standa vörð um öryggi, réttarríkið og traust almennings. Þessi sjónarmið útiloka ekki hvort annað. Þau eru raunar grunnurinn að frjálslyndu samfélagi. Útlendingamálin hafa allt of lengi verið eftirlátin jöðrunum. Svarið liggur ekki í stefnu jaðranna sem boða opin eða lokuð landamæri. Svarið liggur í ábyrgri miðju og ábyrgri stefnu sem byggir á skynsemi, festu og skýrum reglum. Opnustu reglurnar og minnsta eftirlitið endurspegla ekki mestu mannúðina. Og lokuð landamæri endurspegla ekki mikinn skilning á atvinnulífi eða viðskiptum. Aðflutt fólk auðgar íslenskt samfélag og gegnir mikilvægu hlutverki í atvinnulífi. Okkur ber að taka vel á móti því fólki sem hér sest að og gera kröfu um virka þátttöku í samfélaginu. Liður í því er að auka íslenskukennslu en aukin fjárfesting er sett í íslenskukennslu í fjármálaáætlun. En forsenda þess að samfélagið haldi áfram að vera frjálslynt er að almenningur finni að stjórnvöld hafi stjórn á kerfinu. Það er verkefni sem við vinnum af skynsemi og festu. Höfundur er dómsmálaráðherra. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir Hælisleitendur Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Leigubremsa er almannahagsmunamál Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Skoðun Tímamót Samúel Guðmundsson Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty Skoðun Heilbrigð þjóð þarf gott samtal Victor Guðmundsson Skoðun Skjátími eða skjátími? Mathieu Grettir Skúlason Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Leigubremsa er almannahagsmunamál Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Tímamót Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Næsta verðhækkun á ekki að vera sjálfgefin Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Börn eftir pöntun Fæðingarorlofssjóðs Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun 100 ár af dellu Helgi Tómasson skrifar Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Maðurinn sem hringdi í óvininn Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samráð sem breytir Karólína Helga Símonardóttir skrifar Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar Skoðun Farsælt framhaldslíf Steinunn Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Það sem ég dáist að við íslenskar konur Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Fíllinn í postulínsbúðinni: Veldisvöxtur breytinganna Árni Sigurðsson skrifar Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Ræktum samtakamátt ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Öfugsnúið fyrirkomulag - lífeyrissjóðir okkar Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Hver á upplýsingarnar um ofnæmi barnsins þíns? Bjarni Þór Ævarsson skrifar Skoðun Skjátími eða skjátími? Mathieu Grettir Skúlason skrifar Skoðun Stöndum með Seyðisfirði! Hannes Pétursson skrifar Skoðun 23? Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Íslenskt táknmál er ekki erlent tungumál Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Heilbrigð þjóð þarf gott samtal Victor Guðmundsson skrifar Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir skrifar Skoðun Álagsstýring: Rétt greining, valin dæmi Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson skrifar Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson skrifar Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar
Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar
Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar