Hveitibrauðsdagar ríkisstjórnarinnar endanlega búnir Jakob Bjarnar skrifar 17. maí 2026 09:44 Egill telur niðurstöðuna í sveitarstjórnarkosningum ekki gefa góð fyrirheit fyrir Kristrúnu Frostadóttur og ríkisstjórina hvað komandi kosningar um viðræður við ESB varðar. vísir/vilhelm Egill Helgason sjónvarpsmaður segir ljóst, nú að loknum sveitarstjórnarkosningum, að hveitibrauðsdögum ríkisstjórnarinnar sé endanlega lokið.
Egill, sem hefur skilgreint sig sem flokkspólitískt viðrini, telur niðurstöðuna í sveitarstjórnarkosningum – stórsigur Sjálfstæðisflokksins víða um land – til marks um að nú gæti reynst erfitt fyrir ríkisstjórnina að halda sjó. Ríkisstjórnin horfir fram á harðari tíð „Jæja, þá eru hveitibrauðsdagar ríkisstjórnarinnar endanlega búnir og við ramman reip að draga hjá henni – eins og reyndar ríkisstjórnum víðast hvar. Það er eitt einkenni á samtíma okkar,“ segir Egill á Facebook-síðu sinni. Líklegt má telja að Kristján Kristjánsson á Sprengisandi muni inna Kristrúnu Frostadóttur formann Samfylkingarinnar eftir þessu, en hún er meðal gesta. Þátturinn hefst klukkan tíu. Og þegar til þess er litið að Flokkur fólksins kom ekki manni að í borgarstjórn hlýtur það að teljast líklegt. Torsótt ESB-atkvæðagreiðsla Egill telur niðurstöðuna til að mynda benda eindregið til þess að komandi kosningar um ESB-viðræður verði kolfelldar sem svo hefur verið eitt helsta baráttumál Viðreisnar. „Nú er ESB-atkvæðagreiðslan fram undan og það verður torsótt fyrir hana,“ segir Egill sem hefur reyndar talið fljótfærni af hálfu ríkisstjórnarinnar að efna til hennar. Og hann sér fyrir sér að Sjálfstæðisflokkur og Miðflokkur muni láta reyna á samstarf í borginni: „Nú virðist einboðið að Sjálfstæðisflokkurinn og Miðflokkurinn myndi meirihluta í borgarstjórninni í Reykjavík enda langmestur málefnalegur samhljómur þar á milli. Geta svo boðið Framsókn með ef þau vilja.“ Vert er þó að nefna að Gauti B. Eggertsson, hagfræðiprófessor og einn helsti pólitíski greinandi Samfylkingarinnar, hefur bent á að kjósendur leiti jafnvægis; ef flokkar eru við völd í landsmálunum hljóti þeir að gefa eftir á vettvangi sveitarstjórna.
Reykjavík Sveitarstjórnarkosningar 2026 Samfylkingin Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Sprengisandur Viðreisn Flokkur fólksins Mest lesið Óveður gengur yfir landið Innlent Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Innlent Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Innlent „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Innlent Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Innlent Styður Repúblikana með tugum milljarða Erlent Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Innlent Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Innlent Fleiri fréttir Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Óveður gengur yfir landið Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Skuldar ekkert Fór úr bílnum og hljóp undan lögreglu Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Bandero leitar skjóls í Reykjavík Air Atlanta vinnur áhættumat vegna árása Húta Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Baráttan um varaforsetana: Valdabrölt eða samsæriskenningar? Salmonella greindist í kryddi Kokku Frumvarp um Ríkisútvarp gagnrýnt harðlega í samráðsgátt Stjórnarandstaðan segir „forfallavírus“ ganga meðal ráðherra Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Pawel tekur við af Sigmari sem þingflokksformaður Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Leita ökumanns sem ók á dreng á reiðhjóli „Þá tökum við auðvitað tillit til þess og hlustum“ Mögulegar rafmagnstruflanir í stórhríðinni Lægðin hefur alla burði til að verða söguleg Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Sjá meira