„Nú er Hildur'ann – línur verða logandi“ Jakob Bjarnar skrifar 17. maí 2026 11:24 Björg og Einar, fyrrverandi samstarfsmenn í borgarstjórn Reykjavíkur, voru sammála um að borgarlínan gæti verið mikilvæg breyta í samstarfsviðræðum í borginni. Bæði töluðu þau með henni en Miðflokkurinn gegn, og nú er Sjálfstæðisflokksins að vega þetta og meta. mynd/vilhelm Borgarlínan gæti verið skipt öllu máli þegar næsti borgarstjórnarmeirihluti verður skrúfaður saman. Það segja þau Björg Magnúsdóttir hjá Viðreisn, Einar Þorsteinsson hjá Framsókn og Sanna Magdalena Mörtudóttur hjá Vinstrinu, sem mættu á Sprengisand og fóru yfir niðurstöður í nýafstöðnum sveitarstjórnarkosningum.
Öll voru þau þreytuleg eftir nóttina, Einar var raddlaus en tók skýrt fram að hann hafi ekki fengið sér deigan dropa í gær og það gerðu þær Björg og Sanna einnig. Þau voru þreytuleg en ótimbruð. „Hildur er hann – línur verða logandi,“ sagði Björg þegar þau voru innt eftir næsta meirihluta í borginni. Fljótt á litið bendir flest til þess að Hildur tali við Ara Edwald hjá Miðflokki, samstarf þessara tveggja flokka dugar í 12 manna meirihluta (9+3) en það eru aðrir möguleikar í stöðunni og þar skiptir Borgarlínan öllu. Viðreisn og Framsóknarflokkurinn eru samanlagt með þrjá menn einnig og þar sjá þau möguleika. Björk sagðist hafa talað skýrt fyrir því að hún sæi ekki málefnalegan grundvöll fyrir samstarfi við Miðflokkinn, það hafi verið heiðarlegt af sinni hálfu og Einar benti á að Miðflokkurinn hafi verið afgerandi í kosningaloforðum sínum; þeir hafi meðal annars talað mjög skýrt gegn borgarlínu. Þarna er skýr málefnagrundvöllur á borðinu. Einar segist hafa talað fyrir slíkum meirihluta. „Við töluðum mjög skýrt fyrir samgöngusáttmálanum,“ sagði Einar. Hann sagði ljóst að það væri ekki gefið að ríkissjóður myndi standa við loforð um fé í verkefnið, eða 90 prósent kostnaðar, ef sá samningur væri rifinn upp. Og Björg sagði borgarlínuna ákveðinn brennidepil og þar væri skýr málefnalegur ágreiningur. En, eins og þar stendur, Hildur er´ann: Hún á völina og hún á kvölina.
Sveitarstjórnarkosningar 2026 Sveitarstjórnarmál Reykjavík Sjálfstæðisflokkurinn Viðreisn Framsóknarflokkurinn Miðflokkurinn Vinstrið Mest lesið Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Innlent Fleiri fréttir Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að keyra bókun 35 í gang Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Sjá meira