Stofna 200 milljarða sjóð fyrir bandamenn Trumps og biðja forsetann formlega afsökunar Samúel Karl Ólason skrifar 18. maí 2026 22:32 Donald Trump mun fá formlega afsökunarbeiðni frá dómsmálaráðuneytinu, sem fyrrverandi einkalögmaður hans stýrir, fyrir meinta vopnvæðingu réttarkerfisins gegn honum og fjölskyldu hans. AP/Julia Demaree Nikhinson Dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna opinberaði í dag stofnun sérstaks sjóðs sem ætlað er að greiða skaðabætur til bandamanna Donalds Trump, forseta, sem hafa verið rannsakaðir eða dæmdir af yfirvöldum í forsetatíð Joes Biden.
Samhliða stofnun sjóðsins tilkynntu lögmenn Trumps að hann hefði látið af lögsókn sinni gegn Skattinum, sem hann höfðaði vegna þess að skattskýrslum hans var lekið til fjölmiðla. Sérfræðingar, eins og saksóknarar og lagaprófessorar, hafa lengi sagt að krafa Trumps gegn Skattinum byggi á mjög veikum grunni. Trump hefur einnig látið af kröfu sinni um skaðabætur vegna húsleitar í Mar-a-Lago árið 2022, þar sem starfsmenn Alríkislögreglu Bandaríkjanna fundu mikið magn af opinberum gögnum sem Trump tók með sér til Flórída úr Hvíta húsinu en átti að skila samkvæmt lögum. Þar á meðal voru leynileg gögn. Hann var ákærður vegna þessara skjala en málið var fellt niður á mjög umdeildan hátt af dómara í Flórída sem Trump skipaði í embætti á síðustu dögum síðustu forsetatíðar sinnar. Sami dómari var svo á lista framboðs Trumps yfir mögulega dómsmálaráðherra áður en kosningarnar fóru fram. Sjá einnig: Segir að Trump hefði verið sakfelldur Þá hefur Trump einnig látið af kröfu um skaðabætur vegna Rússarannsóknarinnar svokölluðu. Forsetinn hefur lengi haldið því fram að sú rannsókn, sem snerist um möguleg tengsl framboðs hans við Rússa í aðdraganda forsetakosninganna 2016, hafi hreinsað hann af sök. Það gerði rannsóknin ekki, eins og Robert Mueller, fyrrverandi yfirmaður Alríkislögreglu Bandaríkjanna sem stýrði rannsókninni, sagði sjálfur. Sjá einnig: Deila á Bandaríkjaforseta fyrir að dansa á gröf rannsakanda Meðal þeirra sem munu eiga rétt á því að sækja um bætur úr sjóðnum eru menn og konur sem tóku þátt í árásinni á þinghús Bandaríkjanna þann 6. janúar 2021, eftir að Trump tapaði gegn Biden. Þá ruddust stuðningsmenn hans inn í þinghúsið með því markmiði að reyna að koma í veg fyrir formlega staðfestingu úrslita kosninganna. Á fyrsta degi þessa kjörtímabilis náðaði Trump alla sem voru dæmdir og felldi niður mál gegn þeim sem höfðu verið ákærðir vegna árásarinnar. Þar á meðal eru menn sem dæmdir voru fyrir að ráðast á lögregluþjóna og meðlimir Proud boys og Oath keepers hópanna svokölluðu, sem voru meðal annars dæmdir fyrir uppreisnaráróður. Í heildina höfðu rúmlega 1.200 verið dæmdir vegna árásarinnar á þinghúsið. Þar á meðal voru um tvö hundruð sem játuðu að hafa beitt lögregluþjóna ofbeldi. Rúmlega 1.500 voru ákærðir ákærðir og af þeim málum sem rötuðu í dómsal voru einungis tveir sýknaðir. Fimm manna nefnd mun fara yfir umsóknir Sjóðurinn er liður í samkomulagi forsvarsmanna ráðuneytisins við forsetann. Hann inniheldur tæplega 1,8 milljarða dala eða um tvö hundruð milljarða króna. Þetta samkomulag felur einnig í sér að Trump sjálfur, báðir synir hans Don yngri og Eric, og fjölskyldufyrirtækið fá formlega afsökunarbeiðni frá dómsmálaráðuneytinu, samkvæmt frétt Wall Street Journal. Sjá einnig: Skoða að gefa bandamönnum Trumps tvö hundruð milljarða Todd Blanche, starfandi dómsmálaráðherra og fyrrverandi einkalögmaður Trumps, sagði að sjóðnum væri ætlað að skapa löglegt ferli fyrir fólk sem telur sig fórnarlamb „vopnvæðingar“ dómskerfisins til að sækja um bætur. Todd Blanche, starfandi dómsmálaráðherra og fyrrverandi einkalögmaður Trumps.AP/Alex Brandon Í yfirlýsingu sagði Blanche að aldrei ætti að beita ríkinu gegn Bandaríkjamönnum í pólitískum tilgangi. Undir hans stjórn myndi ráðuneytið leiðrétta það óréttlæti sem fólk hefði verið beitt af fyrrverandi ríkisstjórn og tryggja að ekki yrði hægt að vopnvæða réttarkerfið á nýjan leik. Umsóknir um bætur munu fara beint í gegnum ráðuneytið en ekki gegnum dómskerfið. Blanche mun skipa fimm manna nefnd sem á að sjá um þessa vinnu. Þessi nefnd á að geta greitt fólki skaðabætur og veitt fólki formlegar afsökunarbeiðnir frá ráðuneytinu. Þá mun Trump hafa heimild til að reka fólk úr nefndinni og skipa nýja aðila í hana. Demókratar segja þetta spillingu Ekki liggur fyrir hvort fjölskyldumeðlimir Trumps eða hann sjálfur megi sækja um bætur og í yfirlýsingu Blanche er ekki heldur tekið fram hvort opinberir starfsmenn eða stjórnmálamenn megi sækja um. Blanche nefndi ekki í yfirlýsingunni fjölmargar rannsóknir og ákærur gegn pólitískum andstæðingum Trump sem hafa, samkvæmt AP fréttaveitunni, leitt til ásakana um að Trump hafi sjálfur vopnvætt dómskerfið. Demókratar og eftirlitsaðilar segja sjóðinn fara gegn stjórnarskrá Bandaríkjanna og að um spillingu sé að ræða. Fjöldi þingmanna Demókrataflokksins í fulltrúadeildinni hefur farið fram á það við dómara að hann komi í veg fyrir að Trump-liðar geti stofnað þennan sjóð og notað hann til að gefa bandamönnum forsetans peninga og opna fyrir innihaldslausar ásakanir um pólitískar ofsóknir.
Bandaríkin Donald Trump Erlend sakamál Rússarannsóknin Forsetakosningar í Bandaríkjunum 2020 Joe Biden Mest lesið „Ég er hreinlega mjög hrædd“ Innlent Koma af fjöllum varðandi áform borgarinnar Innlent Spreyttu þig á PISA-spurningunum Innlent Lögreglan leitar tveggja drengja frá Borgarnesi Innlent Uppsagnir hjá dómsmálaráðuneytinu Innlent Þriggja ára fangelsi fyrir að frelsissvipta æskuvin sinn Innlent Salurinn veltist um af hlátri þegar vitni hringdi inn frá Albaníu Innlent Hjólahvíslarinn og lögreglan björguðu Latabæ Innlent Drengirnir hafi látið vita af sér Innlent Hótar háum tollum og að hætta viðskiptum við ESB Erlent Fleiri fréttir Rússar hafi skipulagt fjölþáttaárás gegn Póllandi Vill fara með Svíþjóð í nýja átt Telja Bandaríkjamenn kunna að hafa framið stríðsglæpi í Íran Kristersson sagði af sér eftir að öll atkvæði voru talin „Þetta snýst um fullveldi“ Þvertaka fyrir að Karl hafi sagt að Díana myndi gleymast fljótt Sænskur stórglæpon handsamaður í Marokkó Samþykktu frumvarp Grahams einu og hálfu ári seinna Hótar háum tollum og að hætta viðskiptum við ESB Varði breytingar á reglum um ráðningar og dýraníð Krefst þess með hástöfum að stýrivextir verði lækkaðir Nær hundrað prósent líkur á sigri vinstri blokkarinnar Kostaði 57 milljarða að verjast einni árás Hútar skutu niður herþotu Sáda Ný réttarhöld gætu reynst flókin í framkvæmd Afhjúpa RIS-vanda í Evrópu og Bandaríkjunum Býður Kanada aukaaðild að Evrópusambandinu Fréttaþyrla NBC hrapaði í Los Angeles Áfram gengur að stoppa upp í ósongatið Loka Kennedy-miðstöðinni eftir að Trump fékk ekki nafn sitt á bygginguna Myndu rústa Póllandi á tveimur til þremur dögum Skutu vegna „ögrandi hegðunar“ dönsku herþyrlunnar Hægt hefði verið koma í veg fyrir dauðsföll barna á sjúkrahúsi Letby Eitt alræmdasta sakamál Ástralíu: Raðmorðingja sleppt úr fangelsi Nemandi alvarlega særður í stunguárás í skóla í Osló Lýsti yfir samkomulagi sem lá ekki fyrir Rússneskt skip skaut blysum að danskri herþyrlu Hafna viðræðum til hægri Úrskurður Hæstaréttar bakslag fyrir Trump Finnar ganga til liðs við kjarnorkuvopnaverkefni Frakka Sjá meira