Horfir með fjölskyldunni og verður mesti stuðningsmaður sögunnar Sindri Sverrisson skrifar 19. maí 2026 10:30 Mikel Arteta faðmaði Gunnersaurus, lukkudýr Arsenal, eftir sigur í síðasta heimaleik tímabilsins í gærkvöld. Getty/John Walton Mikel Arteta, stjóri Arsenal, ætlar að fylgjast með því í sjónvarpinu heima hjá sér í kvöld hvort liðið verði Englandsmeistari í fótbolta, í fyrsta sinn í 22 ár.
Arteta sat fyrir svörum á blaðamannafundi í gærkvöld, eftir 1-0 sigurinn gegn Burnley, og má sjá fundinn hér að neðan. Spánverjinn var meðal annars spurður út í leik Bournemouth og Manchester City í kvöld en ef City mistekst að vinna þann leik verður Arsenal Englandsmeistari. „Ég verð fyrir framan sjónvarpið en ég veit ekki hversu mikið ég mun í raun geta horft,“ sagði Arteta hreinskilinn og brosti. Aðspurður hvort að hann ætlaði að hitta leikmenn og að þeir myndu horfa á leikinn í kvöld saman svaraði hann: „Nei, það er ekki planið. Ég horfi með fjölskyldunni minni og ég veit ekki hversu lengi það verður.“ Það er hins vegar ekki spurning að Arteta verður stuðningsmaður Bournemouth í kvöld: „Sá mesti í sögunni. Af Andoni [Iraola], leikmönnunum og öllu stuðningsfólkinu. Við erum það allir því við vitum hvað það þýðir ef þeir ná úrslitum fyrir okkur,“ sagði Arteta léttur í bragði. Kai Havertz tryggði Arsenal 1-0 sigur gegn Burnley í gærkvöld en mörkin hefðu hæglega getað orðið fleiri hjá Arsenal. Liðið hélt örlögunum í eigin höndum og jafnvel þó að City vinni Bournemouth í kvöld og Aston Villa í lokaumferðinni á sunnudag þá verður Arsenal Englandsmeistari með sigri gegn Crystal Palace. „Ég vissi að þetta yrði erfitt,“ sagði Arteta um leikinn í gærkvöld. „Í fyrri hálfleiknum spiluðum við fótbolta sem var með því besta sem við höfum sýnt í vetur. Við vorum mjög óheppnir að skora ekki 2-3 mörk. En svo var þetta tímabilsins hjá okkur. Ef okkur tekst það ekki [að skora fleiri mörk] þá sjáum við til þess að við séum mjög skilvirkir í varnarleiknum og gefum mótherjunum ekki nein færi, og náum í stigin þrjú,“ bætti hann við. Leikur Bournemouth og Manchester City hefst klukkan 18:30 á Sýn Sport 2. Þriðjudagsmessan er svo á dagskrá á Sýn Sport klukkan 21:20 þar sem farið verður yfir næstsíðustu umferðina.
Enski boltinn Arsenal FC Mest lesið Á spítala eftir hræðilegt brot: „Þetta er morðtilraun“ Fótbolti Ungur Mexíkói sló heimsmet Hafþórs sem vann samt mótið Sport Heiðruðu þjóðarmorðingja fyrir leik Sport Messi og Ronaldo verða loksins liðsfélagar Fótbolti Bjargaði mótherja sínum úr logandi bíl Sport Rekinn fimm dögum eftir að hafa lánað Albert Fótbolti Versti stjóri Bretlandseyja? Enski boltinn Gaf hundinum sínum loforð og sló heimsmet Hafþórs Sport Daníel Tristan sáttur eftir að samkeppnin fór til Noregs Fótbolti Fer frá Hlíðarenda til Molde Fótbolti Fleiri fréttir Raya lengi að taka sig til og Gabriel bestur í glímu Sjáðu sigurmark Ødegaard og glæsilegt jöfnunarmark Maitland-Niles Lögreglan rannsakar átök milli stuðningsmanns og leikmanns Versti stjóri Bretlandseyja? Geggjað mark Ödegaard skipti sköpum Ótrúlegt jöfnunarmark Everton undir blálokin Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Haaland sló met Agüero Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Sjá meira