Barátta við fíkn, íslensk millistétt og æðavarp á Skjaldborg Magnús Jochum Pálsson skrifar 21. maí 2026 11:09 Skjaldborg fer fram í nítjánda sinn um helgina og er nóg um að vera. Skjaldborg, hátíð íslenskra heimildarmynda, hefst í nítjánda sinn á Patreksfirði föstudaginn næstkomandi. Sérhæfing hátíðarinnar eru frumsýningar íslenskra heimildarmynda og í ár eru sýndar myndir sem fjalla meðal annars um byggð í Grímsey, baráttu við fíkn, stöðu íslenskrar millistéttar, endómetríósu og æðavarp á Austfjörðum.
Skjaldborgarhátíðin fer fram á Patreksfirði um hvítasunnuhelgina 22. til 25. maí. Þar verða frumsýndar sex íslenskar heimildarmyndir í fullri lengd og sex stuttar og kynnt fimm íslensk heimildarmyndaverkefni sem eru í vinnslu um þessar mundir. Setningarathöfn hátíðarinnar fer fram klukkan 19:30 á föstudaginn og lýkur svo með lokaballi rétt fyrir miðnætti á sunnudagskvöld. Þar á milli er þétt dagskrá sem samanstendur af fjölda sýninga, bingói, plokkfisksveislu, limbói, skrúðgöngu og verðlaunaafhendingu. „Líkt og fyrri ár eru viðfangsefni myndanna eins ólík og myndirnar eru margar, en fjallað er til dæmis um hnignandi byggð í Grímsey, baráttu við fíkn, stöðu íslenskrar millistéttar, endómetríósu og æðavarp á Austfjörðum,“ segir í tilkynningu frá hátíðinni. Margt um að vera Heiðursgestadagskrá hátíðarinnar hefur þemað frásagnarfullveldi (e. narrative sovereignty) þar sem ungt og upprennandi kvikmyndagerðarfólk frá heimskautasvæðum á Grænlandi, Færeyjum og Sápmi-héruðum Norður-Skandinavíu kemur saman og sýnir myndir sínar. Fyrir utan spennandi heimildarmyndir njóta gestir Skjaldborgar plokkfiskveislu kvenfélagsins á Patreksfirði, fara í limbókeppni og spila bingó sem stjórnað er af kynni hátíðarinnar, Ragnari Ísleifi Bragasyni. Svo er hægt að skella sér í sund og dansa fram á rauða nótt á lokaballinu. Fjölmargar forvitnilegar heimildarmyndir verða frumsýndar á hátíðinni. Í Dæmdu mig, ég geng á glerinu fjallar Þóra Löve um baráttu sonar síns við fíknisjúkdóm og eigin reynslu sem móðir fíkils, Heimkoman eftir Helga Felixson fjallar um ættleidda Svíann Mike Årsjö sem ólst upp í regnskógum Papúa Nýju-Gíneu og snýr aftur á æskuslóðirnar og Annetta Ragnarsdóttir fjallar um íslenska millistéttarfjölskyldu á Akureyri í Kviksyndi. Svo frumsýna Ingvar Þórðarson, Ragnar Axelsson og Mika Kaurismäki myndina Fuglar og menn sem hverfist um hjón í Loðmundarfirði á Austfjörðum sem hafa í tvo áratugi helgað lífi sínu uppbyggingu og verndun æðavarps á svæðinu.
Vesturbyggð Bíó og sjónvarp Menning Tengdar fréttir Skjaldborg í átjánda sinn: „Ef maður býr á svona stað og vill eitthvað þá verður maður að hafa fyrir því sjálfur“ Skjaldborg, hátíð íslenskra heimildamynda, fer fram í átjánda sinn um helgina. Alda Hrannardóttir sér um praktísku hlið hátíðarinnar og er búin að vera á haus að redda gistiplássi fyrir áttatíu manns. 6. júní 2025 14:04 Mest lesið Íslenskt Love Island gæti verið tekið upp á Möltu Bíó og sjónvarp Segir Depp hafa sturlast úr afbrýðissemi Lífið „Mér var sagt að segja ekki eitt fokking orð“ Lífið Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Lífið Danny Glover með Alzheimer Bíó og sjónvarp Grætti nánast alla í athöfninni Lífið Erna Mist og Þorleifur Örn eignuðust son Lífið Krýndur tískukóngur fótboltans Tíska og hönnun Hvað veistu um… götur í Reykjavík sem byrja á S? Lífið Michael Byrne er látinn Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Danny Glover með Alzheimer Íslenskt Love Island gæti verið tekið upp á Möltu Michael Byrne er látinn Fyrsta stiklan úr mynd Eggers og Sjónar James Burrows látinn Laufey Lín er mætt til Springfield Ef meðferðarlotan beri ekki árangur verði hann ekki í næstu þáttaröð Tyra Banks kærir Netflix fyrir ærumeiðingar Ekki talað við Franco lengi og vill ekki vinna með honum aftur Þórður leikstýrir kvikmyndaútgáfu Dead by Daylight Margaret Kerry er látin Fann ástina í örmum snyrtifræðings frá Staffordshire Harbour rýfur þögnina Sigurjón Sighvatsson heiðraður í Locarno James Handy stunginn til bana af syni kærustu sinnar Biðst afsökunar á áratugagömlu gríni með „blackface“ Youtube-leikstjórar kaffærðu Stjörnustríði Sjá meira
Skjaldborg í átjánda sinn: „Ef maður býr á svona stað og vill eitthvað þá verður maður að hafa fyrir því sjálfur“ Skjaldborg, hátíð íslenskra heimildamynda, fer fram í átjánda sinn um helgina. Alda Hrannardóttir sér um praktísku hlið hátíðarinnar og er búin að vera á haus að redda gistiplássi fyrir áttatíu manns. 6. júní 2025 14:04