Friður á Segulfirði Bjarni Karlsson skrifar 23. maí 2026 17:33 Áfram heldur morðæðið. Nýjasta myndin handa almenningi er af hópi aðgerðafólks í þágu Gazabúa sem bundinn hefur verið í krjúpandi stellingu. Yfir þeim standa einhver ráðalaus grey í búningum með byssur í hönd undir handleiðslu ísraelska ráðherrans Ben-Gvir sem augljóslega nýtur stundarinnar. Í nýjustu bókinni sinni, Sextíu kíló af sunnudögum, lætur Hallgrímur Helgason þessi orð rifjast upp í huga söguhetjunnar Gests: Vegur sannleikans er alltaf lengri en þjóðbraut lyginnar. Sagan gerist við upphaf vélbátaútgerðar fyrir meira en hundrað árum og hefur þann eiginleika allra góðra sagna að varpa skýru ljósi á daginn og veginn. Lesandinn kannast vel við sig á Segulfirði og lærir með Gesti hvernig sannleikurinn smám saman rekur sig sjálfur jafn vel þótt það kunni að taka hundrað ár. Myndskeiðið hans Ben-Gvir er sent út til þess að hræða fólk og hotta því áfram á þjóðbraut lyginnar. Þjösnarinn treystir á angist og gleymsku almennings og birtir þessa líka smellvænu senu þar sem bundinn maður er látinn endurtaka heillaóskir til kvalara sinna. Skilaboðin eru einföld: Svona fer fyrir þeim sem ibba gogg við valdið. Lygin reiðir sig á það að almenningur muni ekkert og sjái ekki samhengi. Valdið sem á öllum öldum hótar almenningi, en safnar sjálfu sér, á allt undir því að fólk þekki ekki sinn Segulfjörð. Ekkert sakleysi í boði Á Segulfirði er enginn handhafi sannleikans síst af öllu söguhetjan sjálf. Né heldur er þar nokkur saklaus nema börnin. Mannlífið er margslungið og lesandinn sér hvernig refsandi samskipti eru inngróin í daglegt líf í þessu síldarplássi. Hinn drengilegi skólastjóri barnaskólans, Skapti, á jafnvel ekki kost á öruggu sjálfstrausti og góðri samvisku. Þó hefur hann forframast í sænskum lýðháskóla og veitir bæði bindindisfélginu og ungmennafélaginu forstöðu. Enginn er saklaus á Segulfirði og enginn ber alla sök. Allir eiga sína sögu og þurfa á virðingu og skilning að halda. Slævð samviska eða særð Samviskan stendur milli tveggja kosta. Í boði er að slæva hana með drjúgum skammti af áfengi, líkt og sóknarpresturinn Árni gerir og flestir heldri menn í plássinu. Þá er líka unnt að deyfa sig með einstrengingi og hroka líkt og kommúnistarnir að sunnan í hinni nývöknuðu verkalýðshreyfingu. Hinn kosturinn, sem þeir glíma við vinirnir Gestur og Skapti skólastjóri, sem brátt er orðinn forystumaður í verkalýðsfélaginu, er sá að lifa við sína særðu samvisku, anda inn í sársaukann og gera sitt besta í þágu heildarinnar. Einmitt þetta er Jesús ítrekað að benda á í Guðspjöllunum með dæmisögum sínum, sem allar fjalla um Segulfjörð frá ótal hliðum. Loks stendur hann sjálfur barinn og bundinn frammi fyrir sýndarvaldinu eins og aðgerðafólk allra tíma. Biblíulegir tímar Jesús lifði tíma í dúr við þá sem við nú kynnumst. Orðin sem hann mælti til sinna böðla varpa ljósi á líðan aðgerðafólksins þar sem það engist í höndum sinna Ísraelsku böðla fyrir það eitt að vilja, líkt og Jesús, lina þrautir samferðamanna : „Eruð þið að fara að mér með sverðum og bareflum eins og gegn ræningja? […]þetta er ykkar tími, nú ræður máttur myrkranna.“ Á myrkum tímum, þegar ábyrgð er mæld í andstyggð og þau sem sýna samstöðu hljóta stöðu grunaðs manns, er gott að eiga sæluboð Jesú.3 Sagt er að sjálfur Gandhi hafi lesið þau hvern einasta dag til þess að rækta með sér æðruleysi á vegi friðarins. Þegar við eigum engin svör við atburðum, kjarkurinn dvínar og angistin verður yfirþyrmandi leggur Jesús til að við viðurkennum vanmátt okkar: Sælir eru fátækir í anda því að þeirra er himnaríki. Þegar sorgin slær hvíslar hann að okkur voninni: Sælir eru syrgjendur því að þeir munu huggaðir verða. Þegar lífið ýmist auðmýkir okkur eða upphefur í augum annara vill frelsarinn Jesús að við munum að hvorki í mótbyr né meðbyr stöndum við undir dómi manna. Svar þess sem þekkir sinn Segulfjörð birtist í hógværð: Sælir eru hógværir því að þeir munu jörðina erfa. Þegar við finnum til sárrar gremju yfir ranglætinu í heiminum hjálpar andi Jesú okkur að sjá að við erum ekki handhafar sannleikans og réttlætisins. Fremur en að reyna að koma réttlætinu á í eigin mætti vill Jesús að við lifum það og þráum í orði og verki: Sælir eru þeir sem hungrar og þyrstir eftir réttlætinu því að þeir munu saddir verða. Þegar okkur er nóg boðið yfir heimskulegum orðum og gjörðum annara og teljum slíkt fólk ekki eiga neitt gott skilið, hvetur Jesús okkur til að muna að við erum börn föðurins á himnum. Okkar himneska foreldri elskar ekki börnin sín vegna þess að þau hafi unnið til þess. Allt fólk á virðingu og samlíðun skilið: Sælir eru miskunnsamir því að þeim mun miskunnað verða. Þegar auðveldast væri að ljúga sig út úr aðstæðum eða beita klækjum birtir frelsarinn okkur nýtt tækifæri til að ástunda heilindi: Sælir eru hjartahreinir því að þeir munu Guð sjá. Þegar okkur blöskrar ófriðurinn allt í kring og mannlegt eðli langar mest af öllu að koma á reglu með traustu eftirliti og skýrum siðaboðum, vill Jesús að við göngum sjálf fram í skaðleysi; Berum friðinn í sál og sinni og leitumst við að vera farvegir hans í öllum aðstæðum lífsins: Sælir eru friðflytjendur því að þeir munu Guðs börn kallaðir verða. Þegar öryggi okkar og heilsu er ógnað vegna vegna þess að við tökum okkur stöðu með lífinu mælir meistarinn: Sælir eru þeir sem ofsóttir eru fyrir réttlætis sakir því að þeirra er himnaríki. Þegar máttur myrkranna á leik á taflborði lífsins með útskúfun og ærumissi af því þú lætur þér ekki á sama standa um náungann, þá hvetur Jesús þig til þess að spyrja hvað nú megi læra í ljósi þess að allt er í Guðs hendi: Sælir eruð þér þá er menn smána yður, ofsækja og ljúga á yður öllu illu mín vegna. Gleðjist og fagnið því að laun yðar eru mikil á hinmnum. Þannig ofsóttu þeir spámannina sem voru á undan yður. Sýndarvaldið vill að mannshjörtun hræðist en Jesús hvetur okkur til þess að skelfast ekki þegar lögleysi magnast og kærleikur flestra kólnar. Í stað þess að óttast að hætti sýndarvaldsins vill náðarvald Guðs að mannsjörtun iðrist - kannist við Segulfjörðinn í eigin sál og gangi æðruleysinu á hönd í þjónustu við lífið. Höfundur er prestur og siðfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Bjarni Karlsson Átök í Ísrael og Palestínu Mest lesið Halldór 03.10.2026 Agnar Már Másson Halldór Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt skrifar Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir skrifar Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir skrifar Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar