Ísland og nýja djobbið Dóra Magnúsdóttir skrifar 27. maí 2026 11:30 Ísland hefur haft það fínt í vinnunni. Þetta er gott og traust starf en það er ekki hægt að neita því að launin gætu verið betri. Það er líka svolítið einangrað í sínu starfi og finnst eins og enginn heyri tillögur þess um hvernig mætti gera betur. Hlutirnir hafa verið óbreyttir lengi og landinu finnst eins og sumum hlutum mætti breyta með einföldum hætti en að enginn nenni að hlusta. Ísland leggur mikið á sig í vinnunni, tekur aukavaktir og vinnur jafnvel á frídögum en fær litla umbun. Aðstæður gætu verið betri; það væri jákvætt að fá betri tölvu og jafnvel skrifstofu, bíl og önnur hlunnindi. Það væri líka gaman að hafa fleiri og fjölbreyttari vinnufélaga. Ísland vinnur nefnilega hjá litlu fyrirtæki og vinnufélagarnir eru fáir og einsleitir; en ágætis fólk allt saman. Landið er þó sjálfstætt í sínum störfum og vill alls ekki gefa sjálfstæðið upp á bátinn. Svo Ísland kíkti aðeins á atvinnuauglýsingar, það skaðar nú ekki eitt og sér. Það skoðar auglýsingar sem henta menntun og reynslu og þar sem það getur áfram starfað sjálfstætt. Landið er vel menntað með prýðilega starfsreynslu og getur fengið góð meðmæli. Svo kom að því! Ísland sótti um nýtt starf og var kallað í viðtal. Þetta er spennandi tækifæri og í viðtalinu fær Ísland að vita fjölmörg mikilvæg atriði, s.s. hvort það fái hærri laun, hvort það þurfi að leggja meira eða minna á sig, í hvaða deild það myndi starfa, hvaða verkefnum það muni sinna og þar fram eftir götunum. En Ísland er smeykt við breytingar. Það veit hvað það hefur en veit ekki hvað það fær. Þegar kemur að því að Íslandi er boðið í atvinnuviðtal finnst landinu það líklegast að fyrirtækið bjóði lægri laun, verri starfsaðstæður, erfiðari yfirmenn og leiðinlegri vinnufélaga. Svo telur það líklegt að Ísland fái ekki að vinna sjálfstætt að sínum verkefnum. Svei mér þá ef nýja fyrirtækið muni ekki yfirtaka líf þess, Íslandi er farið að grunar það. Reyndar er það svo að býsna margir vinna í þessu fyrirtæki og flestir eru ánægðir skv. starfsmannakönnunum. Starfsmannaveltan með eindæmum lítil. Fólk virðist sátt og vill ekki hætta og þau sem hafa hætt hafa séð eftir því. Ísland er tvístígandi og er að velta því fyrir sér að afþakka viðtalið. Þetta fyrirtæki getur bara étið það sem úti frýs. Ísland hefur það fínt og þarf ekki á neinum breytingum að halda. Eða hvað, ætti það að láta slag stand? Það skaðar nú varla að heyra hvað þau hafa upp á að bjóða - eða hvað? Höfundur er ritari Evrópuhreyfingarinnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Ég vil ráða mínu sumarfríi Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Hverjir fá sætin við borðið? Diljá Mist Einarsdóttir Skoðun Helförin var bara fugladrit Helgi Gunnlaugsson Skoðun Já til að SJÁ Berglind Guðmundsdóttir Skoðun Mannmiðjuvillan og dýradráp Íslendinga Rósa Líf Darradóttir Skoðun Fórnarlambsnaglinn Sigurður Árni Reynisson Skoðun Sæti við borðið – eða sæti á ganginum? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Stóra Stjórnarskrármálið Guðmunda G. Guðmundsdóttir Skoðun Þegar jafnrétti verður blóraböggull Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Halldór 20.06.2026 Halldór Skoðun Skoðun Þjóðargersemi Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Sæti við borðið – eða sæti á ganginum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Ég vil ráða mínu sumarfríi Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Mannmiðjuvillan og dýradráp Íslendinga Rósa Líf Darradóttir skrifar Skoðun Stóra Stjórnarskrármálið Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Hverjir fá sætin við borðið? Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Já til að SJÁ Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Fórnarlambsnaglinn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Þegar jafnrétti verður blóraböggull Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Sumarsólstöður: Tími birtu, þakklætis og helgisiða Þuríður Stefánsdóttir skrifar Skoðun Skýr mörk fyrir vindorku, sterkari vernd fyrir náttúruna Ása Berglind Hjálmarsdóttir skrifar Skoðun Hver hugsar þegar þú notar gervigreind — þú eða vélin? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Mannréttindastofnun og réttindagæsla fatlaðs fólks Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Af hverju ekki að segja Nei … af hverju ætti að segja kannski? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Árásargjarnir lobbíistar vindorkuiðnaðarins Anna Soffia Kristjánsdóttir skrifar Skoðun 19. júní í skugga bakslags: Jafnrétti er ekki sjálfgefið Martha Lilja Olsen skrifar Skoðun Helförin var bara fugladrit Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Síðustu móhíkanarnir Viðar Halldórsson skrifar Skoðun „Hvernig veit ég hvort ég hafi gert eitthvað við konu án samþykkis?“ Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun EES fyrir fyrirtækin, ESB fyrir fólkið? Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Hvern vantar enn við borðið? Jana Birta Björnsdóttir,Jónína Rósa Hjartardóttir skrifar Skoðun Áfram gakk Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Hvað þarf að vera til staðar ef dánaraðstoð verður heimiluð? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hver borgar þegar samningurinn er svikinn? Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun ESB aðild er óskynsamleg frá efnahagslegu sjónarmiði Kristinn Sv. Helgason skrifar Skoðun Er kominn tími á nýtt norrænt leiðtogahlutverk? Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Þegar fyrirmyndirnar horfa í skjáinn Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hver framleiðir matinn okkar eftir 20 ár? Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Er dr. Henry Alexander bara til punts? Henry Alexander Henrysson skrifar Skoðun Gervigreind er að breyta því hvað það þýðir að vera góður stjórnandi Gísli Rafn Ólafsson skrifar Sjá meira
Skoðun „Hvernig veit ég hvort ég hafi gert eitthvað við konu án samþykkis?“ Guðný S. Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Gervigreind er að breyta því hvað það þýðir að vera góður stjórnandi Gísli Rafn Ólafsson skrifar