ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Kjartan Kjartansson skrifar 28. maí 2026 12:35 Kínverska netverslunin Temu hefur notið mikill vinsælda undanfarin ár þrátt fyrir að varningurinn sem þar er seldur sé af mismiklum gæðum. Vísir/EPA Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins lagði tvö hundruð milljóna evra sekt á kínversku netverslunina Temu fyrir að selja ólöglegan varning í Evrópu í dag. Sektin er sú stærsta frá því að lög um stafræna þjónustu tóku gildi í álfunni.
Temu er gefið að sök að hafa ekki metið hættuna á að ólöglegar vörur væru seldar í gegnum vefverslun fyrirtækisins, þar á meðal ónýt raftæki og hættuleg barnaleikföng. Framkvæmdastjórnin telur að Temu geri ill verra með því að halda slíkum vörum að neytendum með meðmælakerfi sínu. Sektin nemur 28,7 milljörðum íslenskra króna. Fyrri metsekt var sú sem ESB lagði á samfélagsmiðilinn X fyrir ýmis brot á lögum um gagnsæi í desember, að því er segir í frétt Politico af sektinni. Þrátt fyrir að sektin virðist há er hún langt undir þeim mörkum sem lög ESB um starfræna þjónustu bjóða upp á. Hægt er að gera fyrirtækjum sektir sem nema allt að sex prósentum af árlegri veltu þeirra á heimsvísu. Framkvæmdastjórnin segist hafa ákvarðað sekt Temu út frá tekjum í fyrra sem voru taldar nema 53 milljörðum evra. Hún hefði þannig getað sektað kínverska fyrirtækið um allt að 2,8 milljarða evra. Henna Virkkunen, tæknimálastjóri ESB, segir brot Temu mjög alvarleg. Áhættumat á þjónustunni væri fyrsta skrefið fyrir fyrirtæki sem vildu starfa á evrópskum markaði. Temu hefur þrjá mánuði til þess að bregðast við og bæta úr athugasemdum.
Evrópusambandið Kína Mest lesið Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Viðskipti innlent Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Viðskipti innlent Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Viðskipti innlent Verslunin Air lokar í Kringlunni Viðskipti innlent Fljúga til Færeyja árið um kring Viðskipti innlent ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Viðskipti erlent Ekkert plan: Mun gervigreindin borga tekjuskatt? Atvinnulíf Rafsendibílar orðnir raunhæfur kostur fyrir íslensk fyrirtæki Samstarf Fleiri fréttir ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Meiriháttar truflanir á greiðslumiðlun á Norðurlöndum Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Kröfum Musks gegn OpenAI hafnað Hefur „nær engar áhyggjur“ af eldsneytisskorti Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lággjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira