Körfubolti

Spurs knúðu fram odda­leik

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Spurs völtuðu yfir ríkjandi meistarana í fjórða leikhluta.
Spurs völtuðu yfir ríkjandi meistarana í fjórða leikhluta. Christian Petersen/Getty Images

San Antonio Spurs knúðu fram oddaleik í vesturdeild NBA með 118-91 sigri gegn Oklahoma City Thunder í nótt.

Victor Wembanyama svaraði vel fyrir sig eftir slaka frammistöðu í síðasta leik. Eftir þann leik sagði þjálfarinn Mitch Johnson að hann þyrfti að skora meira og Wembanyama varð stigahæstur í nótt.

Wembanyama lauk leik með 28 stig, tíu fráköst og þrjú varin skot í afar öruggum sigri.

Góður varnarleikur var lykillinn að velgengni hjá Spurs og OKC skoraði undir hundrað stig í annað sinn í seríunni. Enginn leikmaður liðsins náði að setja meira en fimmtán stig á töfluna.

Wembanyama tjékkaði sig út þegar um átta mínútur voru eftir, í miðju 20-0 áhlaupi hjá Spurs sem gerði útslagið.

Stephon Castle endaði leikinn með 17 stig og níu stoðsendingar. Dylan Harper skilaði svo 18 stigum af bekknum.

Shai Gilgeous-Alexander var langt frá sínu besta í nótt og lauk leik með 15 stig og fjórar stoðsendingar. Tvöfaldi MVP verðlaunahafinn hitti aðeins úr 37.9 prósent skota sinna en hann setur að meðaltali meira en helming ofan í, 51.4 prósent.

Oddaleikur liðanna fer fram aðfaranótt sunnudags. Sigurvegari einvígisins í vestrinu mun mæta sigurvegara austurdeildarinnar, New York Knicks, í úrslitaeinvíginu.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×