Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Sindri Sverrisson skrifar 31. maí 2026 09:21 Victor Wembanyama fagnaði vel eftir að vesturdeildarmeistaratitillinn var í höfn. Getty/Christian Petersen Victor Wembanyama stóð fyrir sínu og skoraði 22 stig þegar San Antonio Spurs slógu út ríkjandi meistara Oklahoma City Thunder í oddaleik og komust í úrslitaeinvígi NBA-deildarinnar í körfubolta. Þar mætir liðið New York Knicks og er fyrsti leikur 3. júní.
Wembanyama tók áskorun þjálfarans Mitch Johnson um að skora meira en tuttugu stig, eftir vonbrigðaframmistöðu Frakkans í fimmta leik, og átti ríkan þátt í 111-103 sigri San Antonio í nótt. Þar með spilar San Antonio til úrslita í fyrsta sinn síðan árið 2014 og í úrslitaeinvíginu mætast sömu lið og síðast þegar Knicks komust í úrslit, árið 1999. „Að vinna Larry O'Brien-bikarinn [NBA-meistaratitilinn] er æskudraumur og að eiga raunverulegan möguleika á því, að eiga áþreifanlegan möguleika á að vinna hann – það er tækifæri lífsins,“ sagði Wembanyama sem spilar nú til úrslita í fyrsta sinn, eftir að hafa verið valinn fyrstur í nýliðavalinu árið 2023. Wembanyama hafði skorað 41 stig í fyrsta leiknum gegn Oklahoma og 33 stig í fjórða leik, og nú eru meistararnir úr leik. „Það sem ég hef lært er að ég get yfirstigið hindranir sem ég vissi ekki að gætu orðið svona háar,“ bætti Wembanyama við. „Ég fann innri styrk. Þrautseigju. Ég vissi það reyndar fyrir, en að gera það á þessu stigi… þetta er besti körfubolti sem spilaður er á jörðinni um þessar mundir. Og það fáránlega er að ég vil gera þetta 15 eða 20 sinnum í viðbót,“ sagði þessi 22 ára gamli Frakki.
NBA Mest lesið Segja einn mann hafa séð um að aflétta banni Balogun Fótbolti „Er að fara vinna þennan gullskó og ég er að fara slá markametið“ Íslenski boltinn Goðsögn tekur við eftir vonbrigðin á HM Fótbolti Lárus Orri: „Erum í bullandi fallbaráttu“ Íslenski boltinn McGregor entist aðeins í 69 sekúndur Sport Liðin fjögur eftir sem FIFA vildi að gætu mæst í undanúrslitum Fótbolti FIFA: Örflagan sýnir enga snertingu við vírinn Fótbolti Þjálfarinn rekinn eftir hótun leikmanns Fótbolti „Þessi sigur sýnir hvað hópurinn er þéttur“ Fótbolti Haaland eldri hraunar yfir dómarana Fótbolti Fleiri fréttir Móðir Kinu Rochford syrgir: „Á röngum stað“ Tólfta sæti niðurstaðan eftir tap fyrir Lettum Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Tap fyrir Þjóðverjum í skrautlegum leik Kinu Rochford sagður myrtur Annar stórsigur strákanna á EM Grindvíkingar halda sænsku landsliðskonunni Stelpurnar skelltu Svíum og tilheyra áfram elítunni Hélt hann yrði frá í sex mánuði en byrjar strax í fyrsta leik Liðin senda LeBron James raddskilaboð og reyna að selja sig Bara risaleikir milli jóla og nýárs Frank Aron Booker yfirgefur Val og semur við Álftanes Þungt tap gegn Tyrkjum og Svíar bíða Berglind næststigahæst á EM 16 ára Berglind mögnuð er Ísland náði sögulegum árangri Elvar snýr aftur til Litháens Jón Axel spilar á Kanaríeyjum Patrick Ewing fékk aftur starf á gólfinu í NBA-deildinni Valsmenn fá til sín stigakóng síðasta tímabils „Maður hefur spilað körfubolta lengi“ „Komið með þessa NBA karla, við erum klárir“ Uppgjör: Bretland – Ísland 86-88 | Enn einn dramatískur sigur Íslands og HM draumurinn lifir Íslensku stelpurnar unnu stórkostlegan sigur á Serbum Sixers að blanda sér í baráttuna um LeBron James Prófa nýja körfuboltareglu með einu vítaskoti „Ég er Grindvíkingur en vill bara svo til að ég fór í Keflavík“ Elvar: „Við vorum flatari og skrefinu eftir á“ Uppgjör: Ísland - Ítalía 83-102 | Strákarnir réðu ekki við skotsýningu Ítala Jaylen Brown til Philadelphia 76ers Fengið morðhótanir eftir viðskiptin við Caitlin Clark Sjá meira