Minna kerfi og meiri hverfi Róbert Ragnarsson skrifar 3. júní 2026 12:03 Viðreisn var skýr á því í kosningabaráttunni að við ætlum að einfalda stjórnkerfi borgarinnar, draga úr kostnaði og koma þeim peningum í þjónustu og fjárfestingar í hverfunum. Nú er það loforð að komast til framkvæmda. Fyrsta verk Viðreisnar í borgarstjórn er að stofna stýrihóp um hagræðingu og breytingar í stjórnkerfinu. Þeir flokkar sem mynda nýjan meirihluta í borgarstjórn lögðu allir áherslu á að hagræða og einfalda borgarkerfið. Borgarbúar tóku undir þá áherslu í kosningum og veittu okkur sterkt umboð til að ganga í verkefnið. Hagræðingin liggur í yfirbyggingunni Í kosningunum var mjög skýrt ákall frá borgarbúum og starfsfólki borgarinnar um að staðinn verði vörður um grunnþjónustuna og að veitt verði meira fé í fjárfestingu í skólum, leikskólum, íþróttamannvirkjum og öðrum mikilvægum innviðum. Tilgangur þessarar vinnu er einmitt að færa fjármuni úr yfirbyggingu og inn í þá þjónustu og innviði sem borgarbúar finna fyrir í daglegu lífi. Minna kerfi og meiri hverfi. Þar eru borgarfulltrúar ekki undanskildir. Reglur um launakjör verða endurskoðaðar og við munum leggja til við Alþingi að borgarstjórn verði veitt heimild til að ákveða að fjöldi borgarfulltrúa verði á bilinu 15 til 23, en ekki á bilinu 23 til 31 borgarfulltrúi eins og nú er. Það mun leiða til mikils sparnaðar í yfirbyggingu. Viðreisn gengur í verkin Í skúffum ráðhússins eru fyrirliggjandi góðar hugmyndir og tillögur að breytingum á stjórnkerfinu sem skila hagræði og aukinni skilvirkni. Við ætlum að byggja á þeim og innleiða góð verkefni í samstarfi við stjórnendur borgarinnar. Við ætlum að ganga í verkin og taka góðar ákvarðanir jafnt og þétt. Borgarbúar munu verða varir við fyrstu ákvarðanir á næstu vikum, en við gerum ráð fyrir að innleiðing stærri breytinga geti tekið allt að tvö ár. Mannvirðing er eitt af gildum Viðreisnar Við í Viðreisn höfum verið opin og heiðarleg með að stöðugildum í stjórnsýslu muni óhjákvæmilega fækka. Hjá Reykjavíkurborg starfar öflugt og hæft fólk sem eftirspurn er eftir í atvinnulífinu. Við breytingar sem þessar er mikilvægt að gæta að öllum réttindum starfsfólks og sýna fólki virðingu við stórar breytingar. Í samstarfi við stjórnendur borgarinnar og með góðum stuðningi mannauðs- og starfsumhverfissviðs munum við framkvæma breytingarnar faglega og af virðingu. Viðreisn lofaði að einfalda stjórnkerfið, draga úr kostnaði í yfirbyggingu og færa meira fé í þjónustu og fjárfestingar í hverfunum. Nú hefst sú vinna. Höfundur er stjórnmálafræðingur og borgarfulltrúi Viðreisnar í Reykjavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Viðreisn Borgarstjórn Reykjavík Róbert Ragnarsson Tengdar fréttir Deiliskipulag við Suðurlandsbraut, sundlaugar og fánar efst á dagskránni Nýr meirihluti í Reykjavík mun leggja fram tólf tillögur á fyrsta borgarstjórnarfundi eftir kosningar, sem hefst í hádeginu í dag. Þá verður lagt til að stofnuð verði þrjú ný ráð í borginni. 2. júní 2026 06:33 Sjálfstæðismenn formenn sjö ráða af átta Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins fara með formennsku í sjö af átta fagráðum borgarinnar. Kjörið var í ráðin á fyrsta fundi nýrrar borgarstjórnar í dag. Þar var ráðum einnig fjölgað. 2. júní 2026 20:28 Mest lesið Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon Skoðun Að eldast er að lifa Halldór S. Guðmundsson,Sirrý Sif Sigurlaugardóttir Skoðun Fimm mýtur um vændi Drífa Snædal Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson Skoðun Skoðun Skoðun Afmælisdagur á ekki að tefja skólagöngu Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Fimm mýtur um vændi Drífa Snædal skrifar Skoðun Hvað kostar að gera vinnustað mannlegri? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Líknarslæving, dánaraðstoð og rétturinn til að velja Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson skrifar Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Íslenska Z-kynslóðin hefur hægt um sig Gunnar Salvarsson skrifar Sjá meira
Viðreisn var skýr á því í kosningabaráttunni að við ætlum að einfalda stjórnkerfi borgarinnar, draga úr kostnaði og koma þeim peningum í þjónustu og fjárfestingar í hverfunum. Nú er það loforð að komast til framkvæmda. Fyrsta verk Viðreisnar í borgarstjórn er að stofna stýrihóp um hagræðingu og breytingar í stjórnkerfinu. Þeir flokkar sem mynda nýjan meirihluta í borgarstjórn lögðu allir áherslu á að hagræða og einfalda borgarkerfið. Borgarbúar tóku undir þá áherslu í kosningum og veittu okkur sterkt umboð til að ganga í verkefnið. Hagræðingin liggur í yfirbyggingunni Í kosningunum var mjög skýrt ákall frá borgarbúum og starfsfólki borgarinnar um að staðinn verði vörður um grunnþjónustuna og að veitt verði meira fé í fjárfestingu í skólum, leikskólum, íþróttamannvirkjum og öðrum mikilvægum innviðum. Tilgangur þessarar vinnu er einmitt að færa fjármuni úr yfirbyggingu og inn í þá þjónustu og innviði sem borgarbúar finna fyrir í daglegu lífi. Minna kerfi og meiri hverfi. Þar eru borgarfulltrúar ekki undanskildir. Reglur um launakjör verða endurskoðaðar og við munum leggja til við Alþingi að borgarstjórn verði veitt heimild til að ákveða að fjöldi borgarfulltrúa verði á bilinu 15 til 23, en ekki á bilinu 23 til 31 borgarfulltrúi eins og nú er. Það mun leiða til mikils sparnaðar í yfirbyggingu. Viðreisn gengur í verkin Í skúffum ráðhússins eru fyrirliggjandi góðar hugmyndir og tillögur að breytingum á stjórnkerfinu sem skila hagræði og aukinni skilvirkni. Við ætlum að byggja á þeim og innleiða góð verkefni í samstarfi við stjórnendur borgarinnar. Við ætlum að ganga í verkin og taka góðar ákvarðanir jafnt og þétt. Borgarbúar munu verða varir við fyrstu ákvarðanir á næstu vikum, en við gerum ráð fyrir að innleiðing stærri breytinga geti tekið allt að tvö ár. Mannvirðing er eitt af gildum Viðreisnar Við í Viðreisn höfum verið opin og heiðarleg með að stöðugildum í stjórnsýslu muni óhjákvæmilega fækka. Hjá Reykjavíkurborg starfar öflugt og hæft fólk sem eftirspurn er eftir í atvinnulífinu. Við breytingar sem þessar er mikilvægt að gæta að öllum réttindum starfsfólks og sýna fólki virðingu við stórar breytingar. Í samstarfi við stjórnendur borgarinnar og með góðum stuðningi mannauðs- og starfsumhverfissviðs munum við framkvæma breytingarnar faglega og af virðingu. Viðreisn lofaði að einfalda stjórnkerfið, draga úr kostnaði í yfirbyggingu og færa meira fé í þjónustu og fjárfestingar í hverfunum. Nú hefst sú vinna. Höfundur er stjórnmálafræðingur og borgarfulltrúi Viðreisnar í Reykjavík.
Deiliskipulag við Suðurlandsbraut, sundlaugar og fánar efst á dagskránni Nýr meirihluti í Reykjavík mun leggja fram tólf tillögur á fyrsta borgarstjórnarfundi eftir kosningar, sem hefst í hádeginu í dag. Þá verður lagt til að stofnuð verði þrjú ný ráð í borginni. 2. júní 2026 06:33
Sjálfstæðismenn formenn sjö ráða af átta Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins fara með formennsku í sjö af átta fagráðum borgarinnar. Kjörið var í ráðin á fyrsta fundi nýrrar borgarstjórnar í dag. Þar var ráðum einnig fjölgað. 2. júní 2026 20:28
Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun