Stígum ölduna saman Víglundur Laxdal skrifar 7. júní 2026 08:30 Sjómannadagurinn er dagur sem minnir okkur á mikilvægi þeirra sem sækja sjóinn, færa björg í bú og halda uppi þeirri starfsemi sem hefur um aldir verið ein af meginstoðum íslensks atvinnulífs. Á þessum degi heiðrum við sjómenn landsins fyrir framlag þeirra til þjóðarinnar, en horfum jafnframt til framtíðar og þess hvernig við búum næstu kynslóðir undir sífellt fjölbreyttari og krefjandi verkefni á hafsvæðinu umhverfis Ísland. Öryggi á sjó byggir ekki aðeins á öflugum skipum, fullkomnum tækjabúnaði eða góðum verklagsreglum. Það byggist fyrst og fremst á þekkingu fólksins sem ber ábyrgðina. Þess vegna er menntun ein mikilvægasta fjárfesting sem við getum ráðist í þegar kemur að framtíð íslenskra haf- og siglingamála. Það er okkur því mikið ánægjuefni að kynna nýtt nám sem Landhelgisgæsla Íslands, Háskólinn á Bifröst og Tækniskólinn hafa þróað í sameiningu, Grunndiplómu í leiðtoganámi í hafgæslu. Námið er einstakt á íslenskan mælikvarða og svarar vaxandi þörf atvinnulífsins fyrir vel menntaða stjórnendur með þekkingu á hafsvæðastjórnun, öryggismálum, siglingum og leiðtogafræðum. Íslendingar eru þjóð sem byggir afkomu sína á sjávarútvegi. Efnahagur okkar, öryggi og lífsgæði eru nátengd hafinu og þeim verðmætum sem það skapar. Á sama tíma verða verkefni þeirra sem starfa á sjó sífellt flóknari. Aukin umferð skipa, tækniframfarir, breyttar kröfur um öryggi og umhverfisvernd og aukin áhersla á samhæfingu aðgerða á hafsvæðinu kalla á nýja nálgun í menntun stjórnenda. Leiðtoganám í hafgæslu er þróað með þetta í huga. Námið er 60 ECTS eininga grunndiplóma á háskólastigi og er kennt yfir fjórar annir þannig að hægt sé að stunda það samhliða starfi. Þar fléttast saman leiðtogafræði, stjórnun, lögfræði, siglingafræði, hafsvæðastjórnun, leit og björgun á sjó og öryggismál. Sérstök áhersla er lögð á raunhæf verkefni og starfstengt nám í samstarfi við Landhelgisgæsluna. Námið höfðar til breiðs hóps einstaklinga sem vilja efla þekkingu sína á haf- og öryggistengdum málefnum. Fyrir skipstjórnarfólk með D-stig felast í náminu jafnframt mikilvæg tækifæri til starfsþróunar, þar sem það veitir rétt til E-stigs að uppfylltum kröfum um siglingattíma. Um leið hvetjum við þá sem vilja styrkja faglega stöðu sína og taka þátt í að móta framtíð haf- og öryggismála að kynna sér þetta nýja nám. Samstarfið sem hér hefur orðið til er jafnframt mikilvægt dæmi um hvernig ólíkir aðilar geta sameinað krafta sína í þágu samfélagsins. Landhelgisgæslan býr yfir ómetanlegri reynslu af öryggis- og björgunarstörfum á sjó. Tækniskólinn hefur um áratugaskeið menntað skipstjórnarfólk þjóðarinnar og byggt upp sérþekkingu á sviði sjómannamenntunar. Háskólinn á Bifröst leggur til sterkan fræðilegan grunn á sviði stjórnunar og leiðtogafræða. Saman myndum við brú milli starfsnáms og háskólanáms sem skapar ný tækifæri fyrir fólk í haf- og siglingatengdum greinum. Á Sjómannadaginn er við hæfi að horfa ekki aðeins yfir farinn veg heldur einnig fram á veginn. Framtíð íslensks sjávarútvegs, hafgæslu og siglinga krefst þess að við höldum áfram að byggja upp þekkingu, hæfni og leiðtogafærni þeirra sem taka við ábyrgðarmiklum störfum til sjós. Leiðtoganám í hafgæslu er framlag til þeirrar framtíðarsýnar. Það er tækifæri fyrir reynslumikið skipstjórnarfólk til að bæta við sig verðmætri þekkingu, efla stöðu sína á vinnumarkaði og undirbúa sig fyrir nýjar áskoranir. Um leið er það fjárfesting í öryggi, fagmennsku og getu Íslands til að sinna mikilvægu hlutverki sínu sem sjávarútvegsþjóð. Á degi sem þessum sendum við öllum sjómönnum og fjölskyldum þeirra bestu kveðjur og þakkir fyrir ómetanlegt framlag til íslensks samfélags. Höfundur er skólastjóri Skipstjórnarskólans. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sjómannadagurinn Mest lesið Hin drepleiðinlega Bókun 35 Helgi Hrafn Gunnarsson Skoðun Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher Skoðun Ekki leggja þjóðinni orð í munn Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Barnið sem mælikvarðinn sér ekki Rebekka Rafnsdóttir Skoðun Goðarnir fóru aldrei – þeir skiptu bara um nafn Ragnar Thorarensen Skoðun Hvernig hefurðu það? Carmen Maja Valencia Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir Skoðun Forstjóri CIA heimsækir Moskvu Arnór Sigurjónsson Skoðun Fortíðin vann Baldur Johnsen Skoðun Skoðun Skoðun Hafa íslensku lífeyrissjóðirnir staðið sig nógu vel? Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Eigum við að borga það? Gréta Ingþórsdóttir skrifar Skoðun Pólitísk ábyrgð hlýtur að hafa afleiðingar Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar Alþingi er beygt í duftið Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Sammála – leggjum þjóðinni ekki orð í munn Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Goðarnir fóru aldrei – þeir skiptu bara um nafn Ragnar Thorarensen skrifar Skoðun Hin drepleiðinlega Bókun 35 Helgi Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Spírallinn Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun „Að tilheyra“, tækifæri til að styðja fyrr við unga fólkið okkar Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Barnið sem mælikvarðinn sér ekki Rebekka Rafnsdóttir skrifar Skoðun Er landsbyggðin hluti af lausninni? Hildur Sólveig Sigurðardóttir skrifar Skoðun Netöryggi snýst líka um að þora að segja frá Margrét V. Helgadóttir skrifar Skoðun Fortíðin vann Baldur Johnsen skrifar Skoðun Getur maður verið rasisti án þess að gera sér grein fyrir því? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ekki leggja þjóðinni orð í munn Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Hvernig hefurðu það? Carmen Maja Valencia skrifar Skoðun Minna kerfi, betri þjónusta Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Forstjóri CIA heimsækir Moskvu Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Trump lítið annað en hvíslari í leikritinu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Sjá meira
Skoðun „Að tilheyra“, tækifæri til að styðja fyrr við unga fólkið okkar Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar
Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar