Þegar líf er í húfi Jón Gunnar Jónsson skrifar 7. júní 2026 08:02 Á þessari ljósmynd sem tekin var fyrir Samgöngustofu sést sigmaður þyrlu Landhelgisgæslunnar grípa í hönd nemanda Slysavarnaskóla sjómanna. Nemandinn æfir sig í að taka á móti bjargvætti sínum við krefjandi aðstæður. Einar Magnús Magnússon - emm.is Það kann að vera að glöggir lesendur sjái ákveðna tengingu þessarar myndar við eitt frægasta málverk sögunnar, „Sköpun Adams” eftir Michelangelo? Málverk Michelangelos er freska í lofti aðalhvelfingar Sixtínsku kapellunnar í Róm og sýnir upphafið að lífi manns og mannkyns samkvæmt 1. Mósebók (Genesis). Ljósmyndin var hins vegar tekin þar sem verið var að æfa þyrlubjörgun mannslífa á sundunum við Reykjavík. Hún sýnir með áhrifamiklum hætti einn mikilvægasta þátt mannlegs samfélags, að bregðast við þegar líf er í húfi. Ljósmyndin er má segja táknræn fyrir þá öryggismenningu sem náðst hefur í sjósókn við Íslandsstrendur og eflst til muna á undanförnum áratugum. Ekkert skal gefið eftir við björgun mannslífa þótt til þess þurfi oft og tíðum að heyja erfiða baráttu við ógnaröfl náttúrunnar. Í einni af bókum Steinars J. Lúðvíkssonar, Þrautgóðir á raunastundu, er listi yfir nöfn þeirra sem fórust á sjó við Ísland á árunum 1900 til 1975. Á þeim lista eru nöfn 3.572 manna. Það eru að meðaltali 48 manns á ári á þessum 76 árum. Öldum saman virtist hafa verið litið svo á að þessi mannslíf væru óumflýjanlegur fórnarkostnaður en sem betur fer hefur orðið breyting þar á. Meðaltal látinna undanfarin 20 ár er 1 á ári og á 9 árum þar af urðu engin banaslys til sjós. Hvert banaslys er einu of mikið. Það má segja að þessi árangur grundvallist á nokkrum þáttum. Skip nú til dags eru mun öruggari en áður. Í dag er notast við fullkominn leiðsögu-, staðsetningar- og samskiptabúnað. Strangari kröfur og lög eru um öryggi, eftirlit og menntun sjómanna. Árið 1985 var stofnaður Slysavarnaskóli sjómanna. Skólinn er rekinn af Slysavarnafélaginu Landsbjörg og margir opinberir og einkaaðilar koma að þjálfun og æfingum en þar má helst nefna Landhelgisgæsluna. Tryggingafélög hafa einnig veitt skólanum margs konar stuðning. Hlutverk skólans er að bæta öryggi sjómanna með bóklegri kennslu og verklegri þjálfun í meðferð björgunar‑ og öryggisbúnaðar. Allt þetta og ekki hvað síst þrautseigja og vitund íslenskra sjómanna, viðbragðsaðila og útgerða hefur skapað öryggi sem vakið hefur athygli víða um heim. Starfsfólk innviðaráðuneytis og Samgöngustofu hefur tekið virkan þátt í vinnu hjá IMO – International Maritime Organization við að koma svonefndri Höfðaborgarsamþykkt á en tilgangur hennar er að tryggja öryggi sjómanna á fiskiskipum um allan heim. Samþykktin mun taka gildi í febrúar 2027 og eru það mikil tímamót. Eftirfarandi eru dæmi um hlutverk Samgöngustofu hvað varðar eftirlit, almenna stjórnsýslu og öryggi sjómanna. Það er meðal annars: 1) Útgáfa og staðfesting starfs- og réttindaskírteina og mat á hæfni sjómanna. 2) Eftirlit með gæða- og öryggiskröfum til skipa og útgáfu leyfa sem tryggja lögbundið ástand skipa. 3) Innleiðing og framfylgd alþjóðlegra og innlendra öryggisreglna og staðla. 4) Samþykki og viðurkenning þjálfunar- og endurmenntunaráætlunar fyrir sjómenn. 5) Fræðsla og forvarnir ásamt þátttöku í rannsóknum og greiningu atvika. 6) Almennt samstarf við sjóslysa- og björgunaraðila og alþjóðastofnanir[1] um öryggismál sjómanna. Með samstilltu átaki og ekki hvað síst þjálfun og árvekni sjófarenda hefur tekist að bæta öryggi þeirra. Sjómenn þurfa að vera eigin öryggisverðir og annarra um borð. Þeir þurfa að takast á við krefjandi og oft hættulegar aðstæður sem geta reynst erfiðar, langt fjarri landi. Sjómenn eiga þakkir og hrós skilið fyrir þá öryggismenningu sem þeir hafa tileinkað sér með frábærum árangri. Við skulum því heiðra þá á sjómannadaginn sem og aðra daga ársins. Höfundur er forstjóri Samgöngustofu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sjómannadagurinn Slysavarnir Mest lesið „Eigðu sjálfur þinn helvítis tjakk!“ Ólafur Hauksson Skoðun Hræðslubandalag elítunnar í fílabeinsturninum Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Prófessorinn, hagfræðingurinn og fullveldið Gunnar Ármannsson Skoðun Þegar allt verður forgangsmál Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Úr gráu yfir í grænt með hjálp 50.000 trjáa Margrét Rós Sigurjónsdóttir Skoðun Upptaka evru áhættusöm fyrir lítil hagkerfi Kristinn Sv. Helgason Skoðun Reyndi að hindra að Ísland nyti réttlætis Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Er Ísland að undirbúa nemendur fyrir framtíðina? Íris Þóra Birgisdóttir Skoðun Eilífðar smáblóm... Móheiður Hlíf Geirlaugsdóttir Skoðun Maðurinn sem treysti þjóðinni, en ekki lengur Halldór Jörgen Olesen Skoðun Skoðun Skoðun Þolendur sem vitni í eigin málum Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Maðurinn sem treysti þjóðinni, en ekki lengur Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Mælanlegt sjálfstæði þjóðar Sigurður Friðleifsson skrifar Skoðun Af hverju er netöryggisfræðsla grunninnviður? Margrét Valgerður Helgadóttir skrifar Skoðun Ferðaþjónustan er ekki endalaus tekjulind fyrir ríkissjóð Björn Ragnarsson skrifar Skoðun Hlustum á börn – líka þegar þau eru ósammála okkur Tótla I. Sæmundsdóttir skrifar Skoðun Stærsta hópverkefni Íslands Einar Örn Einarsson skrifar Skoðun Úr gráu yfir í grænt með hjálp 50.000 trjáa Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er Ísland að undirbúa nemendur fyrir framtíðina? Íris Þóra Birgisdóttir skrifar Skoðun Laugavegur 1: Húsvernd á villigötum Þórður Magnússon skrifar Skoðun Hræðslubandalag elítunnar í fílabeinsturninum Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Mikilvægi Fjarðarheiðarganga Steinar Björgvinsson skrifar Skoðun Prófessorinn, hagfræðingurinn og fullveldið Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Varnarsamningurinn og fullveldið Jóhannes Hraunfjörð Karlsson skrifar Skoðun Já, áfram Ísland! Óli Rúnar Ástþórsson skrifar Skoðun Þegar allt verður forgangsmál Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Sjálfstætt Grænland hefði bæði víðtækari rétt og meiri möguleika en Ísland innan ESB Júlíus Valsson skrifar Skoðun Takk, en NEI takk Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Reyndi að hindra að Ísland nyti réttlætis Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Upptaka evru áhættusöm fyrir lítil hagkerfi Kristinn Sv. Helgason skrifar Skoðun Reikningsdæmi handa Ögmundi Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Eilífðar smáblóm... Móheiður Hlíf Geirlaugsdóttir skrifar Skoðun „Eigðu sjálfur þinn helvítis tjakk!“ Ólafur Hauksson skrifar Skoðun Komið með skólabörnin í heimsókn á gamla leikskólann Elína Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Að tala tungum tveim Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Hver á íslenska fánann? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Huh eða ro? Freyja Rut Emilsdóttir skrifar Skoðun Vaðlaheiðargöng: greiðsluvilji er allt sem þarf Hilmar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Við erum öll í sama liði: mikilvægi þess að ræða við börn um virðingu í samskiptum Arna Hrönn Aradóttir skrifar Skoðun Verum JÁ-kvæð í ágúst Kristján Kristinsson skrifar Sjá meira
Skoðun Sjálfstætt Grænland hefði bæði víðtækari rétt og meiri möguleika en Ísland innan ESB Júlíus Valsson skrifar
Skoðun Við erum öll í sama liði: mikilvægi þess að ræða við börn um virðingu í samskiptum Arna Hrönn Aradóttir skrifar