Ráðinn staðarverkfræðingur Nýs Landspítala á Akureyri Atli Ísleifsson skrifar 10. júní 2026 13:24 Gunnar Líndal Sigurðsson. Gunnar Líndal Sigurðsson hefur verið ráðinn sem staðarverkfræðingur hjá Nýjum Landspítala ohf. (NLSH) vegna uppbyggingar félagsins á nýrri byggingu við Sjúkrahús Akureyrar (SAk).
Í tilkynningu segir að Gunnar Líndal, sem sé iðnaðarverkfræðingur og MBA executive, hafi starfað hjá SAk á umliðnum níu árum og sinnt stjórnunarstörfum, svo sem verið forstöðumaður rekstrardeildar, verkefnastjóri SAk varðandi undirbúnining og notendasamráð fyrir nýbygginguna auk þess að leiða fjölda annarra þverfaglegra verkefna, vinnuhópa og nefndir. „Gunnar Líndal gengdi einnig stöðu bæjarfulltrúa á Akureyri sem oddviti L-listans, í skamman tíma árið 2022. Þá hefur hann sinnt störfum fyrir handboltahreyfinguna á Akureyri, bæði í barna- og unglingaflokkum, hjá karlaliði Þórs og kvennaliði KA/Þórs. Ný legudeildarbygging mun gjörbreyta aðstæðum sjúklinga sem við núverandi aðstæður liggja á fjölbýlum og einnig er skortur á einangrunarherbergjum. Auk þess er húsnæði geðdeildarinnar í dag óviðunandi fyrir starfsemina og staðsetning hennar óhentug. Í nýbyggingunni, sem tengist, núverandi húsnæði verður komið upp aðstöðu fyrir skurðlækningadeild (36 stofur), lyflækningadeild (36 stofur) og geðdeild (12 sjúkrastofur og tveimur öryggiseiningum fyrir geðgjörgæslu) ásamt stoðrýmum og þá verður til staðar glæsileg nútím dag- og göngudeild geðdeildar. Þá liggur fyrir að ráðast þurfi í endurgerð á um 1.300 m2 vegna tengingar núverandi tengibyggingar við nýbyggingu. Nýbyggingin verður staðsett á núverandi bílaplani SAk, sunnan við núverandi húsnæði og því þarf að gera ráð fyrir færslu þeirra bílastæða sem hverfa auk þess að fjölga þarf bílastæðum í takt við aukið byggingarmagn á lóðinni. Framkvæmd á gatna- og veitnagerð auk jarðvinnu á grunni hússins hefst nú í sumar, auk þess sem vinnu- og verkefnabúðir fyrir verktaka og NLSH ohf. verða settar upp vestan megin við Selið. Unnið verður að uppsteypu hússins og innri frágangi á árunum 2027 til 2030. Gunnar Líndal mun starfa í hlutastörfum fyrir SAk og NLSH næstu þrjá mánuði en frá og með 1. september mun hann starfa að fullu sem staðarverkfræðingur á vegum NLSH í nýbyggingarverkefninu á SAk,“ segir í tilkynningunni.
Vistaskipti Landspítalinn Akureyri Mest lesið Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Viðskipti innlent Högnuðust um milljarð Viðskipti innlent Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Viðskipti innlent Verðbólga ekki meiri í tvö ár Viðskipti innlent Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Viðskipti innlent OpenAI hættir við að gefa út nýtt „svikult“ líkan Viðskipti erlent Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Viðskipti innlent Olíuflæðið nálgast fyrra horf en verð lækkar ekki Viðskipti erlent Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Viðskipti innlent Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Uppsagnir í Arion banka Loka Krambúðinni á Húsavík Atvinnulausum Íslendingum fjölgaði um 700 á einu ári Verulegur samdráttur hjá Isavia 50skills tryggir 729 milljónir í fjármögnun Mikill munur á afkomu almannatengla Vill að ríkissáttasemjari fái auknar valdheimildir í kjaradeilu Selja fyrir 400 milljónir í Síldarvinnslunni Setja upp fjörutíu smáhýsi í Þjórsárdal Sextán starfsmönnum sagt upp á Siglufirði Vilja að 23 lóðir verði seldar undan Vatnsendaerfingja Launahækkanir gætu orðið upptaktur að harðri lendingu Tíu milljarðarnir sem ráðherra segir hafa farið til bílaleiga Sonja ráðin viðskiptastjóri hjá OK Atvinnuleysi jókst á ný í ágúst Bein útsending: Kynna yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar Skýr merki um kólnandi vinnumarkað og hægari umsvif Breytingar í stjórn SVÞ og Örn ráðinn verkefna- og tengslastjóri Bein útsending: Manneskjan í miðju umbreytinga „Er tilgangurinn sérhagsmunir Viðreisnar?“ Sjá meira