Þórður leikstýrir kvikmyndaútgáfu Dead by Daylight Freyja Þórisdóttir skrifar 15. júní 2026 09:06 Fyrsta kvikmynd Þórðar í fullri lengd, Hin fordæmdu, var frumsýnd í janúar 2025. Hún fjallar um konu á 19. öld sem stendur frammi fyrir erfiðu vali þegar skip ferst og hún þarf að ákveða hvort hún ætli að bjarga skipsbrotsmönnunum eða halda í þær birgðir sem hún og hennar fólk þarf til að hafa veturinn af. Facebook/Þórður Pálsson Leikstjórinn Þórður Pálsson hefur verið fenginn til liðs við teymi sem vinnur nú að kvikmynd sem byggð er á hrollvekju- og spennuleiknum Dead by Daylight. Hann vakti víða athygli fyrir hrollvekjuna „Hin fordæmdu“ (á ensku The Damned) sem var frumsýnd í janúar 2025. Hann hefur einnig skapað og leikstýrt fyrstu íslensku Netflix Original þáttaröðinni „Brot“ (á ensku The Valhalla Murders) sem var frumsýnd á streymisveitunni árið 2020.
Bandaríska framleiðslufyrirtækið Blumhouse Atomic Monster, sem er þekkt fyrir hryllingsmyndir á borð við Split, Get Out og Paranormal Activity myndaseríuna stendur að bak verkefninu ásamt kanadíska töluvleikjaframleiðandanum Behaviour Interactive. Ásamt því að vinna að kvikmyndinni vinnur Þórður Pálsson nú að fjögurra þátta smáseríu, „Avalanche“, sem fjallar um veðurfræðing sem snýr aftur til þorpsins síns til að vara við yfirvofandi hamförum. „Það er engin betri stund en tíu ára afmælið til að deila þessum fréttum. Þórður er kvikmyndagerðarmaðurinn sem við treystum til að færa ‚Dead by Daylight‘ af skjánum sem þú spilar á yfir á hvíta tjaldið sem þú horfir á í kvikmyndahúsum,“ er haft eftir Jason Blum, stofnanda og forstjóra Blumhouse Atomic Monster í frétt bandaríska miðilsins Variety. Meðal tekjuhæstu stórmyndanna Í hverri umferð leiksins „Dead by Daylight“ eru fimm spilarar, þar af fjórir sem leika eftirlifendur á meðan sá fimmti er morðinginn. Verkefni eftirlifendanna er að forðast að nást á meðan þeir ljúka verkefnum sem gera þeim kleift að flýja, og verkefni morðingjans er að stöðva þá. Þótt áður fyrr hafi verið litið á slíkar kvikmyndir sem brandara í Hollywood hafa kvikmyndaútgáfur tölvuleikja orðið einhver arðbærustu verkefni í kvikmyndagerð en „A Minecraft Movie“ og „The Super Mario Bros. Movie“ voru meðal tekjuhæstu stórmynda sinna ára og skiluðu um 120 milljörðum og 160 milljörðum íslenskra króna.
Bíó og sjónvarp Leikjavísir Íslendingar erlendis Mest lesið Stjörnulífið: Sjóðheit skvísuferð til Ibiza Lífið Oliver Tree látinn 32 ára að aldri Lífið Ekki talað við Franco lengi og vill ekki vinna með honum aftur Bíó og sjónvarp Jakob Frímann stal senunni í hátískuskyrtu Lífið Inga Reynis selur hæð í Hafnarfirði Lífið Þórður leikstýrir kvikmyndaútgáfu Dead by Daylight Bíó og sjónvarp 50+: Fólk upplifir sig yngra en áður – og þróunin heldur áfram Áskorun Dagskráin í Reykjavík á 17. júní verður svona Lífið Óboðni sturtugesturinn sextán sentímetra kónguló Lífið Tyra Banks kærir Netflix fyrir ærumeiðingar Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Tyra Banks kærir Netflix fyrir ærumeiðingar Ekki talað við Franco lengi og vill ekki vinna með honum aftur Þórður leikstýrir kvikmyndaútgáfu Dead by Daylight Margaret Kerry er látin Fann ástina í örmum snyrtifræðings frá Staffordshire Harbour rýfur þögnina Sigurjón Sighvatsson heiðraður í Locarno James Handy stunginn til bana af syni kærustu sinnar Biðst afsökunar á áratugagömlu gríni með „blackface“ Youtube-leikstjórar kaffærðu Stjörnustríði Stjörnustríðs-leynivopnið Marcia Lucas látin Ástin sem eftir er sigursælust á Eddunni „Þetta er búið að vera eins og einhver brandari“ Barátta við fíkn, íslensk millistétt og æðavarp á Skjaldborg Rick og Morty á stóra skjáinn Nítján ára þegar Óskarsverðlaunahafi sýndi henni punginn Dóra og Glassriver náðu samkomulagi Stefnir Cameron fyrir að stela andliti hennar Tvær þáttaraðir og tvær myndir á leiðinni frá Vesturporti Andri Snær verðlaunaður og ný stikla fyrir Um tímann og vatnið Sjá meira