Tilboð Reita í uppbyggingu hjúkrunarheimilis valið Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 15. júní 2026 18:20 Svona er áformað að hjúkrunarheimilið líti út. Reitir Tilboð Reita í uppbyggingu á nýju hjúkrunarheimili á Akureyri var valið af Framkvæmdasýslunni – Ríkiseignum í útboði sem lauk nýlega. Hjúkrunarheimilið mun rísa við Þursaholt sex og rúma 140 íbúa.
Reitir greina frá þessu í tilkynningu til Kauphallarinnar. Hjúkranarheimilið verður um 9.100 fermetrar að stærð. Að framkvæmdum loknum tekur við verðtryggður leigusamningur milli Reita og Ríkiseigna til 25 ára um hjúkrunarheimilið þar sem Reitir munu annast rekstur húsnæðisins en Ríkiseignir fela öðrum rekstur hjúkrunarheimilisins. „Við fögnum tækifærinu að fá að leggja þekkingu og reynslu okkar á vogarskálarnar við að byggja upp nýtt og glæsilegt hjúkrunarheimili á Akureyri. Þróun fasteigna og innviða sem samfélagið þarfnast er liður í framtíðarsýn Reita og öldrun þjóðar kallar á stórtæka aukningu hjúkrunarheimila víðs vegar um land. Við munum leggja metnað í örugga og hraða uppbyggingu svo mæta megi þörfinni sem fer vaxandi dag frá degi,“ segir Guðni Aðalsteinsson, forstjóri Reita. Hjúkrunarheimilið verður byggt með samblandi af forsmíðuðum og forsteyptum einingum og munu Reitir ráðast í hönnun og framkvæmdirnar í samstarfi við Art-Verk ehf. Alls bárust 10 tilboð í verkefnið frá fimm aðilum og var tilboð Reita metið hagstæðast samkvæmt valforsendum útboðslýsingar. Eftir töku tilboðs verða frumuppdrættir leigusala fullunnir í samstarfi við rekstraraðila og FSRE. Að því loknu hefst vinna við gerð aðaluppdrátta og fullnaðarhönnun áður en framkvæmdir hefjast svo að fullu.
Reitir fasteignafélag Akureyri Mest lesið Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Viðskipti innlent Högnuðust um milljarð Viðskipti innlent Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Viðskipti innlent Verðbólga ekki meiri í tvö ár Viðskipti innlent Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Viðskipti innlent OpenAI hættir við að gefa út nýtt „svikult“ líkan Viðskipti erlent Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Viðskipti innlent Olíuflæðið nálgast fyrra horf en verð lækkar ekki Viðskipti erlent Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Viðskipti innlent Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Uppsagnir í Arion banka Loka Krambúðinni á Húsavík Atvinnulausum Íslendingum fjölgaði um 700 á einu ári Verulegur samdráttur hjá Isavia 50skills tryggir 729 milljónir í fjármögnun Mikill munur á afkomu almannatengla Vill að ríkissáttasemjari fái auknar valdheimildir í kjaradeilu Selja fyrir 400 milljónir í Síldarvinnslunni Setja upp fjörutíu smáhýsi í Þjórsárdal Sextán starfsmönnum sagt upp á Siglufirði Vilja að 23 lóðir verði seldar undan Vatnsendaerfingja Launahækkanir gætu orðið upptaktur að harðri lendingu Tíu milljarðarnir sem ráðherra segir hafa farið til bílaleiga Sonja ráðin viðskiptastjóri hjá OK Atvinnuleysi jókst á ný í ágúst Bein útsending: Kynna yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar Skýr merki um kólnandi vinnumarkað og hægari umsvif Breytingar í stjórn SVÞ og Örn ráðinn verkefna- og tengslastjóri Bein útsending: Manneskjan í miðju umbreytinga „Er tilgangurinn sérhagsmunir Viðreisnar?“ Sjá meira