Þróunin í átt að verða enn meiri kaupendamarkaður Atli Ísleifsson skrifar 18. júní 2026 06:13 Helmingur nýrra íbúða á söluskrá eru nú til sölu í meira en 260 daga samkvæmt nýrri skýrslu HMS. Vísir/Vilhelm Fasteignamarkaðurinn á Íslandi er enn í aðlögunarfasa með raunverðslækkunum og hægari sölu. Auglýsingatími íbúða hefur lengst töluvert undanfarið en tæplega fjórðungur allra íbúða sem auglýstar voru til sölu í byrjun júní hafði verið á söluskrá í meira en tólf mánuði samanborið við um 16 prósent á sama tíma í fyrra. Fasteignasalar telja markaðinn enn þróast í átt að því að verða meiri kaupendamarkaður.
Þetta er á meðal þess sem fram kemur í nýrri mánaðarskýrslu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar sem birt var í dag. Þar segir að helmingur óseldra nýrra íbúða hafi verið á sölu í meira en 260 daga samanborið við 183 daga í júní í fyrra. Þó nokkrum fjölda kaupsamninga sé þó þinglýst, þótt þeir séu að jafnaði færri en á sama tíma í fyrra. Hlutdeild fyrstu kaupenda hefur verið talsverð síðustu mánuði þrátt fyrir að fjármögnunarkostnaður fasteigna hafi verið hár um nokkurt skeið. Rýmkun lánþegaskilyrða fyrstu kaupenda og breytingar á reglum um hlutdeildarlán hafa þar áhrif. Fram kemur að rétt tæplega 40 prósent kaupsamninga í apríl hafi varðað fyrstu fasteignakaup, samkvæmt mælaborði HMS um fyrstu kaupendur. Það sé hæsta hlutfall fyrstu kaupa sem mælst hafi innan mánaðar á því tímabili sem mælaborðið taki til, það er frá á ársbyrjun árið 2007. Nýskráðum leigusamningum fækkar Í skýrslunni segir að á leigumarkaði megi jafnframt greina merki um minni eftirspurnarþrýsting. „Áfram hægir á hækkun leiguverðs sem hefur staðið í stað að raunvirði undanfarið ár. Þá hafa færri nýir leigusamningar tekið gildi í hverjum mánuði í ár samanborið við í fyrra þrátt fyrir að almenn skráningarskylda hafi tekið gildi um áramótin. Fleiri leigusamningar féllu jafnframt úr gildi í nýliðnum maí samanborið við í maí í fyrra, en leigusamningar falla að jafnaði úr gildi í stórum stíl við lok skólaárs á vorin. Óverðtryggð lán áfram í meirihluta nýrra lána Lánamarkaðurinn hefur einkennst af aukinni ásókn heimila í óverðtryggð íbúðalán hjá bönkunum undanfarið eftir að verðtryggð lán frá lífeyrissjóðunum höfðu verið allsráðandi í fyrra. Bankarnir hafa lítið nýtt sér undanþáguheimildir frá hámarki greiðslubyrðarhlutfalls, en hærra hámarksveðsetningahlutfall hefur nýst fyrstu kaupendum. Útlit fyrir að færri íbúðir verði fullbúnar annað árið í röð Byggingarmarkaðurinn hefur verið rólegri það sem af er ári samanborið við undanfarin ár en færri nýjar íbúðir hafa orðið fullbúnar á fyrstu fimm mánuðum þessa árs samanborið við síðustu tvö ár. Hagtölur benda einnig til þess að íbúðafjárfesting hafi dregist saman í ár, auk þess sem starfsfólki í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð hefur fækkað lítillega,“ segir í skýrslunni. Enn mikill kaupendamarkaður Í skýrslunni segir að fasteignasalar telji markaðinn enn þróast í átt að því að verða meiri kaupendamarkaður ef marka megi niðurstöður mánaðarlegrar viðhorfskönnunar HMS meðal félagsmanna í Félagi fasteignasala. Könnunin var lögð fyrir í fjórtánda sinn nú í upphafi júnímánaðar og svarhlutfall var tæplega 32%, en langflestir svarendur miðla aðallega fasteignum á höfuðborgarsvæðinu og í nágrenni þess. Rétt rúmlega helmingur svarenda telur markaðinn vera kaupendamarkað og um 39% til viðbótar telja að um mikinn kaupendamarkað sé að ræða. Um 10% svarenda telja markaðinn hvorki vera kaupenda- né seljendamarkað en enginn telur að markaðnum megi lýsa sem seljendamarkaði þessa stundina. Á kaupendamarkaði, þar sem seljendur eru hlutfallslega margir samanborið við mögulega kaupendur, er eðlilegt að verðþrýstingur sé takmarkaður. Það er einmitt mat rétt rúmlega 70% fasteignasala að verð á fasteignamarkaði fari lækkandi þessa stundina. Rétt tæplega 30% svarenda telja verð á markaði vera stöðugt en einungis 1% svarenda telja verð fara hækkandi. Líkt og sjá má á myndinni hér að neðan telja fasteignasalar að dregið hafi úr verðþrýstingi á markaðnum undanfarið ár á sama tíma og markaðurinn hefur þróast í átt að því að verða meiri kaupendamarkaður. Viðhorf fasteignasala er í samræmi við þróun vísitölu íbúðaverðs sem hefur lækkað að raunvirði á ársgrundvelli undanfarna 10 mánuði,“ segir í skýrslunni.
Fasteignamarkaður Húsnæðismál Mest lesið John Strickland: Icelandair þarf að vera snjallt þegar nýjar þotur breyta leiknum Viðskipti innlent Þróunin í þá átt að verða enn meiri kaupendamarkaður Viðskipti innlent Samkeppnishæfni Íslands og annarra Norðurlanda fellur milli ára Viðskipti innlent Milla ætlar í formanninn Viðskipti innlent Nýtt endurskoðunar- og ráðgjafarfyrirtæki undir merkjum LOGOS Viðskipti innlent ESB gæti markað endalok umdeildra skilmála Icelandair Viðskipti innlent Að fólk skilji garðhúsgagnabúslóðirnar eftir heima Neytendur Sumarfrísdagur númer átta mesta sælan Atvinnulíf Tilboð Reita í uppbyggingu hjúkrunarheimilis valið Viðskipti innlent Ekki sést til lands í deilunni sem hefur haft áhrif á yfir sjö þúsund farþega Viðskipti innlent Fleiri fréttir Alvotech aflaði 20,6 milljarða í útboði og áskriftum John Strickland: Icelandair þarf að vera snjallt þegar nýjar þotur breyta leiknum Samkeppnishæfni Íslands og annarra Norðurlanda fellur milli ára Þróunin í þá átt að verða enn meiri kaupendamarkaður Nýtt endurskoðunar- og ráðgjafarfyrirtæki undir merkjum LOGOS Villi Birgis grætur Krambúðina á Akranesi Bláa lónið festir kaup á Arctic Adventures og stefnir á markað LánHeimur ekki undir eftirliti fjármálaeftirlits ESB gæti markað endalok umdeildra skilmála Icelandair Byrjaði sem fulltrúi í söludeild dótturfyrirtækis og er nú framkvæmdastjóri hjá Eimskip Klára námslánið eða greiða inn á húsnæðislánið? Milla ætlar í formanninn Efna til útboðs hlutabréfa að virði 125 milljóna dala Tilboð Reita í uppbyggingu hjúkrunarheimilis valið Ekki sést til lands í deilunni sem hefur haft áhrif á yfir sjö þúsund farþega Sigurjón nýr framkvæmdastjóri Mediacom Ógnarlöng stefna Samkeppniseftirlitsins kemst að eftir allt saman Hakkarar geti lesið gögn af læstri tölvu á tíu mínútum án lykilorðs Sýndareftirlit ef fylgjast eigi með skemmtistöðum á skrifstofutíma Tillögur ráðherra sagðar rýra virði bankanna um tugi milljarða Fjármálaráðherra veldur fyrrverandi varaformanni Viðreisnar vonbrigðum Höskuldur nýr framkvæmdastjóri afþreyingar- og ævintýrasviðs Enn fjölgar aflýsingum Ferðaþjónusturisar hætta við samruna Deilan harðnar á ný: Fleiri aflýsingar hjá Icelandair Hækka loðnuráðgjöf aftur í um 358 þúsund tonn Ísland sjaldnast uppfyllt upptökuskilyrði fyrir evru Þurfi að taka leiðinlegar ákvarðanir Björgvin kjörinn nýr formaður FHG Festa og Gildi vilja sameinast Sjá meira