Sjálfbærni sem drifkraftur verðmætasköpunar Jón Gunnarsson, Sara Júlía Baldvinsdóttir, Helga Margrét Óskarsdóttir, Júlía Huang, Jóhanna Sól Erlendsdóttir, Ólöf Helga Þórmundsdóttir, Alda Marín Jóhannsdóttir, Jóna Rut Vignir, Pétur Melax og Rakel Sara Magnúsdóttir skrifa 23. júní 2026 13:03 Sjálfbærni er lykillinn að sterkari framtíð Umræða um sjálfbærni á það til að rata á ákveðnar villigötur. Fyrir marga hefur hugtakið orðið samheiti yfir auknar reglugerðir og nýjar kvaðir sem virðast fyrst og fremst fela í sér kostnað og flækjustig án þess að fólk sjái augljósan ávinning fyrir sig sjálft eða sinn rekstur. Sú gagnrýni er ekki alltaf úr lausu lofti gripin enda geta illa útfærðar reglur skapað óþarfa flækjustig. En þegar umræðan snýst meira um kvaðir og reglugerðir en þann langtímaávinning sem sjálfbærari samfélög geta skapað verður ekki skrýtið að andstaða myndist. Þá fer fókusinn frá því sem skiptir raunverulega máli og sjálfbærni verður í hugum fólks eitthvað sem er þröngvað upp á samfélagið í stað þess að vera skynsamleg nálgun á hvernig við byggjum upp sterkara hagkerfi, aukið öryggi og betri framtíð. Minni sóun, meiri verðmæti Sjálfbærni snýst um að mæta þörfum samtímans án þess að skerða möguleika komandi kynslóða til að mæta sínum þörfum. Eðli málsins samkvæmt eykst verðmætasköpun til lengri tíma ef okkur tekst að skapa sömu eða meiri verðmæti með minni aðföngum, minni sóun og án þess að ganga hraðar á auðlindir en þær endurnýjast. Þetta er einföld hagfræði og skynsemi sem styrkir bæði hagvöxt og samkeppnishæfni til framtíðar. Fyrirtæki sem nýta hráefni betur bæta framlegð. Fyrirtæki sem draga úr orkunotkun lækka kostnað. Fyrirtæki sem minnka sóun verða samkeppnishæfari. Þetta snýst því ekki bara um umhverfið heldur einnig um fjárhagslega og rekstrarlega hagsmuni fyrirtækja. Sjálfbærni þarf því ekki að vera andstæða hagvaxtar heldur getur, þegar vel tekst til, orðið ein af forsendum sterkara hagkerfis til lengri tíma. Sama hugsun á einnig við víðar í samfélaginu. Kerfi sem nýta auðlindir betur, draga úr óþarfa sóun og stuðla að meiri skilvirkni verða yfirleitt bæði hagkvæmari og stöðugri til lengri tíma. Þegar betur tekst að nýta þau verðmæti sem þegar eru til staðar skapast meiri ávinningur fyrir samfélagið í heild með minni tilkostnaði og minni viðkvæmni gagnvart sveiflum og skorti. Sjálfbærni styrkir öryggi þjóðarinnar Sjálfbærni er líka öryggismál og kannski hefur það aldrei verið jafn augljóst og nú. Sveiflur í verði á olíu og gasi síðustu vikur vegna átakanna í Miðausturlöndum minna okkur á hversu viðkvæm hagkerfi geta verið þegar þau reiða sig á innflutta orkugjafa og óstöðuga alþjóðamarkaði. Hér á Íslandi er staðan allt önnur en í flestum öðrum löndum. Við höfum byggt upp innlenda og sjálfbæra raforkuframleiðslu og húshitun sem gerir það að verkum að við erum að mjög miklu leyti varin fyrir þessum ytri áhrifum. Það er því ekki aðeins jákvætt fyrir loftslag og umhverfi að nýta þær gífurlegu endurnýjanlegu auðlindir sem við höfum hér á landi á hagkvæman hátt, heldur styrkir það einnig efnahagslegt öryggi og samfélagslegt áfallaþol. Við búum við meiri stöðugleika og minni áhættu vegna þess að við höfum byggt upp kerfi sem gerir okkur sjálfum næg að stórum hluta. Þetta er einn sterkasti mælikvarðinn á raunverulega sjálfbærni. Hún snýst nefnilega ekki bara um loftslag eða kolefnisspor heldur líka um getu samfélaga til að standa sterk þegar heimurinn verður óstöðugri. Það sama á við um matvælaframleiðslu, innviði og aðfangakeðjur. Samfélög sem geta framleitt stærri hluta eigin nauðsynjavara og eru minna háð viðkvæmum alþjóðlegum birgðakeðjum standa sterkari þegar áföll dynja yfir. Fyrirtæki sem stytta flutningsleiðir og dreifa áhættu í aðföngum sínum verða sömuleiðis betur í stakk búin til að takast á við sveiflur og óvissu. Sjálfbærnimál eiga skilið betri umræðu Það sem umræðan þarf því að endurspegla betur er að sjálfbærni þarf ekki að fela í sér minni lífsgæði eða hamla verðmætasköpun. Þvert á móti getur hóflegri neysla, minni sóun og betri nýting auðlinda styrkt grunn samfélagsins og hagkerfisins til lengri tíma. Of oft hefur umræðan verið sett fram eins og sjálfbærni sé fyrst og fremst fórnarkostnaður sem samfélagið þurfi að bera fyrir framtíðina. Sú nálgun nær ekki utan um heildarmyndina. Í sinni praktískustu mynd leiðir sjálfbærni yfirleitt til meiri hagkvæmni, meiri stöðugleika, betri samkeppnishæfni og meira sjálfstæðis. Hún dregur úr áhættu og gerir bæði fyrirtæki og samfélög betur í stakk búin til að takast á við áföll og breytingar í heiminum í kringum okkur. Það er góð og gild ástæða fyrir því að stjórnvöld hér á landi og í löndunum í kringum okkur leggja sífellt meiri áherslu á sjálfbærni til lengri tíma. Reglugerðir, auknar kröfur og metnaðarfull markmið eru ekki sett fram af handahófi heldur vegna þess að samfélög sem byggja upp sjálfbærari innviði og hagkerfi verða sterkari til framtíðar. Til lengri tíma mun það skapa forskot gagnvart þeim samfélögum sem ganga hraðar á takmarkaðar auðlindir sínar, búa við meiri óstöðugleika og eru háðari utanaðkomandi áhrifum. Við þurfum því faglegri og þroskaðri umræðu um sjálfbærnimál. Umræðu sem snýst minna um andstöðu við auknar kvaðir og reglugerðir og meira um langtímaávinning þess að vera sjálfbær. Samfélög sem geta skapað meiri verðmæti með minni sóun, betri nýtingu auðlinda og minni viðkvæmni gagnvart ytri áföllum munu standa sterkust til framtíðar. Höfundar eru fulltrúar Ungmennaráðs Festu - miðstöðvar um sjálfbærni. Jón Gunnarsson, Sara Júlía Baldvinsdóttir, Helga Margrét Óskarsdóttir, Júlía Huang, Jóhanna Sól Erlendsdóttir, Ólöf Helga Þórmundsdóttir, Alda Marín Jóhannsdóttir, Jóna Rut Vignir, Pétur Melax og Rakel Sara Magnúsdóttir. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sjálfbærni Mest lesið 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir Skoðun Af morðingjum og mannkostum Svala Magnea Ásdísardóttir Skoðun Myndin sem þú mátt ekki sjá Anna Laufey Stefánsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson Skoðun Þegar forstjórinn smíðar hugbúnaðinn sjálfur Ása Rún Björnsdóttir,Óttar Guðmundsson Skoðun Pólitískt fleipur landlæknis Bjarni Freyr Guðmundsson Skoðun Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Landakortið minnkar ekki þótt lögreglustjórum fækki Lárus Bjarnason skrifar Skoðun Komdu með nestispeningana Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Ósýnilegt fólk og sýnileg ábyrgð Þorvaldur Óttar Guðlaugsson skrifar Skoðun Bókun 35 - þarf virkilega að breyta stjórnarskránni? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun „Ný“ markmið í grunnskólum duga ekki Þórgunnur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar Skoðun Pólitískt fleipur landlæknis Bjarni Freyr Guðmundsson skrifar Skoðun Ákall um samstarf – Ekki bara samtal Anton Kári Halldórsson skrifar Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar Skoðun Myndin sem þú mátt ekki sjá Anna Laufey Stefánsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Skoðun Áttu áttu? Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir skrifar Skoðun Þegar sannleikurinn þjónar ekki óttanum Helena Jónsdóttir skrifar Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Ísland sé frjálst, meðan sól gyllir haf Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir skrifar Skoðun Gilda lögin bara þegar okkur hentar? Sandra Hlín Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson skrifar Skoðun „Nýjasta tíska, nýjasta tíska –allt innan fjárheimilda!“ Agla Þyri Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Reykjavík á ekki að gera allt ein Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ósýnilega fólkið Kristbjörg Þórisdóttir skrifar Skoðun Rammaáætlun: Tvær tillögur – tvenns konar vinnubrögð Katrín Helga Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson skrifar Skoðun Þegar tíminn skiptir öllu Halla Þorvaldsdóttir skrifar Skoðun Tuttugu ár í þjónustu samfélagsins Árni Hrannar Haraldsson skrifar Skoðun Þegar forstjórinn smíðar hugbúnaðinn sjálfur Ása Rún Björnsdóttir,Óttar Guðmundsson skrifar Skoðun Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir skrifar Skoðun Af morðingjum og mannkostum Svala Magnea Ásdísardóttir skrifar Sjá meira
75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun
Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson Skoðun
Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir Skoðun
Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar
Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar
Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson skrifar
Skoðun Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir skrifar
75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun
Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson Skoðun
Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir Skoðun