Landakortið minnkar ekki þótt lögreglustjórum fækki Lárus Bjarnason skrifar 21. október 2026 17:30 Áform um að sameina lögregluembættin á Austurlandi, Suðurlandi og í Vestmannaeyjum vekja alvarlegar spurningar um öryggi íbúa og stjórnun löggæslu. Áður en lengra er haldið verður ríkisstjórnin að sýna fram á hvernig breytingarnar eiga að bæta þjónustuna hér fyrir austan. Stærra umdæmi er engin trygging fyrir öflugri löggæslu. Í maí kynnti dómsmálaráðherra áform um að fækka lögregluembættum úr níu í fjögur eða fimm. Í september var talan komin niður í þrjú. Þetta er veruleg stefnubreyting á fáeinum mánuðum. Kynna þarf gögnin sem réttlæta hana og sýna hvernig mismunandi kostir voru metnir. Fjöldi embætta verður að ráðast af verkefnum og aðstæðum, en síðan má teikna skipuritið. Ég tel að halda eigi sjálfstæðu lögregluembætti á Austurlandi og efla það. Reynsla mín af störfum sýslumanns og bæjarfógeta, sem fól í sér lögreglustjórn, hér fyrir austan, hefur kennt mér að landafræði, staðarþekking og skýrt ákvörðunarvald ráða miklu þegar á reynir. Staðarþekking er hluti viðbúnaðarins Austurland er víðfeðmt og samgöngur viðkvæmar. Fjallvegir, langar vegalengdir og óveður geta torveldað aðstoð þegar hennar er mest þörf. Skriðuföllin á Seyðisfirði í desember 2020 eru okkur nærtæk áminning um hversu snögglega aðstæður geta breyst. Staðarþekking felst í miklu fleiru en að rata milli bæja. Hún felst í þekkingu á hættusvæðum, samgönguleiðum, tiltækum búnaði og þeim sem geta brugðist við. Hún byggist á daglegu samstarfi lögreglu, sveitarfélaga, björgunarsveita, slökkviliða, heilbrigðisþjónustu og annarra viðbragðsaðila. Þessi þekking hverfur auðvitað ekki sjálfkrafa við sameiningu embætta. Hættan er sú að hún fái minna vægi þegar ákvörðunarvald og forgangsröðun fjarlægjast svæðið. Þá geta þeir sem þekkja aðstæðurnar best þurft að sækja heimildir til stjórnenda sem bera jafnframt ábyrgð á allt öðrum og fjarlægum verkefnum. Viðbragðsáætlanir þarf að æfa, manna og styðja skýrum valdheimildum. Á Austurlandi eru í gildi fjöldinn allur af sérstökum viðbragðsáætlunum Almannavarna auk almennra viðbragðsáætlana. Sem dæmi um sérstakar áætlanir má nefna viðbragðsáætlun við stíflurofi í Hálslóni, ferjuslysaáætlun vegna Norrönnu, flugslysaáætlun vegna Egilsstaðaflugvallar og svo mætti lengi telja. Þegar áföll verða á fleiri en einum stað Fyrirhuguð sameining vekur sérstaka spurningu: Hvað gerist þegar alvarlegt ástand skapast samtímis á Suðurlandi og Austurlandi? Eldgos, flóð eða önnur umfangsmikil aðgerð sunnanlands getur kallað á mikinn mannafla og athygli stjórnenda. Á sama tíma getur þurft að rýma byggð eystra eða takast þarf á við stórslys. Við slíkar aðstæður verður að liggja fyrir hver ræður mannaflanum, hver tekur ákvarðanir og hvaða viðbúnaður er tryggður á hvoru svæði. Sameiginleg yfirstjórn getur auðveldað samhæfingu. Hún getur líka orðið sameiginlegur flöskuháls. Áður en skipulaginu er breytt þarf að prófa það gagnvart raunhæfum sviðsmyndum, þar á meðal samtíma áföllum og rofi á samgöngum eða fjarskiptum. Alþjóðleg landamærastöð krefst öflugrar löggæslu Seyðisfjörður er ein helsta gátt Íslands til umheimsins á sjó. Ferjusiglingar og komur skemmtiferðaskipa kalla á landamæraeftirlit og viðbúnað sem verður að meta sérstaklega. Nú eru jafnframt til umræðu reglulegar siglingar milli Aberdeen og Seyðisfjarðar. Þær eru enn á undirbúningsstigi og samkvæmt nýlegri umfjöllun gætu nokkur ár liðið þar til þær yrðu að veruleika. Skotland er utan Schengen og því þarf sérstaklega að undirbúa landamæraeftirlit ef af siglingunum verður. Slík þróun kallar á mannafla, búnað, þjálfun og rannsóknargetu. Landamærastöð þarf að geta brugðist við fölsuðum skilríkjum, grun um mansal og annarri alþjóðlegri brotastarfsemi. Þetta eru verkefni sem íslenska ríkið verður að fjármagna í samræmi við umfang þeirra. Undirfjármögnun verður ekki leyst með skipuriti Bæjarráð Fjarðabyggðar hefur mótmælt sameiningunni og bent á langvarandi kröfur sveitarfélaga um fleiri lögreglumenn, bættan búnað og aukið landamæraeftirlit. Þar er jafnframt kallað eftir skýrum upplýsingum um valdheimildir, ráðstöfun mannafla, fjármögnun og stjórnun almannavarna. Þetta eru grundvallarspurningar sem verður að svara. Sveitarstjórn Múlaþings er væntanlega sama sinnis og mun þá setja fram sínar athugasemdir. Ef vantar lögreglumenn á vakt þarf að fjölga þeim. Ef búnað skortir þarf að útvega hann. Ef fjárveitingar duga ekki fyrir verkefnunum þarf að leiðrétta þær. Sameiningin sjálf fjölgar engum á vakt. Hún styttir heldur ekki leiðina á vettvang. Ráðherra hefur lýst því yfir að lögreglustöðvum verði ekki fækkað og starfsfólki ekki sagt upp vegna breytinganna. Það er jákvætt, en segir lítið um raunverulega þjónustu. Starfsstöð getur haldið nafni sínu og húsnæði þótt sérfræðiþekking, fjárhagslegt svigrúm og ákvörðunarvald færist annað. Hvar verða rannsóknirnar? Sama gildir um rannsóknir sakamála. Leggja þarf fram skýra áætlun um staðsetningu rannsóknardeildar, mannafla hennar og verkefni. Hvaða rannsóknargeta verður tryggð á Austurlandi? Hver ákveður forgangsröðun þegar alvarleg mál koma upp samtímis á ólíkum stöðum í nýju stórumdæmi? Fyrstu viðbrögð geta ráðið úrslitum um rannsókn. Tryggja þarf vettvang, safna sönnunargögnum og yfirheyra vitni. Aðgangur að sérhæfðu baklandi er mikilvægur, en staðbundin rannsóknargeta verður líka að vera til staðar. Einnig þarf að meta áhrif breytinganna á ráðningar og mannauð. Ef sérhæfð störf og tækifæri til framgangs færast úr landshlutanum getur orðið erfiðara að halda þar reyndu fólki. Slíkt tap verður seint bætt með fyrirheitum um fjarþjónustu. Sýnið fram á ávinninginn Það er eðlilegt að efla samstarf lögregluembætta, sameiginlega stoðþjónustu og aðgang að sérfræðingum. Ríkisstjórnin þarf hins vegar að sýna hvers vegna sjálfstætt embætti á Austurlandi standi slíkum umbótum í vegi. Mikið og gott starf hefur verið lagt í samþættingu og samvinnu embætta nú þegar. Áður en ákvörðun er tekin þarf að birta mat á áhrifum á viðbragðstíma, almannavarnir, rannsóknir, landamæraeftirlit og starfsmannahald. Einnig þarf að liggja fyrir kostnaðarmat sem tekur til aðlögunar, ferðalaga og endurskoðunar viðbragðsáætlana. Bera verður sameininguna saman við þann kost að efla núverandi embætti. Samráð þarf að fara fram meðan enn er hægt að breyta niðurstöðunni. Sveitarfélög, starfsfólk og viðbragðsaðilar þurfa að fá gögn og tíma til að leggja raunhæft mat á tillögurnar. Ég leggst gegn því að sjálfstætt lögregluembætti á Austurlandi verði lagt niður. Hér þarf öfluga lögreglu með nægan mannafla, viðeigandi búnað og skýrt ákvörðunarvald í landshlutanum. Skýrslur ríkisendurskoðunar sýna að undirbúningur sameiningar stofnana hefur oft ekki verið nægur og ekki skilað tilætluðum árangri. Landakortið minnkar ekki þótt lögreglustjórum fækki. Höfundur er fyrrverandi bæjarfógeti á Seyðisfirði og sýslumaður í Norður-Múlasýslu. Fyrrverandi sýslumaður á Austurlandi. Sveitarstjórnarfulltrúi Miðflokksins í Múlaþingi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Lögreglan Múlaþing Mest lesið 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason Skoðun Af morðingjum og mannkostum Svala Magnea Ásdísardóttir Skoðun Myndin sem þú mátt ekki sjá Anna Laufey Stefánsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Þegar forstjórinn smíðar hugbúnaðinn sjálfur Ása Rún Björnsdóttir,Óttar Guðmundsson Skoðun Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hvernig samfélagi viltu búa í? Jóna Björk Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar Skoðun Þegar íslenskt auglýsingafé leitar til erlendra tæknirisa Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Námsmat í 10. bekk skólaárið 2026-2027 Gauti Eiríksson skrifar Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Landakortið minnkar ekki þótt lögreglustjórum fækki Lárus Bjarnason skrifar Skoðun Komdu með nestispeningana Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Ósýnilegt fólk og sýnileg ábyrgð Þorvaldur Óttar Guðlaugsson skrifar Skoðun Bókun 35 - þarf virkilega að breyta stjórnarskránni? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun „Ný“ markmið í grunnskólum duga ekki Þórgunnur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar Skoðun Pólitískt fleipur landlæknis Bjarni Freyr Guðmundsson skrifar Skoðun Ákall um samstarf – Ekki bara samtal Anton Kári Halldórsson skrifar Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar Skoðun Myndin sem þú mátt ekki sjá Anna Laufey Stefánsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Skoðun Áttu áttu? Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir skrifar Skoðun Þegar sannleikurinn þjónar ekki óttanum Helena Jónsdóttir skrifar Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Ísland sé frjálst, meðan sól gyllir haf Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir skrifar Skoðun Gilda lögin bara þegar okkur hentar? Sandra Hlín Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson skrifar Skoðun „Nýjasta tíska, nýjasta tíska –allt innan fjárheimilda!“ Agla Þyri Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Reykjavík á ekki að gera allt ein Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ósýnilega fólkið Kristbjörg Þórisdóttir skrifar Skoðun Rammaáætlun: Tvær tillögur – tvenns konar vinnubrögð Katrín Helga Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson skrifar Skoðun Þegar tíminn skiptir öllu Halla Þorvaldsdóttir skrifar Sjá meira
75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun
Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson Skoðun
Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir Skoðun
Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar
Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar
Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar
Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson skrifar
75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun
Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson Skoðun
Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir Skoðun