Skoðun

Komdu með nestis­peningana

Sigvaldi Einarsson skrifar

Þann 30. október taka gildi nýir viðskiptaskilmálar Meta, móðurfélags Facebook og Instagram. Samkvæmt þeim má Meta nota sjálfvirka söfnunarforrit til að sækja efni af vefsíðum sem tengjast viðskiptareikningum hjá fyrirtækinu, og nota það til að þjálfa vörur sínar, þar á meðal gervigreind. Undir þetta falla nær allir fjölmiðlar, fyrirtæki, félög og stofnanir sem halda úti síðu á Facebook. Það er engin leið að hafna skilmálunum nema hætta að nota miðla Meta í viðskiptaskyni.

Kolbeinn Tumi Daðason, ritstjóri fréttastofu Sýnar, sem rekur Vísi, lýsti þessu í samtali við RÚV í dag. Hann bendir á að hér sé litið svo á að samþykki felist í því að gera ekki neitt, og að fæst fyrirtæki átti sig á því. Á milli þrjú og fimm prósent heimsókna á Vísi koma í gegnum Facebook. Það er ekki stór hluti, en nógu stór til að enginn vill missa hann. Og nú hyggst Meta láta fyrirtæki greiða fyrir að deila tenglum. Kolbeinn líkir þessu við einelti á skólalóð: Komdu með nestispeningana eða ég ber þig.

Samlíkingin er óþægilega nákvæm.

Hver ræður vefnum þínum?

Meta segir að ekkert breytist í raun, heldur hafi ákvæði sem áður voru á víð og dreif verið sameinuð, og að vefeigendur geti enn lokað á söfnunarforrit með hefðbundnum hætti. Lögfræðingar sem bandaríska fjölmiðlarannsóknasetrið Nieman Lab ræddi við eru ekki jafn vissir. James Grimmelmann, prófessor við Cornell háskóla, segir að skilmálarnir gætu heimilað Meta að þjálfa gervigreind á öllu efni vefsins, jafnvel í samkeppni við fjölmiðilinn sjálfan.

Fyrir Ísland skiptir þetta meira máli en fyrir flest önnur lönd. Íslenskur texti er takmörkuð auðlind. Fréttir, greinar og skrif á íslensku eru einmitt það efni sem gervigreind þarf til að læra málið okkar. Í síðustu viku skilaði starfshópur forsætisráðherra skýrslunni Gervigreind til góðs, þar sem gervigreind á íslensku er eitt þriggja forgangsmála. Ef þjálfunargögnin okkar renna ókeypis til erlendra tæknirisa á meðan við reynum að byggja upp eigin getu, erum við að gefa frá okkur það sem við eigum verðmætast.

Útgöngukostnaðurinn

Fullveldi á stafrænni öld snýst ekki um að eiga allt sjálf. Það snýst um hvað það kostar okkur að komast af án annarra. Í dag er sá kostnaður hár. Fjölmiðlar, íþróttafélög, sveitarfélög, smáfyrirtæki og góðgerðarfélög eiga nær allt sitt samband við almenning í gegnum einn bandarískan risa. Ég hef sjálfur fengið að finna fyrir því hvað gerist þegar sá risi ákveður að takmarka dreifingu.

Reynslan erlendis sýnir valdahlutföllin. Þegar Kanada setti lög árið 2023 sem áttu að láta tæknirisa greiða fjölmiðlum fyrir fréttaefni svaraði Meta með því að loka á fréttir í landinu. Eitt lítið land getur ekki unnið þennan slag eitt og sér. Sex ára barn ræður ekki við tólf ára hrekkjusvín.

En það þýðir ekki að við séum varnarlaus. Ég sé þrjár leiðir sem styðja hver aðra.

Í fyrsta lagi samstaða. Íslenskir fjölmiðlar eiga að standa saman, eins og Kolbeinn kallar eftir, og helst með norrænum systurmiðlum. Ein rödd frá Norðurlöndum vegur þyngra en margar litlar.

Í öðru lagi reglur. Lög Evrópusambandsins um stafræna þjónustu (Digital Services Act), sem leggja skyldur á stærstu netvettvangana, hafa ekki enn verið tekin upp í EES samninginn. Þar eru Íslendingar verr settir en nágrannar okkar í Evrópusambandinu. Það þarf að breytast sem fyrst.

Í þriðja lagi valkostir. Í janúar kom út íslenski samfélagsmiðillinn Slapp, sem tæknifyrirtækið Vestra smíðaði. Þar skrá notendur sig inn með rafrænum skilríkjum, sem útilokar falsaða reikninga og vélmenni. Ég veit ekki hvort Slapp eða einhver annar verður íslenski valkosturinn. En hugsunin er rétt. Samfélagsmiðill er orðinn grunninnviður, rétt eins og greiðslumiðlun, og þar vinnur Seðlabankinn nú að innlendri greiðsluleið af nákvæmlega sömu ástæðu.

Opinberar stofnanir gætu riðið á vaðið. Ef ríki og sveitarfélög birtu tilkynningar sínar fyrst á eigin vefjum og á innlendum eða opnum vettvangi, og aðeins síðan á Facebook, myndi útgöngukostnaðurinn lækka strax. Enginn þarf að banna neitt. Það þarf bara að tryggja að við getum farið ef við þurfum.

Hvað kostar að gera ekkert?

Kolbeinn segir að þetta ætti að vera tækifæri en ekki ógn. Ég er sammála. Tæknirisarnir þurfa efnið okkar. Íslenskt mál, íslenskar fréttir og íslensk þekking eru einhvers virði, og það er sjálfsagt að greitt sé fyrir þau.

En það gerist ekki ef við bíðum. Eftir tíu daga taka skilmálarnir gildi. Samþykkið felst í því að gera ekki neitt. Spurningin er hvort við ætlum enn eina ferðina að rétta fram nestispeningana.

Höfundur er stofnandi Alvitur.is og starfar að þróun og stefnumótun á sviði gervigreindar.




Skoðun

Sjá meira


×