Viðskipti erlent

Olíu­verð ekki verið lægra frá því á­rásirnar á Íran hófust

Kjartan Kjartansson skrifar
Verðskilti bandarískra bensínstöðva í maí. Olíuverð hækkaði mikið eftir að stríð Bandaríkjamanna og Ísraela gegn Íran hófst í febrúar.
Verðskilti bandarískra bensínstöðva í maí. Olíuverð hækkaði mikið eftir að stríð Bandaríkjamanna og Ísraela gegn Íran hófst í febrúar. Vísir/EPA

Heimsmarkaðsverð á olíu hefur ekki verið lægra frá því áður en Bandaríkjamenn og Ísraelar hófu árásir á Íran í febrúar. Olíuflutningar um Hormússund hafa aukist umtalsvert frá því að Íranir og Bandaríkjamenn gerðu samkomulag sín á milli í síðustu viku.

Stríðsrekstur Bandaríkjanna og Ísraels í Íran leiddu til mikilla verðhækkanna á olíu þar sem Íranir brugðust við með því að halda Hormússundi, lykilsiglingaleið olíuflutningaskipa, í herkví.

Verðið hefur lækkað frá því að Bandaríkjamenn og Íranir skrifuðu undir samkomulag sitt 17. júní og hófu viðræður um kjarnorkuáætlun Írana, afléttingu refsiaðgerða og fleira.

Tunnan af Norðursjávarhráolíu seldist á undir 72,48 dollara á tímabili í morgun en það var verðið þegar Bandaríkin og Ísrael réðust fyrst á Íran 28. febrúar. Verðið mjakaðist síðan aðeins upp eftir því sem leið á morguninn, að sögn breska ríkisútvarpsins.

Þrátt fyrir að hreyfing sé loks komin á flutninga um Hormússund er enn langt í land að umferðin nái fyrri þunga.

Bandaríkjamenn og Íranir gáfu sér sextíu daga til þess að ná saman um frekari útfærslu á samkomulagi þeirra.


Tengdar fréttir

Vance þreifar fyrir sér í Sviss

Bandaríski varaforsetinn J.D. Vance lenti í Sviss í morgun en þar eiga friðarviðræður milli Írana og Bandaríkjamanna að hefjast í Obbürgen seinna í dag, þrátt fyrir að íranski herinn hafi tilkynnt í gær að Hormússundi yrði lokað að nýju. Bandaríkjamenn segja að enn virðist opið fyrir skipaumferð um sundið.

Þetta er í sam­komu­lagi Trumps við Írani

Samkomulag sem Bandaríkjamenn og Íranir skrifuðu undir í gærkvöldi felur í sér vopnahlé, opnun Hormússund og að Íranir komi sér ekki upp kjarnavopnum. Bandaríkjamenn skuldbunda sig einnig til þess að aflétta öllum viðskiptaþvingunum á Íran, skipta sér ekki af innri málefnum landsins og að skila frystum eignum Írana.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×