Segir Suðurlandsbraut fara aftur í vinnslu án þess að tefja verkefnið Birgir Olgeirsson skrifar 25. júní 2026 12:02 Fyrirhugaðar breytingar á Suðurlandsbraut vegna borgarlínuframkvæmdar voru afar umdeildar í aðdraganda borgarstjórnarkosninga. Nú hefur nýr meirihluti synjað deiliskipulaginu. Vilhlem Meirihluti umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur samþykkti í gær að synja deiliskipulagi fyrir Suðurlandsbraut. Skipulagið var hluti af fyrstu lotu Borgarlínu og náði til kaflans milli Skeiðarvogar og Lágmúla. Í tillögunni var gert ráð fyrir breytingum á göturýminu, Borgarlínustöðvum og nýrri umferðarskipan á einni stærstu umferðarás austurhluta Reykjavíkur.
Meirihluti ráðsins samanstendur af fulltrúm Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknarflokks. Málið ekki unnið í nægilegri sátt Guðný María Jóhannsdóttir, formaður umhverfis- og skipulagsráðs, segir málið hafa verið eitt af þeim málum sem rædd voru í kosningabaráttunni í vor. Guðný María Jóhannsdóttir, formaður umhverfis- og skipulagsráðs. „Þetta snýst um að við vorum í kosningabaráttunni að tala fyrir því að við teldum að þetta mál hefði ekki verið unnið í nægilegri sátt við meðal annars atvinnurekendur sem eru með starfsemi við Suðurlandsbraut. Við teljum að það að þrengja að almennri umferð á Suðurlandsbrautinni sé ekki mögulegt og íbúar í hverfum í kring hafa líka haft áhyggjur af því að umferðin myndi leita inn í hverfin.“ Málið fer nú inn í nýja vinnu hjá borginni. Guðný segir að þar verði horft til annarrar útfærslu en þeirrar sem lá fyrir ráðinu. „Við erum að taka þetta deiliskipulag og endurskoða það í ljósi þess að það þarf að huga betur að því hvaða áhrif þessi framkvæmd hefur á svæðið. Við ræddum það í kosningabaráttu að okkar hugmyndir snúa að því að reyna að hægristilla akrein fyrir almenningssamgöngur, sérakrein, og það er það sem við munum gera á þessu svæði. Við viljum tryggja að þarna geti áfram verið blómleg atvinnustarfsemi og uppbygging til framtíðar sem er í sátt við íbúa og þá sem eru þarna í kring.“ Tala fyrir öflugum almenningssamgöngum Ekki liggur fyrir nákvæmlega hvernig ný útfærsla verður kynnt eða hvenær hún kemur aftur til afgreiðslu. „Við erum ekki komin það langt að útfæra nákvæmlega hvernig þetta verður en það er alveg ljóst að við höfum talað fyrir því að við viljum efla almenningssamgöngur í Reykjavík. Liður í því er að vagnarnir geti keyrt meira á sérakreinum til að komast fram úr umferðarteppum ef þær eru til staðar. Það er eitt af því sem við munum skoða.“ Ætla tryggja að ekki verði tafir á verkefninu Ákvörðunin hefur vakið spurningar um framvindu Borgarlínuverkefnisins. Guðný segir borgina þegar hafa hafið samtal við þá sem koma að verkefninu. „Við höfum engar áhyggjur af því. Við erum í samtali við Betri samgöngur og þá sem eru að vinna að þessum málum og við höfum sýnt það á fyrstu dögunum að við vinnum þessi mál tiltölulega hratt. Þetta er eitthvað sem við tökum til skoðunar og munum tryggja að það verði ekki tafir.“ Hún segir ekki hafa komið til greina að samþykkja skipulagið óbreytt. „Við reynum að vinna þetta eins hratt og hægt er en þetta er stórt mál. Við teljum ekki mögulegt að halda áfram með þetta deiliskipulag í þeirri mynd sem það er. Kjósendur sögðu okkur í kosningunum að þetta væri eitt af því sem þeir vildu að yrði tekið til endurskoðunar.“ Aðspurð hvort samstaða sé um niðurstöðuna innan meirihlutans svarar Guðný: „Algjör sátt, já.“
Samgöngumál Borgarstjórn Skipulagsmál Reykjavík Mest lesið Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Innlent Fleiri fréttir Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að keyra bókun 35 í gang Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Sjá meira