„Þegar við komum til Íslands munum við stöðva hann“ Smári Jökull Jónsson skrifar 27. júní 2026 13:43 Landhelgisgæslan er í startholunum ef skip Paul Watson mætir til Íslands. Vísir/Vilhelm/Getty Landhelgisgæslan er í viðbragðsstöðu vegna mögulegrar komu skipsins Bandero til Íslands. Í myndbandi sem birt var á Facebooksíðu samtaka Paul Watson í gær segir hann að allt verði gert til að koma í veg fyrir að veiddir verði hvalir á meðan samtökin eru á Íslandi.
Í myndbandinu sem birt var í gær sést hvar Paul Watson fer um borð í skipið Bandero og heilsar upp á áhafnarmeðlimi. Í færslu á Facebooksíðu samtakanna Captain Paul Watson Foundation segir að Bandero sé á leið til Íslands til að takast á við hvalveiðar Kristjáns Loftssonar. „Þegar við komum til Íslands munum við stöðva hann,“ segir í færslunni og jafnframt að sex hvalir hafi verið veiddir það sem af er hvalveiðitímabilinu. Í myndbandinu sést Watson ræða við fólk um borð í Bandero þar sem hann segir að um sé að ræða stórkostlega ferð. „Við þurfum að gera allt sem við getum til að sjá til þess að þeir drepi enga hvali á meðan við erum þarna,“ segir Watson jafnframt. Gæslan átt samskipti við ríkislögreglustjóra vegna málsins Ekki er ljóst hvenær Bandero kemur í íslenska lögsögu og í myndbandinu er ekki tekið fram hvaðan það siglir. Í samtali við fréttastofu segir Ásgeir Erlendsson samskiptastjóri Landhelgisgæslunnar að gæslan hafi verið í samskiptum við embætti ríkislögreglustjóra vegna málsins og hafi fylgst með því sem greint hefur verið frá á samfélagsmiðlum. Gæslan muni bregðast við ef tilefni gefst og sérstaklega ef lífi og heilsu fólks sé ógnað. Í síðasta mánuði boðaði stofnun Paul Watson til aðgerðar 86 í sumar til að binda enda á hvalveiðar Íslendinga. Aðgerð 86 vísar til þess atburðar þegar aðgerðasinnar sökktu skipunum Hval 6 og Hval 7 í Reykjavíkurhöfn árið 1986.
Hvalveiðar Dýr Hvalir Hótanir Paul Watson vegna hvalveiða Íslendinga Mest lesið Fella niður 26 flugferðir Innlent Fjöldi handtekinn í aðgerðum lögreglu Innlent Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Innlent Lögreglan leitar að Arturas Innlent Hjól Eyjabarna skrúfuð í sundur Innlent Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Erlent „Það er enginn bissness í þessu fyrir okkur“ Innlent Gómaður með gríðarlegt magn af barnaklámi Innlent Þetta er í samkomulaginu um Grænland Erlent Barn stakk sig á sprautunál á skólalóðinni Innlent Fleiri fréttir Fylgi haggast varla eftir atkvæðagreiðslu Hvannadalshnjúkur lækkar Segir stóra ákvörðun framundan Líkamsárás í Breiðholti Fella niður 26 flugferðir Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Hjól Eyjabarna skrúfuð í sundur Lögreglan leitar að Arturas Flugfreyjur og flugmenn styðja flugvirkja Fjöldi handtekinn í aðgerðum lögreglu Bein útsending: Kynna nýtt áhættumat fyrir Grindavík Barn stakk sig á sprautunál á skólalóðinni „Það er enginn bissness í þessu fyrir okkur“ Gómaður með gríðarlegt magn af barnaklámi Nýtt áhættumat: Bjóða Grindvíkingum að kaupa húsin til baka Flestir félagar vilji frekari kjarabætur vegna forsendubrests Kristján hótar lögsókn verði bann að lögum Hefja athugun á fjárhagsaðstoð Reykjavíkurborgar Stefnir í aflýsingar á öllu morgunflugi frá Keflavík og Reykjavík Munu ekki samþykkja frekari hækkun launa Árleg framlög jukust um 286 milljónir en Sinfónían aftur rekin með tapi Segir ásakanir flugvirkja „furðulegar“ Neitar að tjá sig um hvort lög verði sett á verkfall Ekkert í afkomu fyrirtækja sem sýni virðingu fyrir kjarasamningum Þokast æ fjær loftslagsskuldbindingum Íslands Leita lausnar áður en verkfall hefst á miðnætti Boða stórsókn í skóla- og menntamálum í Reykjavík Bein útsending: Kynnir nýjar losunartölur Nauðgaði sofandi sambýliskonu sinni og tók myndir Hagsmunir Íslands að efla Sameinuðu þjóðirnar Sjá meira