Segist ekki hafa viljað láta kenna sig við Zuckerberg Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 29. júní 2026 08:01 Jesse Eisenberg er margt til lista lagt en var kominn með nóg af því að leika Mark Zuckerberg. EPA/ANDY RAIN Bandaríski Hollywood leikarinn Jesse Eisenberg segist ekki hafa viljað láta kenna sig við Mark Zuckerberg og því hafi hann hafnað leikstjóranum og handritshöfundinum Aaron Sorkin um að snúa aftur til leiks og leika forstjóra Facebook í kvikmyndinni Social Reckoning sem nú er í bígerð.
Leikarinn opnar sig um málið við Variety en áður hefur Aaron Sorkin sagt að hann hafi eytt þremur dögum í að reyna að sannfæra leikarann um að snúa aftur sem forstjórinn. Eisenberg fór með hlutverk forstjórans í kvikmyndinni The Social Network sem kom út árið 2010. Sú mynd fjallaði um árdaga samfélagsmiðilsins Facebook og skrifaði Sorkin handritið á meðan David Fincher leikstýrði. Í þetta skiptið mun Sorkin einnig fara með leikstjórn en Jeremy Strong kemur inn af varamannabekknum og mun fara með hlutverk Zuckerberg í myndinni. Söguþráður myndarinnar byggist á því þegar tveir starfsmenn láku ýmsum gögnum um samfélagsmiðilinn árið 2021. „Það er alltaf heiður að tala við Aaron, af því hann er svo glöggur og heillandi. Við töluðum um það í nokkra daga að gera myndina og Aron er svo skýr, alveg eins og þegar hann skrifar og ef maður ætlar ekki að gera eitthvað verkefni með honum, þá líður manni næstum eins og maður sé að bregðast Ameríku,“ segir leikarinn. „Ég sagði honum bara að ég væri að fara í aðrar áttir í lífi mínu og það sem hann hefur sagt um þetta nær vel utan um þetta. Ég vil ekki vera tengdur við þessa persónu en allar ástæður mínar fyrir því að vilja ekki gera myndina hafa ekkert að gera með hversu dásamleg myndin er og verður, og ég er viss um að hún er það nú þegar.“ Jesse Eisenberg recalls telling Aaron Sorkin he didn’t want to reprise his role as Mark Zuckerberg in “The Social Reckoning,” saying he was “moving in different directions” and no longer wanted to be “associated with the character”:“The way Aaron speaks, in a way, if you’re not… pic.twitter.com/qYkQTXgcsO— Variety (@Variety) June 28, 2026
Bíó og sjónvarp Hollywood Mest lesið Allir gengu út af tónleikunum: „Ég fór heim og grét“ Tónlist Veltir fyrir sér hvers vegna hún sé alltaf gröð í flugvél Lífið Kynlífsstunur og sjálfsfróun á tískusýningu Lífið Elskar uppþvottavélina meira en eiginkonuna Gagnrýni Fyrrverandi maður Clancy á von á barni Lífið Tíu algeng mistök í daglegri hárumhirðu Lífið samstarf „Rosalegt brot á mínu einkalífi“ Lífið Sól sló í gegn á tískuviku í London Tíska og hönnun Edda með tárin í augunum Lífið Sneri vörn í sókn í vinaleysinu Lífið Fleiri fréttir „Rosalegt brot á mínu einkalífi“ Edda með tárin í augunum Fyrrverandi maður Clancy á von á barni Kynlífsstunur og sjálfsfróun á tískusýningu Veltir fyrir sér hvers vegna hún sé alltaf gröð í flugvél Arnaldur græddi 113 milljónir og Yrsa tuttugu Í kossaflensi á listasýningu Sneri vörn í sókn í vinaleysinu Misstu sig þegar sigurinn var í höfn Systkinin kítast: „Mættir alveg mæta meira upp í bústað og vinna“ Diljá Mist skikkuð í smá hvíld Cindy Crawford óhuggandi eftir andlátið „Mjög óraunveruleg og full af ást“ Hvað veistu um… Djúpavog? Gjörningur til heiðurs pabba sem féll fyrir eigin hendi Ein heitasta leikkona landsins á lausu Einstakt einbýli Sigurðar og Láru Stjörnum prýdd fyrsta frumsýning vetrarins Heyrir aftur hljóð sem höfðu verið horfin í mörg ár Sonur Cindy Crawford er látinn Stjörnulífið: „Fer þér ekki vel, þessi drjóli“ Sjóðurinn tómur Var send í megrunarbúðir 11 ára gömul Krakkatía vikunnar: Nýjasti kisinn, rjúpa og vopn „Okkur langar bara til þess að gera þetta allt saman aftur“ Hætta að prenta Walliams eftir ásakanir um kynferðislegt áreiti Örvar og María Elísabet nýtt listapar Segir af sér eftir að hafa beitt mótmælendur ofbeldi „Maður getur varla beðið um meira“ Bakaríið í beinni útsendingu Sjá meira