Ísland kallaði eftir brýnni umræðu um stöðu mála í Súdan Áróra L Davíðsdóttir skrifar 3. júlí 2026 15:57 Svokölluð brýn umræða um stöðu mála í Súdan fór fram í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna í dag. Getty Ísland var meðal þeirra ríkja sem kölluðu eftir brýnni umræðu (e. urgent dabate) um stöðu mála í Súdan í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna.
Í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins segir að umræðan hafi farið fram í dag í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna en einblínt var á ástandið í borginni El Obeid í Norður-Kordofan-héraði landsins. Ísland hafi flutt ávarp fyrir hönd Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna þann 14. júní síðastliðinn. Þar hafi ríkin lýst áhyggjum sínum af grimmdarverkum í Súdan og kallað eftir því að öllum árásum verði hætt tafarlaust og ábyrgðarskyldu vegna brota sinnt. Ísland er eitt fjörutíu og sjö kjörinna aðildarríkja mannréttindaráðsins. Staða mannúðarmála í Norður-Kordofan héraði Súdans versni dag frá degi vegna vaxandi ofbeldis. Talið sé að minnst 880 hafi látið lífið í drónaárásum undanfarið og hundruð þúsunda almennra borgara séu innlyksa í borginni El Obeid. Óttast er um yfirvofandi fæðuóöryggi og voðaverk. „Sameinuðu þjóðirnar hafa ítrekað kallað eftir að öllum árásum verði hætt tafarlaust, að mannúðaraðgengi verði tryggt og vernd borgara og innviða sett í forgang. Þá hefur verið lögð áhersla á að tryggja örugga för flóttafólks frá El Obeid og vernd þeirra sem kjósa að dvelja áfram á svæðinu sem og aðgang þeirra að lífsbjargandi nauðsynjum,“ segir í tilkynningunni.
Súdan Sameinuðu þjóðirnar Mannréttindi Ísland í mannréttindaráði SÞ Mest lesið Óveður gengur yfir landið Innlent Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Innlent Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni Innlent Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Innlent Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Innlent Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Innlent Fylgstu með lægðinni í beinni Veður Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður Fleiri fréttir Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Óþolandi leyndarhyggja ríki um niðurstöður PISA-prófa Vill skýr viðbrögð við trassaskap í losunarmálum í lög Vilja hækka akstursgjald eldra fólks um allt að 163 prósent Aðeins talið sannað að Andri hafi beitt leigjandann ofbeldi Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni Handteknir fyrir að féfletta NATO-skip í Noregi „Það andar ekki köldu á milli mín og neinna annarra“ Hreyfingin stærri en einstakar persónur Aftakaveður gengur yfir landið og búist við vegalokunum vegna ófærðar Fundu elsta skipsflak heims Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Árásum fjölgar og Íranir ætla að loka Hormússundi aftur Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Fylgstu með lægðinni í beinni Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Takmarkanir á Starlink í Úkraínu: „Þetta getur ekki verið tilviljun“ Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Yfir hálf milljón án rafmagns í Kænugarði eftir árásir Rússa í nótt „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Óveður gengur yfir landið Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Styður Repúblikana með tugum milljarða Viðvaranir á viðvaranir ofan Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Páfinn greindist með lungnakrabbamein Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Sjá meira