Leitar enn hunds sem týndist fyrir 38 árum Freyja Þórisdóttir skrifar 6. júlí 2026 16:43 Myndin er úr safni og tengist fréttinni ekki beint. Á henni má sjá sleðahunda í Chugach-fjöllunum í Alaska-fylki í Bandaríkjunum. Getty Eigandi hunds sem fannst dauður við Langjökul á dögunum er enn ófundinn. Fjölmargir hafa þegar sett sig í samband við sjálfboðaliðasamtökin Dýrfinnu. Meðal þess sem þeim hefur borist var ábending um hund sem týndist fyrir tæpum fjörutíu árum. Hann var ekki með eins litaða ól og sá sem fannst og er því útilokað að um sama hund sé að ræða.
Þetta kom fram í samtali Eyglóar Önnu Ottesen við blaðamann Vísis en hún er ein þeirra sem eru í Dýrfinnu-teyminu en sjálfboðaliðasamtökin voru stofnuð árið 2022. Samtökin aðstoða við leit að týndum dýrum en auglýst var eftir eiganda hundsins í færslu á Facebook-síðu þeirra fyrir helgi. „Við erum í rauninni bara að bíða eftir því að við fáum réttu lýsinguna á ólinni,“ segir hún og bætir við að það hafi margir sett sig í samband við þau en að elsta tilkynningin um týndan hund sem þeim var bent á hafi verið þrjátíu og átta ára gömul. Í Facebook-færslunni sagði að líkaminn væri það langt kominn í niðurbrotsferlinu að hvorki væri hægt að segja til um tegund né lit á feldi með vissu en að áætlað væri að hundurinn væri af meðalstærð. „Þetta er ekki á svona fjölförnum stað en það var einhver sem rambaði á þetta,“ segir Eygló og bætir við að þau geti með engu móti áætlað hvenær hundurinn fór undan ísnum. Þau hjá Dýrfinnu hafa þegar athugað með sleðahundafyrirtæki sem heldur úti ferðum þarna á svæðinu yfir veturinn en hundurinn er ekki frá því. Þau hafa líka náð tali af íbúum nærliggjandi bæja og eru engu nær. Veistu meira um málið? Þú getur sent okkur fréttaskot hér.
Dýr Hundar Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Innlent Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik Erlent Fleiri fréttir „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Sjá meira