Elvar snýr aftur til Litháens Sindri Sverrisson skrifar 6. júlí 2026 16:36 Elvar Már Friðriksson var hetja Íslands gegn Litháen í febrúar. Nú snýr hann aftur í litháensku deildina. Getty/Jón Gautur Landsliðsmaðurinn Elvar Már Friðriksson hefur ákveðið að snúa aftur til Litháens og spila í efstu deild einnar mestu körfuboltaþjóðar Evrópu á næstu leiktíð.
Elvar var í dag kynntur sem nýjasti leikmaður Klaipeda Neptunas sem er eitt besta lið Litháens. Liðið hafnaði í 3. sæti litháensku deildarinnar á síðustu leiktíð og féll út í undanúrslitum úrslitakeppninnar. View this post on Instagram A post shared by BC Neptūnas Klaipėda (@bcneptunas) Elvar kemur til félagsins eftir að hafa spilað með Anwil Wloclawek í Póllandi í vetur og svo óvænt í lok leiktíðar með La Laguna Tenerife í spænsku úrvalsdeildinni. Elvar lék einnig í Litháen fyrir fjórum árum þegar hann var leikmaður Rytas Vilnius en þá var hann í lykilhlutverki og skoraði að meðaltali 13,5 stig í leik og átti 6,3 stoðsendingar. Elvar er algjör lykilmaður í íslenska landsliðinu sem komið er á lokastig undankeppni HM og hann mætti einmitt Litháen í tveimur leikjum, og skoraði sigurkörfu og 34 stig þegar Ísland vann frábæran heimasigur gegn Litháen í febrúar. Neptunas verður þriðja litháenska liðið sem Elvar spilar fyrir því hann lék með Siauliai tímabilið 2020-21. Samningur Elvars við Neptunas er til eins árs. Hann er annar íslenski landsliðsmaðurinn sem kynntur er hjá nýju félagi í dag, daginn eftir sigurinn góða á Bretum, því Jón Axel Guðmundsson er genginn í raðir Gran Canaria á Spáni.
Körfubolti Tengdar fréttir Jón Axel spilar á Kanaríeyjum Landsliðsmaðurinn Jón Axel Guðmundsson mun spila körfubolta í Las Palmas á Kanaríeyjum á næstu leiktíð, eftir að hafa samið við spænska félagið Gran Canaria til eins árs. 6. júlí 2026 11:34 Mest lesið Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Setti tvö Íslandsmet í snörun á Evrópumótinu Sport „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Fótbolti Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Körfubolti Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig Fótbolti „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Fótbolti Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Fótbolti Fleiri fréttir Bestu byrjanir táninga í körfunni: Gerði betur en Tryggvi og Jón Arnór Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Uppgjörið: Grindavík-Keflavík 89-75 | Grindavíkurkonur á skriði og eru taplausar á toppnum Reiður LeBron lét stuðningsmenn Knicks heyra það Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Lagði meistarana í fyrsta leik með nýju liði Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Kane lendir um helgina Sjá meira
Jón Axel spilar á Kanaríeyjum Landsliðsmaðurinn Jón Axel Guðmundsson mun spila körfubolta í Las Palmas á Kanaríeyjum á næstu leiktíð, eftir að hafa samið við spænska félagið Gran Canaria til eins árs. 6. júlí 2026 11:34