Á hæsta forgangi vegna steypubíls sem lenti í Þjórsá Eiður Þór Árnason skrifar 6. júlí 2026 21:07 Myndin er úr safni. Vísir/anton brink Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var kölluð út á mesta forgangi um klukkan hálf átta í kvöld vegna steypubíls sem hafði lent út í Þjórsá. Ökumaður hans var orðinn kaldur og því fluttur á Landspítala til aðhlynningar.
Að sögn lögreglu fór ökumaðurinn út af brú nærri Sultartangavirkjun. Um umferðaróhapp hafi verið að ræða og Vegagerðin ákveðið að loka fyrir umferð um einbreiðu brúnna. Til stendur að ná steypubílnum upp á morgun en í millitíðinni hefur Landsvirkjun gripið til aðgerða til að minnka vatnsflæði í ánni. „Þeir beina straumnum annað og þá minnkar allur straumur í ánni. Þannig að þeir telja ekki að það sé hætta á að hann fari neitt þangað til á morgun og svo á morgun þá í rauninni tæma þeir þetta lón, loka fyrir og þá geta þeir náð í bílinn,“ segir Bryndís Jóhannesdóttir, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á Suðurlandi. Ökumaðurinn hafi verið ofkældur. Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar, segir áhöfn hafa verið reiðubúna á Reykjavíkurflugvelli þegar kallið barst þar sem hún hafi verið að undirbúa sig undir annað útkall. „Þannig að hún gat brugðist hratt við og var komin á loft um tuttugu mínútur í átta og komin á staðinn um átta mínútur yfir átta. Þar var maðurinn uppi á hlið steypubílsins sem var á hliðinni úti í ánni og sigmaðurinn seig niður til hans og hann var hífður upp í þyrluna.“ Sjúkralið og lögregla hafi sömuleiðis verið kölluð út. Ásgeir hafði ekki upplýsingar um ástand steypubílsins að svo stöddu. Hann bætti við að þyrlan hafi síðar lent á Reykjavíkurflugvelli og ökumaðurinn fluttur með sjúkrabíl á spítalann til skoðunar. Fréttin er í vinnslu.
Mest lesið Kæra sautján ára Íslendings varð að einu umtalaðasta kynferðisbrotamáli Ítalíu Innlent Matthías kominn á áfangaheimili Innlent Efast um að fólk í undirheimunum pæli í tuftvélinni Innlent „Þessi kona er ekkert skyni skroppin“ Innlent Leitar enn hunds sem týndist fyrir 38 árum Innlent Ríflega 75 hafa afbókað gistingu á Hótel Breiðavík í aðdraganda almyrkva Innlent Ekkert bendi til annars en að um slys hafi verið að ræða Innlent Fimmtíu myndaðir og fimm handteknir í alþjóðlegum aðgerðum gegn vændi á Íslandi Innlent Hækka gjald fyrir heilsugæslu og taka upp nýtt fyrir sjúkraþjálfun Innlent Björguðu lambinu sem vildi ært komast til frænda sinna Innlent Fleiri fréttir Gerðar út fyrir tuttugu þúsund krónur á hálftímann Á hæsta forgangi vegna steypubíls sem lenti í Þjórsá Sú gula spókar sig á Suðurlandi á morgun „Þessi kona er ekkert skyni skroppin“ „Enginn búið til fleiri þjóðaratkvæðagreiðslur en ég“ Uppljóstrað um kínverskt glæpanet og Kristján Loftsson mætir í beina útsendingu Húsfyllir á stofnfundi hjá Áfram Ísland Fræða almenning í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar Leitar enn hunds sem týndist fyrir 38 árum Átta handteknir vegna fíkniefnaræktunnar Hækka gjald fyrir heilsugæslu og taka upp nýtt fyrir sjúkraþjálfun Ekkert bendi til annars en að um slys hafi verið að ræða Strætó og sláttutraktor lentu saman Enginn handtekinn en áfram áætlað að sömu aðilar hafi verið að verki Gönguljósin á Miklubraut: Bráðalausn eða bið eftir stokknum? Ríflega 75 hafa afbókað gistingu á Hótel Breiðavík í aðdraganda almyrkva Sýknuð af kröfum Vestmannaeyjabæjar Fimmtíu myndaðir og fimm handteknir í alþjóðlegum aðgerðum gegn vændi á Íslandi Forseti tekur sæti í ráðgjafanefnd um gervigreind Beinbrot og minniháttar áverkar í rútuslysi Efast um að fólk í undirheimunum pæli í tuftvélinni Rútuslys, umferðarhnútar og afbókanir í almyrkva Matthías kominn á áfangaheimili Sex slasaðir í rútuslysi í Suðursveit Kona mannsins sem lést þungt haldin Eina tilboðinu í ráðhúströppurnar hafnað og verkið boðið út að nýju Ráðin forstöðumaður Heyrnar- og talmeinastöðvar Viðbragðsáætlun virkjuð vegna fjarskiptaleysis á Sjúkrahúsinu á Akureyri Kæra sautján ára Íslendings varð að einu umtalaðasta kynferðisbrotamáli Ítalíu Kölluð til vegna æsts húsráðanda í Hafnarfirði að horfa á leik á HM Sjá meira