Kvartar yfir álaginu: Messi gæti spilað fimm leiki á sautján dögum Sindri Sverrisson skrifar 7. júlí 2026 09:31 Lionel Scaloni ræðir við nafna sinn Lionel Messi í drykkjarhléi á HM. Getty/Etsuo Hara Lionel Scaloni, þjálfari Argentínu, segir að leikið sé of þétt í útsláttarkeppni HM. Argentínumenn mæta Egyptum í 16-liða úrslitum í dag en komist þeir alla leið í úrslitaleik mótsins munu þeir spila fimm leiki á aðeins sautján dögum.
Hinn 39 ára gamli Lionel Messi hefur verið í algjöru aðalhlutverki hjá Argentínu á HM og skorað sjö mörk en liðið lenti í miklum erfiðleikum gegn Grænhöfðaeyjum á föstudaginn og þurfti framlengingu í hitanum í Miami til að knýja fram 3-2 sigur. Leið Argentínu í undanúrslitin virðist fyrir fram nokkuð þægileg, miðað við heimsmeistaramót, en vinni liðið Egyptaland í Atlanta í dag tekur við leikur við Kólumbíu eða Sviss í 8-liða úrslitum. Scaloni hefur hins vegar áhyggjur af leikjaálaginu. „Eftir því sem nær dregur lokunum, og menn hafa spilað fleiri leiki, þá þurfa menn meiri hvíld. Samt er hið gagnstæða að gerast,“ sagði Scaloni á blaðamannafundi í gær. Lionel Messi er orðinn 39 ára en þarf að spila ansi ört á HM.Getty/Ezra Shaw „Við spiluðum í þessum mikla hita í Miami á föstudaginn og núna eigum við að spila hádegisleik. Hvíldartíminn er ekki ákjósanlegur. Ég held að Egyptar hafi fengið nokkrum klukkutímum meiri hvíld, það munar ekki miklu, en þegar komið er á lokastigin á HM þá er hvíldin enn mikilvægari,“ sagði Scaloni. Leikmann hans þurfa ekki bara að spila ört heldur ferðast langar vegalengdir á milli leikstaða og þá er hitinn oft afar mikill. Óvenjulegt HM og ekkert lið stendur upp úr „Heimsmeistaramótið er mikil áskorun – ferðalögin, hitinn, vellirnir. Það eru margir þættir sem koma í veg fyrir að eitthvert eitt lið standi upp úr sem það langsigurstranglegasta, þó að þau sem oft eru líklegust séu enn með. Frakkland átti í miklum vandræðum gegn Paragvæ og það var ekki bara út af gæðum Paragvæja heldur út af aðstæðum í leiknum: Hitinn, leiktíminn, völlur þar sem boltinn rann ekki og svo 20 mínútna hlé á leiknum. Þess vegna er þetta ekki mjög hefðbundið heimsmeistaramót. Það hefur ekkert lið staðið áberandi upp úr en á endanum eru það líklegustu liðin sem komast lengst,“ sagði Scaloni. Hann staðfesti að Messi yrði í byrjunarliðinu í dag, þrátt fyrir að hafa spilað 120 mínútur á föstudaginn, en leikurinn hefst klukkan 16 að íslenskum tíma.
HM 2026 í fótbolta Mest lesið Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport „Guð morning!“ Enski boltinn Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Enski boltinn „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Fótbolti Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Fleiri fréttir Kveðja Kristinn og Kristinn „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Ásdís Karen með tvennu í góðum sigri Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Bruno settur á bekkinn Sjá meira