Konurnar fá helminginn af verðlaunafé bandaríska karlalandsliðsins Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. júlí 2026 22:31 Heimsmeistararnir frá 2019 fóru fyrir næstum sex ára opinberri baráttu og málaferlum kvennalandsliðsins gegn bandaríska knattspyrnusambandinu fyrir jöfnum launum. Getty/Naomi Baker Karlalandslið Bandaríkjanna í fótbolta gerði flotta hluti á heimsmeistaramótinu og velgengni þeirra skilaði knattspyrnusambandi þeirra sextán milljónum dala, meira en tveimur milljörðum íslenskra króna, í verðlaunafé. Það eru þó ekki aðeins karlarnir sem græða.
Bandaríska karlaliðið komst í 16-liða úrslit á heimsmeistaramótinu 2026, þar sem liðið tapaði reyndar 4-1 fyrir Belgíu. Verðlaunafénu verður skipt jafnt á milli þeirra 26 karla sem voru í bandaríska hópnum og þeirra 26 kvenna sem verða í bandaríska hópnum fyrir heimsmeistaramót kvenna 2027, að því gefnu að Bandaríkin komist á það mót. Deila verðlaunafé frá HM jafnt Leikmenn karla- og kvennalandsliðanna deila verðlaunafé frá HM jafnt samkvæmt skilmálum kjarasamninga sem bandaríska knattspyrnusambandið staðfesti við bæði landsliðin árið 2022. ESPN fjallar um þessa skiptingu. U.S. men, women get equal split of $16M WC prizeThe United States men earned U.S. Soccer $16 million in prize money from FIFA for making the round of 16 at the 2026 FIFA World Cup, where the Americans lost 4-1 to Belgium.https://t.co/BY5EQWX6qf— ESPN Soccer (@ESPNsoccer) July 8, 2026 Þessir samningar voru staðfestir eftir næstum sex ára opinbera baráttu og málaferli kvennalandsliðsins gegn bandaríska knattspyrnusambandinu fyrir jöfnum launum. Samkvæmt kjarasamningunum heldur bandaríska knattspyrnusambandið eftir tuttugu prósentum af verðlaunafénu frá hverju heimsmeistaramóti og þeim áttatíu prósentum sem eftir eru er skipt jafnt á milli leikmanna karla- og kvennalandsliðanna sem komast í viðkomandi HM-hópa. 31 milljón á mann Þessi fjörutíu prósent jafngilda 6,4 milljónum dala á lið og 246.153,85 dölum á hvern leikmann eða 31 milljón íslenskra króna á leikmann. Sama skipting milli sambandsins og karla- og kvennalandsliðanna mun gilda um verðlaunaféð sem Bandaríkin fá á heimsmeistaramóti kvenna 2027 – þó með nokkrum fyrirvörum, að sjálfsögðu. A round of 16 exit at the 2026 FIFA World Cup means the USMNT will receive a $15 million FIFA payday, but because of the landmark collective bargaining agreement signed in 2022, the USMNT and USWNT will equally share FIFA World Cup prize money from the 2026 and 2027 World Cups… pic.twitter.com/Bo0hWxu0jQ— The Athletic (@TheAthletic) July 7, 2026 Fyrsti og augljósasti fyrirvarinn er að bandaríska kvennaliðið þarf fyrst að komast á HM 2027. Þótt almennt sé litið á það sem sjálfsagðan hlut fyrir fjórfalda heimsmeistarana þurfa þær samt að sigra El Salvador þann 27. nóvember í leik í átta liða úrslitum Concacaf þar sem sigurliðið tryggir sér sæti á mótinu. Mun hækka lítillega aftur Í öðru lagi ætti fyrrnefnd útborgun á hvern leikmann að hækka lítillega aftur að því gefnu að bandaríska kvennaliðið komist á mótið. Kjarasamningarnir kveða á um að sambandið greiði karlkyns leikmönnum verðlaunaféð innan 31 dags frá því að bandaríska knattspyrnusambandið fær peningana frá FIFA. Hins vegar, þar sem bandaríska kvennaliðið á enn eftir að komast á heimsmeistaramótið og þeir 26 leikmenn sem verða í þeim hópi verða ekki staðfestir fyrr en næsta vor, skal setja þær 6,4 milljónir dala sem kvenkyns leikmenn eiga rétt á inn á vaxtaberandi reikning, samkvæmt kjarasamningunum.
HM 2026 í fótbolta HM 2027 í Brasilíu Bandaríski fótboltinn Mest lesið Vandræðalegasta viðtal sögunnar? Fótbolti Gummi Ben fór á kostum: „Hvað varst þú að gera?!“ Fótbolti Infantino hylmi yfir fjárdrátt Eto'o fyrir stuðning Fótbolti ÍBV samdi við bandarískan hermann Handbolti „Pirraðastur er ég yfir þessum tíu lokamínútum“ Handbolti Hvolfdi bílnum á leið á æfingu Enski boltinn Fékk drauminn uppfylltan eftir MND greiningu Sport Sjáðu markaveislur United og Bayern München Fótbolti Arteta mjög hissa á ummælum Jesus Enski boltinn Ólafur skilur Magga en er ekki sammála Íslenski boltinn Fleiri fréttir Spenntur að sjá rauða hafið í stúkunni Meðvitaðir um pressuna Hvolfdi bílnum á leið á æfingu Arteta mjög hissa á ummælum Jesus „Hljóta allir að sjá á hverjum pressan er í þessum leik“ Gummi Ben fór á kostum: „Hvað varst þú að gera?!“ „Vil spila fyrir félagið eins lengi og mögulegt er“ Ólafur skilur Magga en er ekki sammála Róbert Frosti með slitið krossband og á leið í aðgerð Sjáðu markaveislur United og Bayern München Infantino hylmi yfir fjárdrátt Eto'o fyrir stuðning Vandræðalegasta viðtal sögunnar? Hætti strax eftir leik en forsetinn hafnar uppsögninni Lumbrað á Norðmönnum og dramatík í Prag United aldrei í vandræðum Jólahátíðin snýr aftur á Englandi Bakverðir til bjargar Frakkar vilja Infantino burt Tvö íslensk hæfileikabúnt til Molde Góður gangur í viðræðum Arsenal og Arteta „Vona að það verði enginn munur á vellinum“ Fullkomin frumraun Ídu sem sló í gegn með þrennu Góðar og slæmar fréttir fyrir íslensku liðin sem ætla í Evrópudeildina Á ekki að snúast um karla gegn konum Stjórn Como gefur frá sér sína miða Dómur gæti hafa verið kveðinn upp í máli Manchester City Nýr Camp Nou míglekur Sjáðu tvær þrennur og glæsilegt sigurmark Ødegaard Pochettino segir að Englandsmeistaratitillinn ætti að vera dæmdur af Chelsea Pressa á Blikum og skipulagið gagnrýnt Sjá meira