Þingkonan ræðst aftur á Mbappé og eftirmyndir af honum brenndar Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 9. júlí 2026 08:02 Kylian Mbappé er ekki vinsælasti maðurinn í Paragvæ um þessar mundir. Paragvæska þingkonan Celeste Amarilla hefur ráðist aftur að Kylian Mbappé, fyrirliða franska fótboltalandsliðsins. Eftirmyndir af Mbappé hafa verið brenndar í Paragvæ.
Mbappé skoraði eina mark leiksins þegar Frakkland vann Paragvæ í sextán liða úrslitum heimsmeistaramótsins um helgina. Eftir leikinn fór Amarilla afar ófögrum orðum um Mbappé en það virðist sérstaklega hafa farið fyrir brjóstið á henni þegar hann fagnaði fyrir framan Orlando Gill, markvörð Paragvæ, í leikslok. Amarilla kallaði Mbappé meðal annars nýlendubúa frá Kamerún sem þættist vera Frakki. „Þessi skepna lærði aldrei að skrifa. Í stað brjóstamjólkur saug hann á kókoshnetum og menntuðustu verurnar sem hann hlustaði á voru simpansar,“ skrifaði Amarilla meðal annars um Mbappé á samfélagsmiðlum. Franski fyrirliðinn svaraði fyrir sig og sagði Amarilla „fyrirlitlegan kynþáttahatara.“ Ummæli Mbappés virðast þó ekkert hafa fengið á Amarilla sem réðst aftur að framherjanum í öldungadeild Paragvæs í gær. „Þegar Orlando Gill, ungur maður sem var líklega að stíga sín fyrstu skref á HM, líklega að uppgötva Evrópu í fyrsta sinn, var að spila fyrir framan allan heiminn og rétti fram hönd sína af allri þeirri auðmýkt sem einkennir Paragvæja, neitaði þessi tíkarsonur að taka í hönd hans og öskraði framan í hann,“ sagði Amarilla. „Þetta er ekki franskt. Frakki hefði aldrei gert þetta. Frakkland er Jean-Jacques Rousseau, René Descartes, Montesquieu, Victor Hugo, Simone de Beauvoir, mannréttindayfirlýsingin. Ég neita að smætta allt þetta stórkostlega Frakkland, sem og gríðarlega menningarlega, listræna og lýðræðislega arfleifð þess, niður í Mbappé.“ Amarilla virðist ekki vera eini Paragvæinn sem er uppsigað við Mbappé. Eftirmyndir af honum hafa verið brenndar í landinu og myndbönd af því birst á samfélagsmiðlum. 🌎 PARAGUAY 🇵🇾 | QUEMAN A “MBAPPÉ” EN PLAZA PÚBLICA 🔥 Y CELEBRANParaguayos declararon a Mbappé como “el más odiado” en las festividades de “San Juan”, fiesta tradicional donde se quema a un muñeco que representa a la personas más odiada en ese momento en todo el país. https://t.co/7aEFsXcp0D pic.twitter.com/kYTRO4UmrK— XAlertNow (@xalertnow) July 8, 2026 Mbappé og félagar hans í franska landsliðinu mæta Marokkó í átta liða úrslitum heimsmeistaramótsins í kvöld. Mbappé hefur skorað sjö mörk á HM og er næstmarkahæsti maður mótsins á eftir Lionel Messi.
HM 2026 í fótbolta Paragvæ Tengdar fréttir Mbappé: Héldu sennilega að við myndum mæta í smóking Franski framherjinn Kylian Mbappé svaraði stöðugum ögrunum Paragvæja með bros á vör áður en hann veitti þeim náðarhöggið og tryggði Frakklandi 1-0 sigur og sæti í átta liða úrslitunum. 5. júlí 2026 20:31 Segja hegðun Paragvæ til skammar Paragvæ sýndi ekki sína bestu hlið í leik liðsins gegn Frakklandi í 16-liða úrslitum heimsmeistaramótsins í gær. Sérfræðingar segja að framkoma leikmanna hafi verið til skammar. 5. júlí 2026 18:17 Mest lesið Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport „Guð morning!“ Enski boltinn Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Enski boltinn „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Fótbolti Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Enski boltinn Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport Fleiri fréttir Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Ásdís Karen með tvennu í góðum sigri Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Bruno settur á bekkinn Sjáðu rauða spjald Palmer og Arsenal jafna Man. City Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Siggi Raggi getur gert NSÍ að Færeyjameisturum í dag Sjá meira
Mbappé: Héldu sennilega að við myndum mæta í smóking Franski framherjinn Kylian Mbappé svaraði stöðugum ögrunum Paragvæja með bros á vör áður en hann veitti þeim náðarhöggið og tryggði Frakklandi 1-0 sigur og sæti í átta liða úrslitunum. 5. júlí 2026 20:31
Segja hegðun Paragvæ til skammar Paragvæ sýndi ekki sína bestu hlið í leik liðsins gegn Frakklandi í 16-liða úrslitum heimsmeistaramótsins í gær. Sérfræðingar segja að framkoma leikmanna hafi verið til skammar. 5. júlí 2026 18:17