Grindvíkingar halda sænsku landsliðskonunni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. júlí 2026 18:09 Ellen Nyström verður áfram með Grindavík. Vísir/Vilhelm Sænska landsliðskonan Ellen Nyström hefur framlengt samning sinn við Grindavík og verður áfram lykilleikmaður liðsins í Bónusdeild kvenna í körfubolta á komandi tímabili.
Grindvíkingar eru að setja saman öflugt lið því áður höfðu þær Abby Beeman og fyrrverandi WNBA-leikmaðurinn Farhiya Abdi einnig ákveðið að spila áfram með liðinu. „Ellen kom með mikinn gæðastimpil til Grindavíkur og stóð svo sannarlega undir væntingum. Með reynslu af leik á hæsta stigi í Evrópu og sænska landsliðinu hefur hún reynst liðinu ómetanleg, bæði með fjölhæfni sinni, leiðtogahæfileikum og stöðugri frammistöðu á báðum endum vallarins,“ segir í frétt á miðlum Grindvíkinga. Ellen Nyström var með 21,3 stig, 6,5 fráköst og 3,3 stoðsendingar að meðaltali í deildinni á síðustu leiktíð en hún hitti úr 88 prósent vítaskota sinna og setti niður tvo þrista í leik með 39 prósent nýtingu. Körfuknattleiksdeild Grindavíkur hafði nokkrum dögum áður samið við nýsjálensku landsliðskonuna Tegan Graham en hún kemur til Grindavíkur með glæsilegan feril að baki. Hún lék síðast með Perth Lynx í áströlsku WNBL-deildinni, einni sterkustu kvennadeild heims. Þar áður átti hún frábært tímabil í Þýskalandi þar sem hún var valin bæði verðmætasti leikmaður deildarinnar og úrslitakeppninnar eftir að hafa leitt lið sitt til sigurs í 2. Bundesligunni. „Hún er fjölhæfur framherji sem er þekktur fyrir frábæran körfuboltaheila, nákvæm þriggja stiga skot, óeigingjarnan leikstíl og framúrskarandi sendingagetu. Í gegnum feril sinn hefur hún jafnan gert samherja sína betri á sama tíma og hún hefur verið stöðug ógn í sóknarleiknum,“ segir í frétt á miðlum Grindvíkinga.
Bónus-deild kvenna UMF Grindavík Mest lesið Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Fótbolti Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Fótbolti Systir Ronaldos tók til varna og hraunaði yfir portúgölsku þjóðina Fótbolti Yfirmenn Heimis teknir á teppið Fótbolti Jesus sveik lærisveininn Fótbolti Danmörk - Portúgal 2-4 | Portúgal vann þrátt fyrir fjarveru Ronaldo Fótbolti Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Enski boltinn „Ronaldo er elsta frekjudolla í heimi“ Sport Írland - Austurríki 2-2 | Svekkjandi jafntefli fyrir Heimi Fótbolti Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Handbolti Fleiri fréttir Uppgjörið: Valur - Njarðvík 77-64| Valur skellti Íslandsmeisturunum Haukar létu Fjölni bíða eftir fyrstu stigum tímabilsins Sigurganga Tindastóls í Evrópu heldur áfram Setti silfurliðið í sjötta sæti: Nýr þjálfari og þynnri hópur „Ég hef miklar áhyggjur af Valsstelpunum“ „Þurfum að bæta varnarleikinn umtalsvert“ „Baráttan góð en margt sem við þurfum að gera betur“ Grindavík hóf tímabilið á stórsigri Uppgjörið: KR - Stjarnan 94-87 | KR-ingar höfðu betur í sveiflukenndum leik Grænn Rúnar dró Grindavík Meiri pressa á sterkara KR-liði Lebron talaði hreint út Tröllvaxinn Tryggvi hóf tímabilið af krafti Tindastóll með fullt hús stiga í Evrópu eftir spennutrylli Uppgjörið: Njarðvík - Keflavík 83-78| Njarðvíkingar eru meistarar meistaranna Njarðvík spáð toppsætinu og nýliðarnir verma botninn Martin frábær í sigurleik Stólarnir unnu fyrsta leik sannfærandi Martin byrjar nýtt tímabil eins og hann endaði síðasta Kjartan snýr aftur á Álftanes: „Baldur bara bað mig um að koma“ Beinið brotnaði í tvennt og Ólafur fer varlega Losa Leonard eftir refsinguna Bandaríkin unnu fimmta heimsmeistaratitilinn í röð Bandaríkin og Frakkland mætast í úrslitum heimsmeistaramótsins Pargo verður áfram hjá Grindavík Þrjár Evrópuþjóðir í undanúrslitum Stærsta körfuboltakona heims gnæfir yfir mótherja sína Lakers á undan Bulls að reisa styttu af Phil Jackson Falko farinn frá ÍR Hætti er liðið sótti rússneskan leikmann Sjá meira