Maður dagsins á HM: Öldungar á rassinum og nærbuxur Kim Kardashian Valur Páll Eiríksson skrifar 12. júlí 2026 10:00 Jude Bellingham er hetja gærdagsins. Jean Catuffe/Getty Images Ekki er hallað á neinn þegar fullyrt er að Jude Bellingham sé hetja gærdagsins á HM karla í fótbolta. Tvö mörk hans skutu Englendingum áfram í undanúrslit í fjórða sinn.
Bellingham skoraði mörkin tvö sem skildu á milli Englands og Noregs í 2-1 sigri Englendinga eftir framlengdan leik. Miklar kröfur voru gerðar til hans fyrir mót, enda meðal skærari stjarna liðsins. Hann hafði ekki átt bestu leiktíð sína með Real Madrid á Spáni en liðið allt olli töluverðum vonbrigðum. Eftir mörk hans í gær er hann hins vegar orðinn markahæsti leikmaður liðsins, ásamt Harry Kane, með sex talsins á mótinu. Bellingham er aðeins 23 ára gamall en hefur engu að síður spilað yfir 300 leiki á atvinnumannaferli sem hófst með Birmingham í ensku B-deildinni árið 2019. Hann var orðinn lykilmaður liðsins strax þá, 16 ára gamall, og ári síðar, 17 ára gamall var hann burðarás á miðju þýska stórliðsins Borussia Dortmund. Lukas Jutkiewicz, þáverandi leikmaður Birmingham, rifjar upp þegar 14 ára gamall Bellingham mætti á æfingar aðalliðs félagsins í skólabúningi: „Við erum í skotæfingum og þessi strákur er að spila með aðalliðinu. Hann tekur skotfintu, setur reynslumikla atvinnumenn í rassgatið, sker boltann til baka og rúllar svo boltanum í hitt hornið. Ég hugsaði með mér – og ég veit að ég var ekki sá eini – 'Hver er þetta eiginlega?'“ Bellingham hefur skotist hratt upp á stjörnuhimininn og er í dag á meðal þekktari andlita fótboltans. Því fylgja tækifæri og skyldur utan vallar og hefur hann starfað töluvert sem módel. Hann er með samning við tískufyrirtækið Louis Vuitton, íþróttadrykkjaframleiðandann Lucozade, er með eigin línu hjá Adidas, JB Adidas, hans eigið smáforrit í síma og árið 2024 sat hann fyrir í nærbuxum fyrir Skims, vörumerki Kim Kardashian. Næst á dagskrá hjá Bellingham er Falklandseyjaslagur. Argentína hökti áfram í gegnum útsláttarkeppnina og vann 3-1 sigur á 10 Svisslendingum eftir framlengdan leik í nótt. England og Argentína eigast við í undanúrslitum á miðvikudaginn kemur en degi fyrr mætast Frakkland og Spánn.
HM 2026 í fótbolta Enski boltinn Mest lesið Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport „Guð morning!“ Enski boltinn Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Enski boltinn „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Fótbolti Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Enski boltinn Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport Fleiri fréttir Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Ásdís Karen með tvennu í góðum sigri Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Bruno settur á bekkinn Sjáðu rauða spjald Palmer og Arsenal jafna Man. City Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Siggi Raggi getur gert NSÍ að Færeyjameisturum í dag Sjá meira