Sýður á Svisslendingum Valur Páll Eiríksson skrifar 12. júlí 2026 14:32 Svisslendingar skildu ekkert í dómnum. Embolo grátbiður dómarann um að endurskoða ákvörðun sína. Lars Baron/Getty Images Svisslendingar eru allt annað en ánægðir eftir að hafa fallið úr leik fyrir Argentínu í 8-liða úrslitum á HM karla í fótbolta í gær. Rautt spjald Breel Embolo skilur eftir óbragði í munni þeirra.
Argentína vann 3-1 sigur á Sviss í 8-liða úrslitum mótsins eftir framlengdan leik. Vendipunktur varð í leiknum þegar Embolo var vísað af velli á 72. mínútu, aðeins fimm mínútum eftir að Sviss hafði jafnað leikinn. Leandro Paredes fékk þá upphaflega gult spjald fyrir að brjóta á Embolo. Endursýningar sýndu að Embolo var byrjaður að falla áður en sá argentínski snerti hann. Embolo hafði fengið gult spjald fyrr í leiknum og eftir endurskoðun dómara fékk hann sitt annað gula spjald fyrir að falla auðveldlega til jarðar í atvikinu. „Ég skil hreinlega ekki hvernig VAR getur tekið svona ákvörðun,“ sagði Nico Elvedi, varnarmaður Sviss, eftir leikinn. Rauða spjaldið koma á versta tíma fyrir Sviss, sem hafði meðbyr eftir að hafa jafnað skömmu fyrr. „Eftir jöfnunarmarkið var meðbyr með okkur. Ég vildi gera skiptingar og setja sóknarþenkjandi leikmenn inn,“ segir Murat Yakin, þjálfari Sviss. „Við vorum með yfirhöndina en þetta rauða spjald. Okkur er refsað vegna reglu, sem að mínu viti, er fullkomnlega óskiljanleg. Þetta er svakalega sárt að falla úr leik með þessum hætti. Við áttum þetta ekki skilið,“ sagði Yakin. VAR greip aðeins inn í vegna þess að Paredes fékk gult spjald. Það var því rangur maður sem fékk gult spjald í atvikinu. Hefði dómari leiksins hins vegar dæmt brot og ekki gefið þeim argentínska spjald, hefði leikurinn haldið áfram og Embolo einnig haldið áfram leik. „Það komu upp mörg atvik þar sem dómarinn gat gefið gult. En svo gefur hann gult á þetta, sem var lítið brot ef þetta var brot yfirhöfuð. Verndarhattur er settur á dómara vegna reglu sem eyðilagði leikinn. Það er gríðarlega sárt,“ segir Yakin enn fremur. Embolo fór af velli í tárum.Daniela Porcelli/Getty Images Embolo fór grátandi af velli og liðsfélagar reyndu að hugga hann á hliðarlínunni. „Þú getur rétt ímyndað þér hvernig Breel líður. Að kenna honum um er algjörlega út í hött,“ segir Yakin. Mörk frá Julián Álvarez og Lautaro Martínez í framlengingunni gerðu að verkum að Argentína vann 3-1 sigur og mætir Englandi í undanúrslitum mótsins. „Mér fannst rauða spjaldið breyta leiknum. Það er erfitt að kyngja þessari ákvörðun og það er grafarþögn í klefanum. Þetta eru vonbrigði,“ sagði Granit Xhaka, fyrirliði Sviss, eftir leik. Embolo er fjórði leikmaðurinn í sögu HM sem fær rautt spjald vegna leikaraskaps. Luis Pérez fékk slíkt með Mexíkó gegn Portúgal 2006, Asamoah Gyan í leik með Gana gegn Brasilíu sama ár og Francesco Totti í leik með Ítölum við Suður-Kóreu árið 2002.
HM 2026 í fótbolta FIFA Sviss Mest lesið Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Íslenski boltinn Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Fleiri fréttir Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Sjá meira