Mbappé klár í slaginn en Spánverjar líklegri til sigurs Ágúst Orri Arnarson skrifar 14. júlí 2026 12:01 Mbappé haltraði af velli í síðasta leik Frakklands gegn Marokkó. Liu Lu/VCG via Getty Images Kylian Mbappé er heill heilsu fyrir undanúrslitaleik Frakklands að sögn Didier Deschamps landsliðsþjálfara, sem telur Spánverja samt líklegasta til að verða heimsmeistara.
Mbappé fékk högg á ökklann undir lok átta liða úrslitaleiks Frakklands gegn Marokkó og var tekinn af velli í varúðarráðstöfun. Fyrirliði Frakka og annar af tveimur markahæstu mönnum mótsins hætti síðan snemma á æfingu í gær en verður klár í slaginn í kvöld þegar Frakkland mætir Spáni í undanúrslitum HM. „Kylian er í fínum málum, hann er hundrað prósent heill. Það er ekki hægt að vera meira en hundrað prósent heill,“ sagði Didier Deschamps, landsliðsþjálfari Frakklands, á blaðamannafundi í gær. Deschamps ákvað að nýta tækifærið á blaðamannafundinum til að setja pressu á andstæðinginn og lýsti því yfir að Spánverjar væru líklegri til sigurs. „Gleymið því sem gerðist í fyrsta leik Spánar gegn Grænhöfðaeyjum [0-0 jafntefli], síðan þá hefur liðið sýnt að það er sigurstranglegast á mótinu. Ég vil ekki auka pressuna á Luis [De La Fuente] og hans lið, en hann veit hvers fólk væntir af þeim,“ sagði Deschamps. „Þeir geta sótt og varist virkilega vel. Þeir hafa bara fengið eitt mark á sig. Við kunnum bæði að verjast vel en ég held að þegar þú skoðar þessi lið sóknarlega, þá gæti þetta orðið stórkostlegur leikur,“ bætti Deschamps við.
HM 2026 í fótbolta Tengdar fréttir Segir engan Frakka vera í franska landsliðinu Mariano Rajoy, fyrrverandi forsætisráðherra Spánar, hefur verið ásakaður um kynþáttahatur eftir að hafa skrifað pistil á Spáni. Þar nefndi hann að það væri enginn Frakki í franska landsliðinu. 13. júlí 2026 09:04 Liðin fjögur eftir sem FIFA vildi að gætu mæst í undanúrslitum Fjögur efstu lið heimslista FIFA standa nú eftir á HM í fótbolta og er þetta í fyrsta sinn sem að akkúrat fjögur efstu lið listans standa eftir í undanúrslitum mótsins. 12. júlí 2026 23:00 Klopp um flugferðina þegar hann ætlaði að fá Mbappé til Liverpool Kylian Mbappé er sjóðandi heitur á heimsmeistaramótinu í fótbolta og er á góðri leið með að spila sinn þriðja úrslitaleik HM á ferlinum og vinna sinn annan Gullskó á HM. Hann spilar með Real Madrid en um tíma dreymdi Liverpool um að fá hann til sín. 10. júlí 2026 23:30 Mest lesið „Þróunin á Íslandi sorgleg síðan ég var hér síðast“ Íslenski boltinn Ögrandi herferð Sweeney gagnrýnd: „Get ekki lýst því hvað ég er reið“ Sport Fékk símtal frá Þorsteini í þetta sinn en er óviss um landsliðið Fótbolti Beinið brotnaði í tvennt og Ólafur fer varlega Körfubolti Milner aftur til Liverpool Enski boltinn „Hann er betri útgáfa af Gerrard“ Enski boltinn Fúlir foreldrar fá svarta spjaldið Fótbolti Raheem Sterling játar sök Enski boltinn Hafþór lét Haaland líta út eins og smástrák Enski boltinn Segir skot Dagnýjar á Breiðablik „pínu ósanngjarnt“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Segir skot Dagnýjar á Breiðablik „pínu ósanngjarnt“ Raheem Sterling játar sök „Blikarnir geta sleppt sér lausum“ Fékk símtal frá Þorsteini í þetta sinn en er óviss um landsliðið Sjáðu veislu Leeds og markið sem gerði framherjann brjálaðan „Hann er betri útgáfa af Gerrard“ Sjáðu mörkin: Bomba í slá og inn beint af æfingasvæðinu Fúlir foreldrar fá svarta spjaldið „Þróunin á Íslandi sorgleg síðan ég var hér síðast“ Richarlison sorgmæddur: „Af hverju?“ Milner aftur til Liverpool Coutinho og Neymar sameinaðir á ný „Get ekki beðið eftir leiknum í Frostaskjóli“ Uppgjörið: Víkingur - Keflavík 4-1 | Annað skref í átt að titlinum Leedsarar léku sér að Newcastle Magnaður Malen og Inter kom til baka VAR dómararnir í bann eftir mistök helgarinnar Stefnir í spennandi toppbaráttu Íslendinganna Enn með fullt hús og spilað 46 leiki án taps Goðsögn hjá West Ham fallin frá „Sýnir hvað þau eru þakklát fyrir það sem ég gaf klúbbnum“ „Eins og þeir séu hræddir við að vinna“ Hafþór lét Haaland líta út eins og smástrák Sjáðu sturlað mark Tómasar, rassamark Vals og tvennur Galdurs og Benedikts Rio betri en Barcola: „Ekki þess virði sem þeir keyptu hann á“ Slagsmál á æfingu trufluðu ekki: „Litlar stimpingar með stórum afleiðingum“ Guðný fagnaði sigri með fimm mánaða dóttur og fékk kórónuna Sjáðu ólöglega sigurmarkið og rauðu spjöldin Fámáll um orðrómana Sjokk fyrir Róbert: „Heyrist hátt brak og maður varð hræddur“ Sjá meira
Segir engan Frakka vera í franska landsliðinu Mariano Rajoy, fyrrverandi forsætisráðherra Spánar, hefur verið ásakaður um kynþáttahatur eftir að hafa skrifað pistil á Spáni. Þar nefndi hann að það væri enginn Frakki í franska landsliðinu. 13. júlí 2026 09:04
Liðin fjögur eftir sem FIFA vildi að gætu mæst í undanúrslitum Fjögur efstu lið heimslista FIFA standa nú eftir á HM í fótbolta og er þetta í fyrsta sinn sem að akkúrat fjögur efstu lið listans standa eftir í undanúrslitum mótsins. 12. júlí 2026 23:00
Klopp um flugferðina þegar hann ætlaði að fá Mbappé til Liverpool Kylian Mbappé er sjóðandi heitur á heimsmeistaramótinu í fótbolta og er á góðri leið með að spila sinn þriðja úrslitaleik HM á ferlinum og vinna sinn annan Gullskó á HM. Hann spilar með Real Madrid en um tíma dreymdi Liverpool um að fá hann til sín. 10. júlí 2026 23:30