„Er dómarinn á því getustigi sem þarf í undanúrslitum HM?“ Sindri Sverrisson skrifar 15. júlí 2026 07:31 Didier Deschamps á nú aðeins einn leik eftir sem þjálfari Frakklands og það verður bronsleikurinn á HM. Getty/Lars Baron Didier Deschamps setti stórt spurningamerki við dómarann eftir 2-0 tapið gegn Spáni í gær, í næstsíðasta leik Frakklands undir stjórn Deschamps.
Hinn 57 ára gamli Deschamps hefur afrekað það að verða heimsmeistari bæði sem leikmaður og sem þjálfari en getur nú í mesta lagi náð í bronsverðlaun í Bandaríkjunum á laugardaginn. Hann kveður þó franska liðið stoltur en beindi líka spjótum sínum að dómaranum Ivan Barton frá El Salvador. „Ég ætla að spyrja gildishlaðinnar spurningar og ég ætla ekki að svara henni,“ sagði Deschamps við blaðamenn eftir tapið í Texas í gær. „Er dómarinn á því getustigi sem krafist er til að dæma í undanúrslitum á heimsmeistaramóti? „Og ég er ekki að segja þetta bara af því að við töpuðum í dag. Það komu upp nokkur atvik. Það voru líka einhverjir dómar okkur í hag,“ sagði Deschamps en vildi ekki útskýra mál sitt nánar. Stimplar sig út eftir leikjamet Deschamps hefur stýrt Frakklandi frá árinu 2012 og setti í gær met sem sá þjálfari sem stýrt hefur liði í flestum HM-leikjum, eða 26 talsins, þegar hann tók fram úr Helmut Schon, fyrrverandi þjálfara Vestur-Þýskalands. Fyrri afrek draga hins vegar lítið úr vonbrigðunum í gær. „Auðvitað eru vonbrigðin gríðarlega mikil,“ sagði Deschamps í gær. Hann tilkynnti í vetur að hann myndi hætta með franska liðið eftir HM og er Zinedine Zidane sagður taka við. „Leikmennirnir eru niðurbrotnir því við höfðum mikinn metnað, þótt við verðum líka að vera raunsæ og viðurkenna að í dag vorum við einu stigi neðar á tæknilega sviðinu gegn liði sem stjórnaði leiknum vel. En fyrst og fremst er þetta okkur að kenna, ég vil ekki kenna neinum um,“ sagði Deschamps. Mbappé setti út á upplegg Frakka Kylian Mbappé virtist vilja kenna uppleggi Deschamps um hvernig fór. „Við vorum þrír á móti tveimur á miðjunni og á móti Spáni er það erfitt. Það skorti á samskiptin í pressunni. Við hefðum átt að vera í „maður á mann“-pressu og neyða þá til að hlaupa með okkur. Þegar þú gerir ekki það sem þú þarft að gera í undanúrslitum á heimsmeistaramóti, þá vinnurðu ekki. Spánverjar virtu leikáætlun sína og það sem liðið gerir venjulega. Þeir eru betri en við í að stjórna leik. Okkur tókst ekki að gera það. Við vorum of slakir tæknilega. Við gátum ekki meitt þá þegar við hefðum getað það,“ sagði Mbappé.
HM 2026 í fótbolta Mest lesið Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport „Guð morning!“ Enski boltinn Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Enski boltinn Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Fótbolti Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Enski boltinn Fleiri fréttir „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Ásdís Karen með tvennu í góðum sigri Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Bruno settur á bekkinn Sjáðu rauða spjald Palmer og Arsenal jafna Man. City Sjá meira